Read Jobsbók Chapter 19 Online
Read Jobsbók Chapter 19 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Jobsbók in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Jobsbók and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
Jobsbók 19
Kafli 19
1. Þá svaraði Job og sagði:
2. Hversu lengi ætlið þér að angra sál mína og mylja mig sundur með orðum?
3. Þér hafið þegar smánað mig tíu sinnum, þér skammist yðar ekki fyrir að misþyrma mér.
4. Og hafi mér í raun og veru orðið á, þá varðar það mig einan.
5. Ef þér í raun og veru ætlið að hrokast upp yfir mig, þá sannið mér svívirðing mína.
6. Kannist þó við, að Guð hafi hallað rétti mínum og umkringt mig með neti sínu.
7. Sjá, ég kalla: Ofbeldi! og fæ ekkert svar, ég kalla á hjálp, en engan rétt er að fá.
8. Guð hefir girt fyrir veg minn, svo að ég kemst ekki áfram, og stigu mína hylur hann myrkri.
9. Heiðri mínum hefir hann afklætt mig og tekið kórónuna af höfði mér.
10. Hann brýtur mig niður á allar hliðar, svo að ég fari burt, og slítur upp von mína eins og tré.
11. Hann lætur reiði sína bálast gegn mér og telur mig óvin sinn.
12. Skarar hans koma allir saman og leggja braut sína gegn mér og setja herbúðir sínar kringum tjald mitt.
13. Bræður mína hefir hann gjört mér fráhverfa, og vinir mínir vilja eigi framar við mér líta.
14. Skyldmenni mín láta ekki sjá sig, og kunningjar mínir hafa gleymt mér.
15. Skjólstæðingar húss míns og þernur mínar álíta mig aðkomumann, og ég er orðinn útlendingur í augum þeirra.
16. Kalli ég á þjón minn, svarar hann ekki, ég verð að sárbæna hann með munni mínum.
17. Andi minn er konu minni framandlegur, og bræður mínir forðast mig.
18. Jafnvel börnin fyrirlíta mig, standi ég upp, spotta þau mig.
19. Alla mína alúðarvini stuggar við mér, og þeir sem ég elskaði, hafa snúist á móti mér.
20. Bein mín límast við hörund mitt og hold, og ég hefi sloppið með tannholdið eitt.
21. Aumkið mig, aumkið mig, vinir mínir, því að hönd Guðs hefir lostið mig.
22. Hví ofsækið þér mig eins og Guð og verðið eigi saddir á holdi mínu?
23. Ó að orð mín væru skrifuð upp, ó að þau væru skráð í bók
24. með járnstíl og blýi, að eilífu höggvin í klett!
25. Ég veit, að lausnari minn lifir, og hann mun síðastur ganga fram á foldu.
26. Og eftir að þessi húð mín er sundurtætt og allt hold er af mér, mun ég líta Guð.
27. Ég mun líta hann mér til góðs, já, augu mín sjá hann, og það eigi sem andstæðing, – hjartað brennur af þrá í brjósti mér!
28. Þegar þér segið: "Vér skulum ofsækja hann, rót ógæfunnar er hjá honum sjálfum að finna!"
29. þá hræðist ógn sverðsins, því að sverðið er refsing syndar. Þá munuð þér komast að raun um, að til er dómur.
About Jobsbók Chapter 19
Read Jobsbók Chapter 19 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Jobsbók in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: Jobsbók
Chapter: 19
Testament: Old Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Jobsbók. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading Jobsbók Chapter 19 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is Jobsbók Chapter 19?
Jobsbók Chapter 19 is part of the Book of Jobsbók in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete Jobsbók Chapter 19 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from Gamla Testamentið
Explore More from Jobsbok
- Jobsbók Chapter 22
- Jobsbók Chapter 24
- Jobsbók Chapter 20
- Jobsbók Chapter 15
- Jobsbók Chapter 37
- Jobsbók Chapter 29
- Jobsbók Chapter 14