Read Jobsbók Chapter 20 Online
Read Jobsbók Chapter 20 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Jobsbók in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Jobsbók and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
Jobsbók 20
Kafli 20
1. Þá svaraði Sófar frá Naama og sagði:
2. Fyrir því veita hugsanir mínar mér andsvör og af því að það sýður í mér:
3. Ég verð að hlusta á háðulegar ávítur, en andi minn gefur mér skilning að svara.
4. Veist þú, að svo hefir það verið frá eilífð, frá því er menn voru settir á jörðina,
5. að fögnuður óguðlegra er skammær og að gleði hins guðlausa varir örskotsstund?
6. Þó að sjálfbirgingskapur hans nemi við himin og höfuð hans nái upp í skýin,
7. þá verður hann þó eilíflega að engu eins og hans eigin saur, þeir, sem sáu hann, segja: Hvar er hann?
8. Hann líður burt eins og draumur, svo að hann finnst ekki, og hverfur eins og nætursýn.
9. Augað, sem á hann horfði, sér hann eigi aftur, og bústaður hans lítur hann aldrei framar.
10. Börn hans sníkja á snauða menn, og hendur þeirra skila aftur eigum hans.
11. Þótt bein hans séu full af æskuþrótti, leggjast þau samt með honum í moldu.
12. Þótt hið illa sé honum sætt í munni, þótt hann feli það undir tungu sinni,
13. þótt hann treini sér það og vilji ekki sleppa því og haldi því eftir í miðjum gómnum,
14. þá breytist þó fæðan í innýflum hans, – í nöðrugall í kviði honum.
15. Auð gleypti hann – hann verður að æla honum aftur, Guð keyrir hann úr kviði hans.
16. Nöðrueitur saug hann, tunga eiturormsins deyðir hann.
17. Hann má ekki gleðjast yfir lækjum, yfir rennandi ám hunangs og rjóma.
18. Hann lætur af hendi aflaféð og gleypir það eigi, auðurinn sem hann græddi, veitir honum eigi eftirvænta gleði.
19. Því að hann kúgaði snauða og lét þá eftir hjálparlausa, sölsaði undir sig hús, en byggði ekki.
20. Því að hann þekkti enga ró í maga sínum, þó fær hann eigi forðað því, sem honum er dýrmætast.
21. Ekkert komst undan græðgi hans, fyrir því er velsæld hans eigi varanleg.
22. Þótt hann hafi allsnægtir, kemst hann í nauðir, allt magn mæðunnar kemur yfir hann.
23. Þá verður það: Til þess að fylla kvið hans sendir Guð í hann sína brennandi reiði og lætur mat sínum rigna yfir hann.
24. Flýi hann fyrir járnvopnunum, þá borar eirboginn hann í gegn.
25. Hann dregur örina út, þá kemur hún út um bakið, og hinn blikandi oddur kemur út úr galli hans – skelfing grípur hann.
26. Allur ófarnaður er geymdur auðæfum hans, eldur, sem enginn blæs að, eyðir honum, hann etur það, sem eftir er í tjaldi hans.
27. Himinninn afhjúpar misgjörð hans, og jörðin gjörir uppreisn í móti honum.
28. Gróði húss hans fer í útlegð, rennur burt í allar áttir á degi reiðinnar.
29. Þetta er óguðlegs manns hlutskipti frá Guði og arfleifð sú, sem honum er úthlutuð af hinum Almáttka.
About Jobsbók Chapter 20
Read Jobsbók Chapter 20 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Jobsbók in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: Jobsbók
Chapter: 20
Testament: Old Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Jobsbók. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading Jobsbók Chapter 20 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is Jobsbók Chapter 20?
Jobsbók Chapter 20 is part of the Book of Jobsbók in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete Jobsbók Chapter 20 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from Gamla Testamentið
Explore More from Jobsbok
- Jobsbók Chapter 4
- Jobsbók Chapter 12
- Jobsbók Chapter 37
- Jobsbók Chapter 36
- Jobsbók Chapter 34
- Jobsbók Chapter 24
- Jobsbók Chapter 14