Read Jobsbók Chapter 18 Online
Read Jobsbók Chapter 18 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Jobsbók in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Jobsbók and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
Jobsbók 18
Kafli 18
1. Þá svaraði Bildad frá Súa og sagði:
2. Hversu lengi ætlið þér að halda áfram þessu orðaskaki? Látið yður segjast, og því næst skulum vér talast við.
3. Hvers vegna erum vér metnir sem skepnur, orðnir heimskir í yðar augum?
4. Þú, sem tætir sjálfan þig sundur í reiði þinni, – á jörðin þín vegna að fara í auðn og bjargið að færast úr stað sínum?
5. Ljós hins óguðlega slokknar, og logi elds hans skín ekki.
6. Ljósið myrkvast í tjaldi hans, og það slokknar á lampanum yfir honum.
7. Hans öflugu skref verða stutt, og ráðagjörð sjálfs hans steypir honum,
8. því að hann rekst í netið með fætur sína, og hann gengur í möskvunum.
9. Möskvi festist um hæl hans, lykkjan herðist að honum.
10. Snaran liggur falin á jörðinni, og gildran liggur fyrir honum á stígnum.
11. Skelfingar hræða hann allt um kring og hrekja hann áfram, hvar sem hann gengur.
12. Ógæfu hans tekur að svengja, og glötunin bíður búin eftir falli hans.
13. Hún tærir húð hans, og frumburður dauðans etur limu hans.
14. Hann er hrifinn burt úr tjaldi sínu, er hann treysti á, og það lætur hann ganga til konungs skelfinganna.
15. Í tjaldi hans býr það, sem eigi er hans, brennisteini er stráð yfir bústað hans.
16. Að neðan þorna rætur hans, að ofan visna greinar hans.
17. Minning hans hverfur af jörðunni, og nafn hans er ekki nefnt á völlunum.
18. Menn hrinda honum frá ljósinu út í myrkrið og reka hann burt af jarðríki.
19. Hann mun hvorki eiga börn né buru meðal þjóðar sinnar, og enginn, sem undan hefir komist, er í híbýlum hans.
20. Yfir skapadægri hans skelfast eftirkomendurnir, og hrylling grípur þá, er fyrr voru uppi.
21. Já, svo fer um bústaði hins rangláta og svo um samastað þess manns, sem eigi þekkir Guð.
About Jobsbók Chapter 18
Read Jobsbók Chapter 18 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Jobsbók in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: Jobsbók
Chapter: 18
Testament: Old Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Jobsbók. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading Jobsbók Chapter 18 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is Jobsbók Chapter 18?
Jobsbók Chapter 18 is part of the Book of Jobsbók in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete Jobsbók Chapter 18 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from Gamla Testamentið
Explore More from Jobsbok
- Jobsbók Chapter 40
- Jobsbók Chapter 31
- Jobsbók Chapter 23
- Jobsbók Chapter 7
- Jobsbók Chapter 13
- Jobsbók Chapter 1
- Jobsbók Chapter 35