Jobsbók Chapter 15

For English

Read Jobsbók Chapter 15 Online

Read Jobsbók Chapter 15 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Jobsbók in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Jobsbók and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

Jobsbók 15

Kafli 15

1. Þá svaraði Elífas frá Teman og sagði:

2. Skyldi vitur maður svara með vindkenndri visku og fylla brjóst sitt austanstormi –

3. sanna mál sitt með orðum, sem ekkert gagna, og ræðum, sem engu fá áorkað?

4. Auk þess rífur þú niður guðsóttann og veikir lotninguna, sem Guði ber.

5. Því að misgjörð þín leggur þér orð í munn og þú velur þér lævísra tungu.

6. Þinn eigin munnur sakfellir þig, ekki ég, og varir þínar vitna í gegn þér.

7. Fæddist þú fyrstur manna og ert þú í heiminn borinn fyrr en hæðirnar?

8. Hefir þú hlustað í ráði Guðs og hrifsað til þín spekina?

9. Hvað veist þú, er vér eigi vissum, hvað skilur þú, er oss væri ókunnugt?

10. Til eru og öldungar, gráhærðir menn, vor á meðal, auðgari að ævidögum en faðir þinn.

11. Er huggun Guðs þér lítils virði og mildileg orðin sem þú heyrir?

12. Hvers vegna hrífur gremjan þig og hví ranghvolfast augu þín,

13. er þú snýr reiði þinni gegn Guði og lætur þér slík orð um munn fara?

14. Hvað er maðurinn, að hann geti verið hreinn, og sá verið réttlátur, sem af konu er fæddur?

15. Sjá, sínum heilögu treystir Hann ekki, og himinninn er ekki hreinn í augum hans,

16. hvað þá hinn andstyggilegi og spillti, maðurinn, sem drekkur ranglætið eins og vatn.

17. Ég vil fræða þig, heyr þú mig, og það sem ég hefi séð, frá því vil ég segja,

18. því er vitringarnir kunngjörðu – og duldu ekki – svo sem arfsögn frá feðrum sínum,

19. en þeim einum var landið gefið, og enginn útlendingur hafði enn farið um meðal þeirra.

20. Alla ævi sína kvelst hinn óguðlegi og öll þau ár, sem geymd eru ofbeldismanninum.

21. Skelfingarhljóð óma í eyrum honum, á friðartímum ræðst eyðandinn á hann.

22. Hann trúir því ekki, að hann komist út úr myrkrinu, og hann er kjörinn undir sverðið.

23. Hann reikar um til þess að leita sér brauðs – hvar er það? – hann veit að ógæfudagurinn bíður hans.

24. Neyð og angist skelfa hann, hún ber hann ofurliði eins og konungur, sem búinn er til atlögu,

25. af því hann útrétti hönd sína gegn Guði og reis þrjóskur í móti hinum Almáttka,

26. rann í móti honum illvígur undir þykkum bungum skjalda sinna.

27. Hann þakti andlit sitt spiki og safnaði fitu á lendar sér,

28. settist að í eyddum borgum, í húsum, er enginn átti í að búa og ákveðið var, að verða skyldu að rústum.

29. Hann verður ekki ríkur, og eigur hans haldast ekki við, og kornöx hans svigna ekki til jarðar.

30. Hann kemst eigi undan myrkrinu, frjóanga hans mun loginn svíða, og fyrir reiðiblæstri hans ferst hann.

31. Hann skyldi ekki reiða sig á hégóma; hann villist, því að hégómi verður umbun hans.

32. Það rætist fyrir skapadægur hans, og pálmagrein hans grænkar eigi.

33. Hann hristir af sér súr berin eins og vínviðurinn og varpar af sér blómunum eins og olíutréð.

34. Því að sveit hinna óguðlegu er ófrjó, og eldur eyðir tjöldum mútugjafanna.

35. Þeir ganga þungaðir með mæðu og ala ógæfu, og kviður þeirra undirbýr svik.

About Jobsbók Chapter 15

Read Jobsbók Chapter 15 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Jobsbók in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: Jobsbók
Chapter: 15
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Jobsbók. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading Jobsbók Chapter 15 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is Jobsbók Chapter 15?

Jobsbók Chapter 15 is part of the Book of Jobsbók in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete Jobsbók Chapter 15 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from Gamla Testamentið

  1. Míka Chapter 3
  2. Míka Chapter 2
  3. Míka Chapter 1
  4. Míka Chapter 7
  5. Míka Chapter 6
  6. Míka Chapter 5
  7. Míka Chapter 4

Explore More from Jobsbok

  1. Jobsbók Chapter 23
  2. Jobsbók Chapter 9
  3. Jobsbók Chapter 2
  4. Jobsbók Chapter 41
  5. Jobsbók Chapter 28
  6. Jobsbók Chapter 4
  7. Jobsbók Chapter 13

Related Chapters & Readings

  1. 2 Kroníkubók Chapter 12
  2. Rómverjar Chapter 4
  3. Jobsbók Chapter 2
  4. 1 Korintubréf Chapter 13
  5. 3 Mósebók Chapter 18
  6. 2 Mósebók Chapter 16
  7. Markús Chapter 6
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *