Esekíel Chapter 31

For English

Read Esekíel Chapter 31 Online

Read Esekíel Chapter 31 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Esekíel in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Esekíel and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

Esekíel 31

Kafli 31

1. Og á ellefta árinu, hinn fyrsta dag hins þriðja mánaðar, kom orð Drottins til mín, svohljóðandi:

2. "Mannsson, seg við Faraó, Egyptalandskonung, og við glæsilið hans: Hverjum ertu líkur að mikilleik?

3. Sjá, sedrusviður óx á Líbanon. Greinar hans voru fagrar og laufið veitti mikla forsælu, hann var hávaxinn og náði topplimið upp í skýin.

4. Vatnsgnóttin hafði gjört hann stóran og flóðið hávaxinn, það leiddi strauma sína umhverfis gróðurreit hans og veitti vatnsrásum sínum til allra skógartrjánna.

5. Fyrir því var hann hávaxnari en öll skógartrén, greinum hans fjölgaði og limar hans lengdust af hinni miklu vatnsgnótt.

6. Alls konar fuglar himinsins hreiðruðu sig í greinum hans og alls konar dýr merkurinnar lögðu ungum sínum undir limar hans, og allar hinar mörgu þjóðir bjuggu í forsælu hans.

7. Og hann var fagur sökum mikilleiks síns og vegna þess, hve greinar hans voru langar, því að rætur hans lágu við mikla vatnsgnótt.

8. Sedrustrén jöfnuðust ekki á við hann í aldingarði Guðs, kýprestrén höfðu ekki jafnmiklar greinar og hann, og hlynirnir höfðu ekki eins fallegar limar og hann. Ekkert tré í aldingarði Guðs var honum jafnt að fegurð.

9. Ég hafði prýtt hann með fjölda af greinum, og öll Edentré, sem voru í aldingarði Guðs, öfunduðu hann.

10. Fyrir því segir Drottinn Guð svo: Af því að hann varð hávaxinn og teygði topplimið upp í skýin og ofmetnaðist í hjarta af hæð sinni,

11. þá seldi ég hann í hendur afarmenni meðal þjóðanna, er fara skyldi með hann samkvæmt illsku sinni, uns ég hefði rekið hann burt.

12. Og útlendir menn, hinar grimmustu þjóðir, felldu hann og fleygðu honum. Greinar hans féllu niður á fjöllin og ofan í alla dali, og limar hans lágu sundur brotnar í öllum giljum landsins, og allar þjóðir jarðarinnar viku burt úr forsælu hans og létu hann eiga sig.

13. Allir fuglar himinsins sátu nú á hans fallna stofni og öll dýr merkurinnar lágu á limum hans,

14. til þess að engin tré við vatn skyldu verða hávaxin og eigi teygja topplim sitt upp í skýin, og til þess að stórhöfðingjar þeirra stæðu eigi hreyknir af hæð sinni, allir þeir er á vatni vökvast. Því að allir eru þeir dauðanum ofurseldir, svo að þeir verða að fara niður til undirheima, mitt á meðal mannanna, til þeirra, sem niður stignir eru í gröfina.

15. Svo segir Drottinn Guð: Daginn, sem hann steig niður til Heljar, lét ég flóðið sýta missi hans og hélt aftur straumum hans og hin miklu vötn hættu að renna. Ég klæddi Líbanon sorgarbúningi hans vegna og öll tré merkurinnar liðu í ómegin yfir láti hans.

16. Ég skelfdi þjóðirnar með þeim gný, sem varð af falli hans, er ég steypti honum niður til Heljar, til þeirra, sem eru niður stignir í gröfina. Og þá hugguðust í undirheimum öll Edentré, ágætustu og bestu tré Líbanons, öll þau er á vatni höfðu vökvast.

17. Þau fóru líka með honum niður til Heljar til hinna vopnbitnu, er búið höfðu í forsælu hans, mitt á meðal þjóðanna.

18. Við hvert á meðal Edentrjánna er unnt að jafna þér að skrauti og stærð? En þér mun verða steypt niður í undirheima með Edentrjánum, meðal óumskorinna munt þú liggja hjá hinum vopnbitnu. Þetta er Faraó og glæsilið hans, – segir Drottinn Guð."

About Esekíel Chapter 31

Read Esekíel Chapter 31 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Esekíel in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: Esekíel
Chapter: 31
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Esekíel. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading Esekíel Chapter 31 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is Esekíel Chapter 31?

Esekíel Chapter 31 is part of the Book of Esekíel in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete Esekíel Chapter 31 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from Esekiel

  1. Esekíel Chapter 15
  2. Esekíel Chapter 7
  3. Esekíel Chapter 12
  4. Esekíel Chapter 1
  5. Esekíel Chapter 48
  6. Esekíel Chapter 39
  7. Esekíel Chapter 19

Explore More from Gamla Testamentið

  1. Jeremía Chapter 35
  2. 1 Konungabók Chapter 1
  3. 4 Mósebók Chapter 26
  4. Sálmarnir Chapter 98
  5. Orðskviðirnir Chapter 28
  6. 2 Kroníkubók Chapter 14
  7. Orðskviðirnir Chapter 7

Related Chapters & Readings

  1. Dómarabókin Chapter 10
  2. 2 Mósebók Chapter 35
  3. Sálmarnir Chapter 70
  4. 2 Korintubréf Chapter 4
  5. Jesaja Chapter 5
  6. 2 Mósebók Chapter 30
  7. 4 Mósebók Chapter 22
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *