Jobsbók Chapter 29

For English

Read Jobsbók Chapter 29 Online

Read Jobsbók Chapter 29 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Jobsbók in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Jobsbók and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

Jobsbók 29

Kafli 29

1. Og Job hélt áfram að flytja ræðu sína og mælti:

2. Ó að mér liði eins og forðum daga, eins og þá er Guð varðveitti mig,

3. þá er lampi hans skein yfir höfði mér, og ég gekk við ljós hans í myrkrinu,

4. eins og þá er ég var á sumri ævi minnar, þá er vinátta Guðs var yfir tjaldi mínu,

5. þá er hinn Almáttki var enn með mér og börn mín hringinn í kringum mig,

6. þá er ég óð í rjóma, og olífuolían rann í lækjum úr klettinum hjá mér,

7. þá er ég gekk út í borgarhliðið, upp í borgina, bjó mér sæti á torginu.

8. Þegar sveinarnir sáu mig, földu þeir sig, og öldungarnir risu úr sæti og stóðu.

9. Höfðingjarnir hættu að tala og lögðu hönd á munn sér.

10. Rödd tignarmannanna þagnaði, og tunga þeirra loddi við góminn.

11. Því að ef eyra heyrði, taldi það mig sælan, og ef auga sá, bar það mér vitni.

12. Því að ég bjargaði bágstöddum, sem hrópuðu á hjálp, og munaðarleysingjum, sem enga aðstoð áttu.

13. Blessunarósk aumingjans kom yfir mig, og hjarta ekkjunnar fyllti ég fögnuði.

14. Ég íklæddist réttlætinu, og það íklæddist mér, ráðvendni mín var mér sem skikkja og vefjarhöttur.

15. Ég var auga hins blinda og fótur hins halta.

16. Ég var faðir hinna snauðu, og málefni þess, sem ég eigi þekkti, rannsakaði ég.

17. Ég braut jaxlana í hinum rangláta og reif bráðina úr tönnum hans.

18. Þá hugsaði ég: "Í hreiðri mínu mun ég gefa upp andann og lifa langa ævi, eins og Fönix-fuglinn.

19. Rót mín er opin fyrir vatninu, og döggin hefir náttstað á greinum mínum.

20. Heiður minn er æ nýr hjá mér, og bogi minn yngist upp í hendi minni."

21. Þeir hlustuðu á mig og biðu og hlýddu þegjandi á tillögu mína.

22. Þá er ég hafði talað, tóku þeir eigi aftur til máls, og ræða mín draup niður á þá.

23. Þeir biðu mín eins og regns, og opnuðu munn sinn, eins og von væri á vorskúr.

24. Ég brosti til þeirra, þegar þeim féllst hugur, og ljós auglitis míns gjörðu þeir aldrei dapurt.

25. Fús lagði ég leið til þeirra og sat þar efstur, sat þar sem konungur umkringdur af hersveit sinni, eins og huggari harmþrunginna.

About Jobsbók Chapter 29

Read Jobsbók Chapter 29 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Jobsbók in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: Jobsbók
Chapter: 29
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Jobsbók. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading Jobsbók Chapter 29 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is Jobsbók Chapter 29?

Jobsbók Chapter 29 is part of the Book of Jobsbók in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete Jobsbók Chapter 29 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from Gamla Testamentið

  1. Míka Chapter 1
  2. Míka Chapter 3
  3. Míka Chapter 2
  4. Míka Chapter 7
  5. Míka Chapter 5
  6. Míka Chapter 4
  7. Míka Chapter 6

Explore More from Jobsbok

  1. Jobsbók Chapter 24
  2. Jobsbók Chapter 19
  3. Jobsbók Chapter 3
  4. Jobsbók Chapter 15
  5. Jobsbók Chapter 12
  6. Jobsbók Chapter 33
  7. Jobsbók Chapter 23

Related Chapters & Readings

  1. 2 Mósebók Chapter 15
  2. Esekíel Chapter 41
  3. 1 Mósebók Chapter 5
  4. Sálmarnir Chapter 54
  5. 1 Kroníkubók Chapter 9
  6. Sálmarnir Chapter 93
  7. Sálmarnir Chapter 25
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *