2 Mósebók Chapter 36

For English

Read 2 Mósebók Chapter 36 Online

Read 2 Mósebók Chapter 36 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 2 Mósebók in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of 2 Mósebók and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

2 Mósebók 36

Kafli 36

1. Og skulu þeir Besalel og Oholíab og allir hugvitsmenn, er Drottinn hefir gefið hugvit og kunnáttu, svo að þeir bera skyn á, hvernig gjöra skal allt það verk, er að helgidómsgjörðinni lýtur, gjöra allt eins og Drottinn hefir boðið."

2. Móse lét þá kalla Besalel og Oholíab og alla hugvitsmenn, er Drottinn hafði gefið hugvit, alla þá, sem af fúsum huga gengu að verkinu til að vinna það.

3. Tóku þeir við af Móse öllum gjöfunum, sem Ísraelsmenn höfðu fram borið til framkvæmda því verki, er að helgidómsgjörðinni laut. En þeir færðu honum á hverjum morgni eftir sem áður gjafir sjálfviljuglega.

4. Þá komu allir hugvitsmennirnir, sem störfuðu að helgidómsgjörðinni í smáu og stóru, hver frá sínu verki, sem þeir voru að vinna,

5. og sögðu við Móse á þessa leið: "Fólkið leggur til miklu meira en þörf gjörist til að vinna það verk, sem Drottinn hefur boðið að gjöra."

6. Þá bauð Móse að láta þetta boð út ganga um herbúðirnar: "Enginn, hvorki karl né kona, skal framar hafa nokkurn starfa með höndum í því skyni að gefa til helgidómsins." Lét fólkið þá af að færa gjafir.

7. Var þá gnógt verkefni fyrir þá til alls þess, er gjöra þurfti, og jafnvel nokkuð afgangs.

8. Gjörðu nú allir hugvitsmenn meðal þeirra, er að verkinu unnu, tjaldbúðina af tíu dúkum. Voru þeir gjörðir af tvinnaðri baðmull, bláum purpura, rauðum purpura og skarlati, og listofnir kerúbar á.

9. Hver dúkur var tuttugu og átta álna langur og fjögra álna breiður, og voru allir dúkarnir jafnir að máli.

10. Fimm dúkarnir voru tengdir saman hver við annan, og eins voru hinir fimm dúkarnir tengdir saman hver við annan.

11. Þá voru gjörðar lykkjur af bláum purpura á jaðri ysta dúksins í samfellunni. Eins var gjört á jaðri ysta dúksins í hinni samfellunni.

12. Fimmtíu lykkjur voru gjörðar á öðrum dúknum, og eins voru gjörðar fimmtíu lykkjur á jaðri þess dúksins, sem var í hinni samfellunni, svo að lykkjurnar stóðust á hver við aðra.

13. Þá voru gjörðir fimmtíu krókar af gulli og dúkarnir tengdir saman hver við annan með krókunum, svo að tjaldbúðin varð ein heild.

14. Því næst voru gjörðir dúkar af geitahári til að tjalda með yfir búðina, ellefu að tölu.

15. Hver dúkur var þrjátíu álna langur og fjögra álna breiður, og voru allir ellefu dúkarnir jafnir að máli.

16. Þá voru tengdir saman fimm dúkar sér og sex dúkar sér,

17. og síðan búnar til fimmtíu lykkjur á jaðri ysta dúksins í annarri samfellunni og eins fimmtíu lykkjur á dúkjaðri hinnar samfellunnar.

18. Þá voru gjörðir fimmtíu eirkrókar til að tengja saman tjaldið, svo að það varð ein heild.

19. Þá var enn gjört þak yfir tjaldið af rauðlituðum hrútskinnum og enn eitt þak þar utan yfir af höfrungaskinnum.

20. Því næst voru gjörð þiljuborðin í tjaldbúðina. Voru þau af akasíuviði og stóðu upp og ofan.

21. Var hvert borð tíu álnir á lengd og hálf önnur alin á breidd.

22. Á hverju borði voru tveir tappar, báðir sameinaðir. Var svo gjört á öllum borðum tjaldbúðarinnar.

23. Og þannig voru borðin í tjaldbúðina gjörð: Tuttugu borð í suðurhliðina,

24. og fjörutíu undirstöður af silfri voru búnar til undir tuttugu borðin, tvær undirstöður undir hvert borð, sín fyrir hvorn tappa.

25. Og í hina hlið tjaldbúðarinnar, norðurhliðina, voru gjörð tuttugu borð

26. og fjörutíu undirstöður af silfri, tvær undirstöður undir hvert borð.

27. Í afturgafl búðarinnar, gegnt vestri, voru gjörð sex borð.

28. Og tvö borð voru gjörð í búðarhornin á afturgaflinum.

29. Voru þau tvöföld að neðan og héldu sömuleiðis fullu máli upp úr allt til hins fyrsta hrings. Þannig var þeim háttað hvorum tveggja á báðum hornunum.

30. Borðin voru átta og með undirstöðum af silfri, sextán undirstöðum, tveim undirstöðum undir hverju borði.

31. Því næst voru gjörðar slár af akasíuviði, fimm á borðin í annarri hlið búðarinnar

32. og fimm slár á borðin í hinni hlið búðarinnar og fimm slár á borðin í afturgafli búðarinnar, gegnt vestri.

33. Þá var gjörð miðsláin og látin liggja á miðjum borðunum alla leið, frá einum enda til annars.

34. Og voru borðin gulllögð, en hringarnir á þeim, sem slárnar gengu í, gjörðir af gulli. Slárnar voru og gulllagðar.

35. Þá var fortjaldið gjört af bláum purpura, rauðum purpura, skarlati og tvinnaðri baðmull. Var það til búið með listvefnaði og kerúbar á.

36. Til þess voru gjörðir fjórir stólpar af akasíuviði. Voru þeir gulllagðir og naglarnir í þeim af gulli, en undir stólpana voru steyptar fjórar undirstöður af silfri.

37. Dúkbreiða var og gjörð fyrir dyr tjaldsins, af bláum purpura, rauðum purpura, skarlati og tvinnaðri baðmull, og glitofin,

38. svo og fimm stólparnir er henni fylgdu og naglarnir í þeim. Voru stólpahöfuðin gulllögð og hringrandir þeirra, en fimm undirstöðurnar undir þeim voru af eiri.

About 2 Mósebók Chapter 36

Read 2 Mósebók Chapter 36 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 2 Mósebók in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: 2 Mósebók
Chapter: 36
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading 2 Mósebók. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading 2 Mósebók Chapter 36 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is 2 Mósebók Chapter 36?

2 Mósebók Chapter 36 is part of the Book of 2 Mósebók in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete 2 Mósebók Chapter 36 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from 2 Mosebok

  1. 2 Mósebók Chapter 15
  2. 2 Mósebók Chapter 35
  3. 2 Mósebók Chapter 13
  4. 2 Mósebók Chapter 31
  5. 2 Mósebók Chapter 29
  6. 2 Mósebók Chapter 28
  7. 2 Mósebók Chapter 27

Explore More from Gamla Testamentið

  1. Jósúabók Chapter 14
  2. Esekíel Chapter 26
  3. 1 Konungabók Chapter 21
  4. Jesaja Chapter 34
  5. Sakaría Chapter 6
  6. Jósúabók Chapter 21
  7. Orðskviðirnir Chapter 20

Related Chapters & Readings

  1. Jesaja Chapter 55
  2. Jobsbók Chapter 31
  3. 5 Mósebók Chapter 10
  4. 4 Mósebók Chapter 11
  5. 2 Mósebók Chapter 4
  6. Jesaja Chapter 49
  7. 4 Mósebók Chapter 7
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *