Orðskviðirnir Chapter 28

For English

Read Orðskviðirnir Chapter 28 Online

Read Orðskviðirnir Chapter 28 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Orðskviðirnir in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Orðskviðirnir and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

Orðskviðirnir 28

Kafli 28

1. Hinir óguðlegu flýja, þótt enginn elti þá, en hinir réttlátu eru öruggir eins og ungt ljón.

2. Þegar land gengur undan drottnara sínum, gjörast þar margir höfðingjar, en meðal skynsamra og hygginna manna mun góð skipan lengi standa.

3. Maður sem er fátækur og kúgar snauða, er eins og regn, sem skolar burt korninu, en veitir ekkert brauð.

4. Þeir sem yfirgefa lögmálið, hrósa óguðlegum, en þeir sem varðveita lögmálið, eru æfir út af þeim.

5. Illmenni skilja ekki hvað rétt er, en þeir sem leita Drottins, skilja allt.

6. Betri er fátækur maður, sem framgengur í ráðvendni sinni, heldur en sá, sem beitir undirferli og er þó ríkur.

7. Sá sem varðveitir lögmálið, er hygginn sonur, en sá sem leggur lag sitt við óhófsmenn, gjörir föður sínum smán.

8. Sá sem eykur auð sinn með fjárleigu og okri, safnar honum handa þeim, sem líknsamur er við fátæka.

9. Sá sem snýr eyra sínu frá til þess að heyra ekki lögmálið, – jafnvel bæn hans er andstyggð.

10. Sá sem tælir falslausa menn út á vonda leið, hann fellur sjálfur í gröf sína, en ráðvandir munu hljóta góða arfleifð.

11. Ríkur maður þykist vitur, en snauður maður, sem er hygginn, sér við honum.

12. Þegar hinir réttlátu fagna, er mikið um dýrðir, en þegar óguðlegir komast upp, fela menn sig.

13. Sá sem dylur yfirsjónir sínar, verður ekki lángefinn, en sá sem játar þær og lætur af þeim, mun miskunn hljóta.

14. Sæll er sá maður, sem ávallt er var um sig, en sá sem herðir hjarta sitt, fellur í ógæfu.

15. Eins og grenjandi ljón og gráðugur björn, svo er óguðlegur drottnari yfir lítilsigldum lýð.

16. Höfðingi, sem hefir litlar tekjur, er ríkur að kúgun, sá sem hatar rangfenginn ávinning, mun langlífur verða.

17. Sá maður, sem blóðsök hvílir þungt á, er á flótta fram á grafarbarminn; enginn dvelji hann.

18. Sá sem breytir ráðvandlega, mun frelsast, en sá sem beitir undirferli, fellur í gryfju.

19. Sá sem yrkir land sitt, mettast af brauði, en sá sem sækist eftir hégómlegum hlutum, mettast af fátækt.

20. Áreiðanlegur maður blessast ríkulega, en sá sem fljótt vill verða ríkur, sleppur ekki við refsingu.

21. Hlutdrægni er ljót, en þó fremja menn ranglæti fyrir einn brauðbita.

22. Öfundsjúkur maður flýtir sér að safna auði og veit ekki að örbirgð muni yfir hann koma.

23. Sá sem ávítar mann, mun á síðan öðlast meiri hylli heldur er tungumjúkur smjaðrari.

24. Sá sem rænir foreldra sína og segir: "Það er engin synd!" hann er stallbróðir eyðandans.

25. Ágjarn maður vekur deilur, en sá sem treystir Drottni, mettast ríkulega.

26. Sá sem treystir eigin hyggjuviti, er heimskingi, en sá sem breytir viturlega, mun undan komast.

27. Sá sem gefur fátækum, líður engan skort, en þeim sem byrgir augu sín, koma margar óbænir.

28. Þegar hinir óguðlegu komast upp, fela menn sig, en þegar þeir tortímast, fjölgar réttlátum.

About Orðskviðirnir Chapter 28

Read Orðskviðirnir Chapter 28 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Orðskviðirnir in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: Orðskviðirnir
Chapter: 28
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Orðskviðirnir. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading Orðskviðirnir Chapter 28 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is Orðskviðirnir Chapter 28?

Orðskviðirnir Chapter 28 is part of the Book of Orðskviðirnir in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete Orðskviðirnir Chapter 28 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from Gamla Testamentið

  1. Míka Chapter 3
  2. Míka Chapter 2
  3. Míka Chapter 1
  4. Míka Chapter 5
  5. Míka Chapter 7
  6. Míka Chapter 6
  7. Míka Chapter 4

Explore More from Ordskvidirnir

  1. Orðskviðirnir Chapter 25
  2. Orðskviðirnir Chapter 2
  3. Orðskviðirnir Chapter 26
  4. Orðskviðirnir Chapter 30
  5. Orðskviðirnir Chapter 16
  6. Orðskviðirnir Chapter 8
  7. Orðskviðirnir Chapter 5

Related Chapters & Readings

  1. Jeremía Chapter 19
  2. 1 Korintubréf Chapter 4
  3. 1 Mósebók Chapter 45
  4. Harmljóðin Chapter 5
  5. Jósúabók Chapter 17
  6. Postulasagan Chapter 2
  7. Sálmarnir Chapter 104
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *