Read Jobsbók Chapter 28 Online
Read Jobsbók Chapter 28 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Jobsbók in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Jobsbók and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
Jobsbók 28
Kafli 28
1. Að sönnu á silfrið upptökustað og gullið, sem menn hreinsa, fundarstað.
2. Járn er tekið úr jörðu, og steinn er bræddur að eiri.
3. Maðurinn hefir gjört enda á myrkrinu, og til ystu takmarka rannsakar hann steinana, sem faldir eru í kolniðamyrkri.
4. Hann brýtur námugöng fjarri þeim, sem í dagsbirtunni búa, gleymdur mannafótum, fjarlægur mönnum hangir hann, svífur hann.
5. Upp úr jörðinni sprettur brauð, en niðri í henni er öllu umturnað eins og af eldi.
6. Safírinn finnst í grjóti jarðarinnar, og gullkorn fær sá er grefur.
7. Örninn þekkir eigi veginn þangað, og valsaugað sér hann ekki,
8. hin drembnu rándýr ganga hann eigi, ekkert ljón fer hann.
9. Á tinnusteinana leggur maðurinn hönd sína, umturnar fjöllunum frá rótum.
10. Hann heggur göng í björgin, og auga hans sér alls konar dýrindi.
11. Hann bindur fyrir vatnsæðarnar, til þess að þær tárist ekki, og leiðir leynda hluti fram í dagsbirtuna.
12. En spekin, hvar er hana að finna, og hvar á viskan heima?
13. Enginn maður þekkir veginn til hennar, og hana er ekki að finna á landi lifenda.
14. Undirdjúpið segir: "Í mér er hún ekki!" og hafið segir: "Ekki er hún hjá mér!"
15. Hún fæst ekki fyrir skíragull, og ekki verður silfur reitt sem andvirði hennar.
16. Eigi verður hún Ófírgulli goldin né dýrum sjóam- og safírsteinum.
17. Gull og gler kemst ekki til jafns við hana, og hún fæst ekki í skiptum fyrir ker af skíragulli.
18. Kóralla og krystalla er ekki að nefna, og að eiga spekina er meira um vert en perlur.
19. Tópasar Blálands komast ekki til jafns við hana, hún verður ekki goldin með hreinasta gulli.
20. Já spekin, hvaðan kemur hún, og hvar á viskan heima?
21. Hún er falin augum allra þeirra er lifa, og fuglum loftsins er hún hulin.
22. Undirdjúpin og dauðinn segja: "Með eyrum vorum höfum vér heyrt hennar getið."
23. Guð veit veginn til hennar, og hann þekkir heimkynni hennar.
24. Því að hann sér til endimarka jarðar, lítur allt, sem undir himninum er.
25. Þá er hann ákvað þunga vindarins og ákvarðaði takmörk vatnsins,
26. þá er hann setti regninu lög og veg eldingunum,
27. þá sá hann hana og kunngjörði hana, fékk henni stað og rannsakaði hana einnig.
28. Og við manninn sagði hann: "Sjá, að óttast Drottin – það er speki, og að forðast illt – það er viska."
About Jobsbók Chapter 28
Read Jobsbók Chapter 28 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Jobsbók in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: Jobsbók
Chapter: 28
Testament: Old Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Jobsbók. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading Jobsbók Chapter 28 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is Jobsbók Chapter 28?
Jobsbók Chapter 28 is part of the Book of Jobsbók in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete Jobsbók Chapter 28 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from Gamla Testamentið
Explore More from Jobsbok
- Jobsbók Chapter 7
- Jobsbók Chapter 22
- Jobsbók Chapter 41
- Jobsbók Chapter 39
- Jobsbók Chapter 2
- Jobsbók Chapter 27
- Jobsbók Chapter 30