Jobsbók Chapter 24

For English

Read Jobsbók Chapter 24 Online

Read Jobsbók Chapter 24 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Jobsbók in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Jobsbók and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

Jobsbók 24

Kafli 24

1. Hvers vegna eru ekki hegningartímar geymdir af hinum Almáttka,

2. og hví sjá þeir ekki daga hans, sem á hann trúa? Menn færa landamerki úr stað, ræna hjörðum og halda þeim á beit.

3. Asna munaðarleysingjanna reka menn burt og taka uxa ekkjunnar að veði.

4. Þeir hrinda hinum fátæku út af veginum, hinir bágstöddu í landinu verða allir að fela sig.

5. Já, sem skógarasnar á öræfum ganga þeir út til starfa sinna, leitandi að fæðu, eyðimörkin veitir þeim brauð handa börnunum.

6. Á akrinum uppskera þeir fóður sitt og fara í eftirleit í víngarði hins óguðlega.

7. Naktir liggja þeir um nætur, klæðlausir, og hafa enga ábreiðu í kuldanum.

8. Þeir eru gagndrepa af fjallaskúrunum, og hælislausir faðma þeir klettinn.

9. Menn slíta föðurleysingjana af brjóstinu og taka veð af hinum bágstöddu.

10. Naktir ganga þeir, klæðlausir, og hungraðir bera þeir kornbundin.

11. Í olífugörðum annarra pressa þeir olíu, troða vínlagarþrór og kveljast af þorsta.

12. Úr borgunum heyrast stunur deyjandi manna, sálir hinna drepnu hrópa á hefnd, en Guð gefur ekki gaum að óhæfunni.

13. Slíkir menn eru ljósfjendur orðnir, þeir þekkja ekki vegu hans og halda sig ekki á stigum hans.

14. Með morgunsárinu fer morðinginn á fætur og drepur hinn volaða og snauða, og á nóttunni læðist þjófurinn.

15. Og auga hórkarlsins bíður eftir rökkrinu, og hann segir: "Ekkert auga sér mig," og dregur skýlu fyrir andlitið.

16. Í myrkrinu brjótast þeir inn í hús, á daginn loka þeir sig inni, þeir þekkja ekki ljósið.

17. Því að öllum er þeim niðamyrkrið morgunn, því að þeir eru nákunnugir skelfingum niðamyrkursins.

18. Fljótt berst hann burt með straumnum, bölvaður verður erfðahluti hans í landinu, hann snýr eigi framar á leið til víngarðanna.

19. Þurrkur og hiti hrífa snjóvatnið burt, Hel þann, er svo hefir syndgað.

20. Móðurskautið gleymir honum, ormarnir gæða sér á honum. Hans er eigi framar minnst, og ranglætið verður brotið sundur eins og tré,

21. hann sem rændi óbyrjuna, er ekki fæddi, og enga velgjörð sýndi ekkjunni.

22. En Guð heldur samt hinum volduga við með mætti sínum, slíkur maður rís aftur upp, þótt hann væri tekinn að örvænta um lífið.

23. Guð veitir honum að lifa óhultur, og hann er studdur, og augu hans vaka yfir vegum hans.

24. Hátt standa þeir, en eftir stundarkorn eru þeir horfnir. Þeir hníga, þeir eru hrifnir burt eins og allir aðrir og sviðnir af eins og höfuð kornaxins.

25. Og ef það er eigi svo, – hver vill þá sanna, að ég sé lygari, og gjöra ræðu mína að engu?

About Jobsbók Chapter 24

Read Jobsbók Chapter 24 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Jobsbók in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: Jobsbók
Chapter: 24
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Jobsbók. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading Jobsbók Chapter 24 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is Jobsbók Chapter 24?

Jobsbók Chapter 24 is part of the Book of Jobsbók in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete Jobsbók Chapter 24 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from Gamla Testamentið

  1. Míka Chapter 3
  2. Míka Chapter 2
  3. Míka Chapter 1
  4. Míka Chapter 5
  5. Míka Chapter 6
  6. Míka Chapter 7
  7. Míka Chapter 4

Explore More from Jobsbok

  1. Jobsbók Chapter 23
  2. Jobsbók Chapter 39
  3. Jobsbók Chapter 38
  4. Jobsbók Chapter 36
  5. Jobsbók Chapter 6
  6. Jobsbók Chapter 18
  7. Jobsbók Chapter 20

Related Chapters & Readings

  1. Lúkas Chapter 19
  2. Matteus Chapter 7
  3. 1 Samúelsbók Chapter 1
  4. Lúkas Chapter 8
  5. Jósúabók Chapter 17
  6. 4 Mósebók Chapter 6
  7. Jobsbók Chapter 32
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *