Jobsbók Chapter 11

For English

Read Jobsbók Chapter 11 Online

Read Jobsbók Chapter 11 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Jobsbók in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Jobsbók and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

Jobsbók 11

Kafli 11

1. Þá svaraði Sófar frá Naama og sagði:

2. Á ekki að svara orðagjálfrinu, og á málskrafsmaðurinn að hafa rétt fyrir sér?

3. Ættu stóryrði þín að koma mönnum til að þegja, og ættir þú að spotta og enginn sneypa þig,

4. þar sem þú segir: "Kenning mín er rétt, og ég er hreinn í augum Guðs"?

5. En – ó að Guð vildi tala og ljúka upp vörum sínum í móti þér

6. og kunngjöra þér leyndardóma spekinnar, að í þeim felast margföld hyggindi, þá mundir þú kannast við, að Guð hegnir ekki til fulls misgjörð þinni.

7. Getur þú náð til botns í Guði eða komist til ystu takmarka hins Almáttka?

8. Himinhá er speki hans – hvað fær þú gjört? dýpri en undirheimar – hvað fær þú vitað?

9. Hún er lengri en jörðin að víðáttu og breiðari en hafið.

10. Ef hann ryðst fram og hneppir í varðhald og stefnir dómþing – hver aftrar honum?

11. Því að hann þekkir varmennin og sér ranglætið, þótt hann sé ekki að veita því athygli.

12. Verður óvitur maður hygginn? og fæðist skógarösnu-folald sem maður?

13. Ef þú undirbýr hjarta þitt og breiðir út lófa þína til hans,

14. – ef misgjörð er í hendi þinni, þá fjarlæg hana, og lát eigi órétt búa í tjöldum þínum –

15. já, þá munt þú flekklaus hefja höfuð þitt, munt standa fastur og eigi þurfa að óttast.

16. Já, þá munt þú gleyma mæðu þinni, þú munt minnast hennar sem vatns, er runnið er fram hjá.

17. Og lífið mun renna upp bjartara en hádegið, þótt dimmi, þá mun það verða sem morgunn.

18. Og þú munt vera öruggur, því að enn er von, og skyggnist þú um, getur þú lagst óhultur til hvíldar.

19. Og þú hvílist, og enginn hræðir þig, og margir munu reyna að koma sér í mjúkinn hjá þér.

20. En augu hinna óguðlegu daprast, fyrir þá er fokið í öll skjól, og þeirra eina von er að gefa upp andann.

About Jobsbók Chapter 11

Read Jobsbók Chapter 11 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Jobsbók in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: Jobsbók
Chapter: 11
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Jobsbók. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading Jobsbók Chapter 11 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is Jobsbók Chapter 11?

Jobsbók Chapter 11 is part of the Book of Jobsbók in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete Jobsbók Chapter 11 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from Gamla Testamentið

  1. Míka Chapter 1
  2. Míka Chapter 3
  3. Míka Chapter 2
  4. Míka Chapter 7
  5. Míka Chapter 5
  6. Míka Chapter 4
  7. Míka Chapter 6

Explore More from Jobsbok

  1. Jobsbók Chapter 19
  2. Jobsbók Chapter 2
  3. Jobsbók Chapter 40
  4. Jobsbók Chapter 32
  5. Jobsbók Chapter 10
  6. Jobsbók Chapter 4
  7. Jobsbók Chapter 17

Related Chapters & Readings

  1. Jóhannes Chapter 21
  2. Orðskviðirnir Chapter 12
  3. 1 Samúelsbók Chapter 7
  4. 2 Kroníkubók Chapter 10
  5. 2 Konungabók Chapter 17
  6. Jósúabók Chapter 14
  7. 2 Kroníkubók Chapter 24
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *