Read Jobsbók Chapter 37 Online
Read Jobsbók Chapter 37 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Jobsbók in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Jobsbók and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
Jobsbók 37
Kafli 37
1. Já, yfir þessu titrar hjarta mitt og hrökkur upp úr stað sínum.
2. Heyrið, heyrið drunur raddar hans og hvininn, sem út fer af munni hans.
3. Undir öllum himninum lætur hann eldinguna þjóta og leiftur sitt út á jaðra jarðarinnar.
4. Á eftir því kemur öskrandi skrugga, hann þrumar með sinni tignarlegu raust og heldur eldingunum ekki aftur, þá er raust hans lætur til sín heyra.
5. Guð þrumar undursamlega með raust sinni, hann sem gjörir mikla hluti, er vér eigi skiljum.
6. Því að hann segir við snjóinn: "Fall þú á jörðina," og eins við hellirigninguna og hennar dynjandi helliskúrir.
7. Hann innsiglar hönd sérhvers manns, til þess að allir menn viðurkenni verk hans.
8. Þá fara villidýrin í fylgsni sín og hvílast í bælum sínum.
9. Stormurinn kemur úr forðabúrinu og kuldinn af norðanvindunum.
10. Fyrir andgust Guðs verður ísinn til, og víð vötnin eru lögð í læðing.
11. Hann hleður skýin vætu, tvístrar leifturskýi sínu víðsvegar.
12. En það snýst í allar áttir, eftir því sem hann leiðir það, til þess að það framkvæmi allt það er hann býður því, á yfirborði allrar jarðarinnar.
13. Hann lætur því ljósta niður, hvort sem það er til hirtingar eða til að vökva jörðina eða til að blessa hana.
14. Hlýð þú á þetta, Job, stattu kyrr og gef gaum að dásemdum Guðs.
15. Skilur þú, hvernig Guð felur þeim hlutverk þeirra og lætur leiftur skýja sinna skína?
16. Skilur þú, hvernig skýin svífa, dásemdir hans, sem fullkominn er að vísdómi,
17. þú, sem fötin hitna á, þá er jörðin mókir í sunnanmollu?
18. Þenur þú út með honum heiðhimininn, sem fastur er eins og steyptur spegill?
19. Kenn oss, hvað vér eigum að segja við hann! Vér megnum ekkert fram að færa fyrir myrkri.
20. Á að segja honum, að ég ætli að tala? Eða hefir nokkur sagt, að hann óski að verða gjöreyddur?
21. Og nú sjá menn að sönnu ekki ljósið, sem skín skært að skýjabaki, en vindurinn þýtur áfram og sópar skýjunum burt.
22. Gullið kemur úr norðri, um Guð lykur ógurlegur ljómi.
23. Vér náum eigi til hins Almáttka, til hans, sem er mikill að mætti. En réttinn og hið fulla réttlæti vanrækir hann ekki.
24. Fyrir því óttast mennirnir hann, en hann lítur ekki við neinum sjálfbirgingum.
About Jobsbók Chapter 37
Read Jobsbók Chapter 37 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Jobsbók in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: Jobsbók
Chapter: 37
Testament: Old Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Jobsbók. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading Jobsbók Chapter 37 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is Jobsbók Chapter 37?
Jobsbók Chapter 37 is part of the Book of Jobsbók in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete Jobsbók Chapter 37 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from Gamla Testamentið
Explore More from Jobsbok
- Jobsbók Chapter 38
- Jobsbók Chapter 33
- Jobsbók Chapter 34
- Jobsbók Chapter 32
- Jobsbók Chapter 31
- Jobsbók Chapter 6
- Jobsbók Chapter 24