Read Jobsbók Chapter 4 Online
Read Jobsbók Chapter 4 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Jobsbók in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Jobsbók and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
Jobsbók 4
Kafli 4
1. Þá svaraði Elífas frá Teman og mælti:
2. Munt þú taka því illa, þótt maður dirfist að yrða á þig? Og þó, hver fær orða bundist?
3. Sjá, þú hefir áminnt marga, og magnþrota hendur hefir þú styrkt.
4. Þann sem hrasaði, reistu orð þín á fætur, og hnígandi hnén gjörðir þú stöðug.
5. En nú, þegar það kemur yfir þig, gefst þú upp, þegar það nær þér sjálfum, missir þú móðinn.
6. Er ekki guðhræðsla þín athvarf þitt og þitt grandvara líferni von þín?
7. Hugsaðu þig um: Hver er sá, er farist hafi saklaus, og hvar hefir hinum réttvísu verið tortímt?
8. Að því, er ég hefi séð: Þeir sem plægðu rangindi og sáðu óhamingju, þeir einir hafa uppskorið það.
9. Fyrir andgusti Guðs fórust þeir, fyrir reiðiblæstri hans urðu þeir að engu.
10. Öskur ljónsins og rödd óargadýrsins, – tennur ljónshvolpanna eru brotnar sundur.
11. Ljónið ferst, af því að það vantar bráð, og hvolpar ljónynjunnar tvístrast.
12. En til mín laumaðist orð, og eyra mitt nam óminn af því –
13. í heilabrotunum, sem nætursýnirnar valda, þá er þungur svefnhöfgi er fallinn yfir mennina.
14. Ótti kom yfir mig og hræðsla, svo að öll bein mín nötruðu.
15. Og vindgustur straukst fram hjá andliti mínu, hárin risu á líkama mínum.
16. Þarna stóð það – útlitið þekkti ég ekki -, einhver mynd fyrir augum mínum, ég heyrði ymjandi rödd:
17. "Er maðurinn réttlátur fyrir Guði, nokkur mannkind hrein fyrir skapara sínum?
18. Sjá, þjónum sínum treystir hann ekki, og hjá englum sínum finnur hann galla,
19. hvað þá hjá þeim, sem búa í leirhúsum, þeim sem eiga rót sína að rekja til moldarinnar, sem marðir eru sundur sem mölur væri.
20. Milli morguns og kvelds eru þeir molaðir sundur, án þess að menn gefi því gaum, tortímast þeir gjörsamlega.
21. Tjaldstaginu er kippt upp, þeir deyja, og það í vanhyggju sinni."
About Jobsbók Chapter 4
Read Jobsbók Chapter 4 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Jobsbók in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: Jobsbók
Chapter: 4
Testament: Old Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Jobsbók. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading Jobsbók Chapter 4 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is Jobsbók Chapter 4?
Jobsbók Chapter 4 is part of the Book of Jobsbók in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete Jobsbók Chapter 4 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from Gamla Testamentið
Explore More from Jobsbok
- Jobsbók Chapter 10
- Jobsbók Chapter 28
- Jobsbók Chapter 29
- Jobsbók Chapter 33
- Jobsbók Chapter 18
- Jobsbók Chapter 3
- Jobsbók Chapter 39