Read Jobsbók Chapter 14 Online
Read Jobsbók Chapter 14 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Jobsbók in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Jobsbók and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
Jobsbók 14
Kafli 14
1. Maðurinn, af konu fæddur, lifir stutta stund og mettast órósemi.
2. Hann rennur upp og fölnar eins og blóm, flýr burt eins og skuggi og hefir ekkert viðnám.
3. Og yfir slíkum heldur þú opnum augum þínum og dregur mig fyrir dóm hjá þér!
4. Hvernig ætti hreinn að koma af óhreinum? Ekki einn!
5. Ef dagar hans eru ákvarðaðir, tala mánaða hans tiltekin hjá þér, hafir þú ákveðið takmark hans, er hann fær eigi yfir komist,
6. þá lít þú af honum, til þess að hann fái hvíld, svo að hann megi fagna yfir degi sínum eins og daglaunamaður.
7. Því að tréð hefir von, sé það höggvið, þá skýtur það nýjum frjóöngum, og teinungurinn kemur áreiðanlega upp.
8. Jafnvel þótt rót þess eldist í jörðinni, og stofn þess deyi í moldinni,
9. þá brumar það við ilminn af vatninu, og á það koma greinar eins og unga hríslu.
10. En deyi maðurinn, þá liggur hann flatur, og gefi manneskjan upp andann – hvar er hún þá?
11. Eins og vatnið hverfur úr stöðuvatninu og fljótið grynnist og þornar upp,
12. þannig leggst maðurinn til hvíldar og rís eigi aftur á fætur. Hann rumskar ekki, meðan himnarnir standa og vaknar ekki af svefninum.
13. Ó að þú vildir geyma mig í dánarheimum, fela mig, uns reiði þinni linnir, setja mér tímatakmark og síðan minnast mín!
14. Þegar maðurinn deyr, lifnar hann þá aftur? þá skyldi ég þreyja alla daga herþjónustu minnar, þar til er lausnartíð mín kæmi.
15. Þú mundir kalla, og ég – ég mundi svara þér, þú mundir þrá verk handa þinna.
16. Því að þá mundir þú telja spor mín, eigi vaka yfir synd minni.
17. Afbrot mín lægju innsigluð í böggli, og á misgjörð mína drægir þú hvítan lit.
18. En eins og fjallið molnar sundur, er það hrynur, og kletturinn færist úr stað sínum,
19. eins og vatnið holar steinana og vatnsflóðin skola burt jarðarleirnum, svo hefir þú gjört von mannsins að engu.
20. Þú ber hann ofurliði að eilífu, og hann fer burt, þú afmyndar ásjónu hans og rekur hann á brott.
21. Komist börn hans til virðingar, þá veit hann það ekki, séu þau lítilsvirt, verður hann þess ekki var.
22. Aðeins kennir líkami hans eigin sársauka, og sál hans hryggist yfir sjálfum honum.
About Jobsbók Chapter 14
Read Jobsbók Chapter 14 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Jobsbók in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: Jobsbók
Chapter: 14
Testament: Old Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Jobsbók. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading Jobsbók Chapter 14 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is Jobsbók Chapter 14?
Jobsbók Chapter 14 is part of the Book of Jobsbók in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete Jobsbók Chapter 14 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from Gamla Testamentið
Explore More from Jobsbok
- Jobsbók Chapter 22
- Jobsbók Chapter 24
- Jobsbók Chapter 4
- Jobsbók Chapter 12
- Jobsbók Chapter 31
- Jobsbók Chapter 18
- Jobsbók Chapter 30