Jobsbók Chapter 21

For English

Read Jobsbók Chapter 21 Online

Read Jobsbók Chapter 21 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Jobsbók in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Jobsbók and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

Jobsbók 21

Kafli 21

1. Þá svaraði Job og sagði:

2. Hlustið gaumgæfilega á mál mitt, og látið það vera huggun af yðar hendi.

3. Unnið mér þess, að ég tali, og þegar ég hefi talað út, þá mátt þú hæða.

4. Er ég þá að kvarta yfir mönnum? eða hví skyldi ég ekki vera óþolinmóður?

5. Lítið til mín og undrist og leggið hönd á munn!

6. Já, þegar ég hugsa um það, skelfist ég, og hryllingur fer um mig allan.

7. Hvers vegna lifa hinir óguðlegu, verða gamlir, já, magnast að krafti?

8. Niðjar þeirra dafna fyrir augliti þeirra hjá þeim og afsprengi þeirra fyrir augum þeirra.

9. Hús þeirra eru óhult og óttalaus, og hirtingarvöndur Guðs kemur ekki niður á þeim.

10. Boli þeirra kelfir og kemur að gagni, kýr þeirra ber og lætur ekki kálfi.

11. Þeir hleypa út börnum sínum eins og lambahjörð, og smásveinar þeirra hoppa og leika sér.

12. Þeir syngja hátt undir með bumbum og gígjum og gleðjast við hljóm hjarðpípunnar.

13. Þeir eyða dögum sínum í velgengni og fara til Heljar í friði,

14. og þó sögðu þeir við Guð: "Vík frá oss – að þekkja þína vegu girnumst vér eigi.

15. Hvað er hinn Almáttki, að vér skyldum dýrka hann, og hvað skyldi það stoða oss að leita hans í bæn?"

16. Sjá, gæfa þeirra er ekki á þeirra valdi, – ráðlag óguðlegra er fjarri mér.

17. Hversu oft slokknar þá á lampa hinna óguðlegu, og hversu oft kemur ógæfa þeirra yfir þá? Hversu oft deilir Guð þeim hlutskiptum í reiði sinni?

18. Hversu oft verða þeir sem strá fyrir vindi og sem sáðir, er stormurinn feykir burt?

19. "Guð geymir börnum hans óhamingju hans." Endurgjaldi hann honum sjálfum, svo að hann fái að kenna á því!

20. Sjái augu sjálfs hans glötun hans, og drekki hann sjálfur af reiði hins Almáttka!

21. Því að hvað hirðir hann um hús sitt eftir dauðann, þegar tala mánaða hans er fullnuð?

22. Ætla menn að kenna Guði visku eða dæma hinn hæsta?

23. Einn deyr í mestu velgengni, fullkomlega áhyggjulaus og ánægður,

24. trog hans eru full af mjólk, og mergurinn í beinum hans er safamikill.

25. Og annar deyr með beiskju í huga og hefir aldrei notið hamingjunnar.

26. Þeir hvíla báðir í duftinu, og maðkarnir hylja þá.

27. Sjá, ég þekki hugsanir yðar og fyrirætlanir, að beita mig ofbeldi.

28. Þegar þér segið: "Hvar er hús harðstjórans og hvar er tjaldið, sem hinir óguðlegu bjuggu í?"

29. hafið þér þá ekki spurt vegfarendur, – og sönnunum þeirra munuð þér ekki hafna –

30. að á degi glötunarinnar er hinum vonda þyrmt, á reiðinnar degi er þeim skotið undan.

31. Hver setur honum breytni hans fyrir sjónir? Og þegar hann gjörir eitthvað, hver endurgeldur honum?

32. Og til grafar er hann borinn og vakað er yfir legstaðnum.

33. Moldarhnausar dalsins liggja mjúklega ofan á honum, og eftir honum flykkjast allir menn, eins og óteljandi eru á undan honum farnir.

34. Og hvernig megið þér þá hugga mig með hégóma, og andsvör yðar – sviksemin ein er eftir!

About Jobsbók Chapter 21

Read Jobsbók Chapter 21 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Jobsbók in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: Jobsbók
Chapter: 21
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Jobsbók. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading Jobsbók Chapter 21 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is Jobsbók Chapter 21?

Jobsbók Chapter 21 is part of the Book of Jobsbók in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete Jobsbók Chapter 21 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from Gamla Testamentið

  1. Míka Chapter 3
  2. Míka Chapter 2
  3. Míka Chapter 1
  4. Míka Chapter 7
  5. Míka Chapter 6
  6. Míka Chapter 5
  7. Míka Chapter 4

Explore More from Jobsbok

  1. Jobsbók Chapter 29
  2. Jobsbók Chapter 42
  3. Jobsbók Chapter 10
  4. Jobsbók Chapter 19
  5. Jobsbók Chapter 35
  6. Jobsbók Chapter 7
  7. Jobsbók Chapter 41

Related Chapters & Readings

  1. 1 Pétursbréf Chapter 3
  2. Hebreabréfið Chapter 13
  3. Jóel Chapter 2
  4. 5 Mósebók Chapter 12
  5. 4 Mósebók Chapter 17
  6. Sálmarnir Chapter 111
  7. Matteus Chapter 5
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *