Read Jobsbók Chapter 7 Online
Read Jobsbók Chapter 7 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Jobsbók in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Jobsbók and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
Jobsbók 7
Kafli 7
1. Er ekki líf mannsins á jörðinni herþjónusta og dagar hans sem dagar daglaunamanns?
2. Eins og þræll, sem þráir forsælu, og eins og daglaunamaður, sem bíður eftir kaupi sínu,
3. svo hafa mér hlotnast mæðumánuðir og kvalanætur orðið hlutskipti mitt.
4. Þegar ég leggst til hvíldar, hugsa ég: "Nær mun ég rísa á fætur?" Og kveldið er langt, og ég fæ mig fullsaddan á að bylta mér uns aftur eldir.
5. Líkami minn er þakinn ormum og moldarskánum, húð mín skorpnar og rifnar upp aftur.
6. Dagar mínir eru hraðfleygari en vefjarskyttan, og þeir hverfa án vonar.
7. Minnstu þess, Guð, að líf mitt er andgustur! Aldrei framar mun auga mitt gæfu líta.
8. Það auga, sem nú sér mig, mun eigi líta mig framar, augu þín leita mín, en ég er horfinn.
9. Eins og skýið eyðist og hverfur, svo kemur og sá eigi aftur, er niður stígur til Heljar.
10. Hann hverfur aldrei aftur til húss síns, og heimili hans þekkir hann eigi framar.
11. Ég ætla þá ekki heldur að hafa taum á tungu minni, ég ætla að tala í hugarangist minni, ég ætla að kveina í sálarkvöl minni.
12. Er ég haf eða sjóskrímsl, svo að þú þurfir að setja vörð yfir mig?
13. Þegar ég hugsa með sjálfum mér: "Rúmið mitt skal hugga mig, hvílan mín létta mér hörmung mína"
14. þá hræðir þú mig með draumum og skelfir mig með sýnum,
15. svo að ég kýs heldur að kafna, heldur að deyja en að vera slík beinagrind.
16. Ég er leiður á þessu – ekki lifi ég eilíflega -, slepptu mér, því að dagar mínir eru andartak.
17. Hvað er maðurinn, að þú metir hann svo mikils og að þú snúir huga þínum til hans?
18. að þú heimsækir hann á hverjum morgni og reynir hann á hverri stundu?
19. Hvenær ætlar þú loks að líta af mér, loks að sleppa mér, meðan ég renni niður munnvatninu?
20. Hafi ég syndgað – hvað get ég gert þér, þú vörður manna? Hvers vegna hefir þú mig þér að skotspæni, svo að ég er sjálfum mér byrði?
21. Og hví fyrirgefur þú mér eigi synd mína og nemur burt sekt mína? Því að nú leggst ég til hvíldar í moldu, og leitir þú mín, þá er ég eigi framar til.
About Jobsbók Chapter 7
Read Jobsbók Chapter 7 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Jobsbók in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: Jobsbók
Chapter: 7
Testament: Old Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Jobsbók. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading Jobsbók Chapter 7 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is Jobsbók Chapter 7?
Jobsbók Chapter 7 is part of the Book of Jobsbók in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete Jobsbók Chapter 7 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from Gamla Testamentið
Explore More from Jobsbok
- Jobsbók Chapter 29
- Jobsbók Chapter 32
- Jobsbók Chapter 24
- Jobsbók Chapter 41
- Jobsbók Chapter 38
- Jobsbók Chapter 33
- Jobsbók Chapter 30