Read Míka Chapter 4 Online
Read Míka Chapter 4 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Míka in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Míka and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
Míka 4
Kafli 4
1. Og það skal verða á hinum síðustu dögum, að fjall það, er hús Drottins stendur á, mun grundvallað verða á fjallatindi og gnæfa upp yfir hæðirnar, og þangað munu lýðirnir streyma.
2. Og margar þjóðir munu búast til ferðar og segja: "Komið, förum upp á fjall Drottins og til húss Jakobs Guðs, svo að hann kenni oss sína vegu og vér megum ganga á hans stigum." Því að frá Síon mun kenning út ganga og orð Drottins frá Jerúsalem.
3. Og hann mun dæma meðal margra lýða og skera úr málum voldugra þjóða langt í burtu. Og þær munu smíða plógjárn úr sverðum sínum og sniðla úr spjótum sínum. Engin þjóð skal sverð reiða að annarri þjóð, og ekki skulu þær temja sér hernað framar.
4. Hver mun búa undir sínu víntré og undir sínu fíkjutré og enginn hræða þá. Því að munnur Drottins allsherjar hefir talað það.
5. Því að allar þjóðirnar ganga hver í nafni síns guðs, en vér göngum í nafni Drottins, Guðs vors, æ og ævinlega.
6. Á þeim degi – segir Drottinn – vil ég saman safna því halta og smala saman því tvístraða og þeim er ég hefi tjón unnið,
7. og ég vil gjöra hið halta að nýjum kynstofni og hið burtflæmda að voldugri þjóð. Og Drottinn sjálfur mun verða konungur yfir þeim á Síonfjalli héðan í frá og að eilífu.
8. En þú, varðturn hjarðmannsins, hæð dótturinnar Síon, til þín mun koma og aftur til þín hverfa hið forna veldi, konungdómur dótturinnar Jerúsalem.
9. Nú, hví hljóðar þú svo hástöfum? Hefir þú engan konung, eða er ráðgjafi þinn horfinn, úr því að kvalir grípa þig eins og jóðsjúka konu?
10. Fá þú hríðir og hljóða þú, dóttirin Síon, eins og jóðsjúk kona. Því að nú verður þú að fara út úr borginni og búa á víðavangi og fara alla leið til Babýlon. Þar munt þú frelsuð verða, þar mun Drottinn leysa þig undan valdi óvina þinna.
11. En nú hafa margar þjóðir safnast í móti þér, þær er segja: "Verði hún vanhelguð, svo að vér megum horfa hlakkandi á Síon!"
12. En þær þekkja ekki hugsanir Drottins og skilja ekki ráðsályktun hans, að hann hefir safnað þeim saman eins og kerfum á kornláfa.
13. Rís upp og þresk, dóttirin Síon, því að ég gjöri þér horn af járni og klaufir af eiri, svo að þú skalt sundur merja margar þjóðir. Og þú munt helga Drottni ránsfeng þeirra og fjárafla þeirra honum, sem er Drottinn allrar jarðarinnar.
About Míka Chapter 4
Read Míka Chapter 4 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Míka in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: Míka
Chapter: 4
Testament: Old Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Míka. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading Míka Chapter 4 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is Míka Chapter 4?
Míka Chapter 4 is part of the Book of Míka in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete Míka Chapter 4 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from Gamla Testamentið
- Míka Chapter 1
- Míka Chapter 3
- Míka Chapter 2
- Míka Chapter 7
- Míka Chapter 5
- Míka Chapter 6
- Sálmarnir Chapter 8