Read Jobsbók Chapter 33 Online
Read Jobsbók Chapter 33 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Jobsbók in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Jobsbók and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
Jobsbók 33
Kafli 33
1. En heyr þú, Job, ræðu mína, og hlýð þú á öll orð mín.
2. Sjá, ég opna munn minn, og tunga mín talar í gómi mínum.
3. Orð mín eru hjartans hreinskilni, og það sem varir mínar vita, mæla þær í einlægni.
4. Andi Guðs hefir skapað mig, og andblástur hins Almáttka gefur mér líf.
5. Ef þú getur, þá svara þú mér, bú þig út í móti mér og gakk fram.
6. Sjá, ég stend eins og þú gagnvart Guði, ég er og myndaður af leiri.
7. Sjá, hræðsla við mig þarf eigi að skelfa þig og þungi minn eigi þrýsta þér niður.
8. En þú hefir sagt í eyru mér, og ég heyrði hljóm orðanna:
9. "Hreinn er ég, laus við afbrot, saklaus er ég, og hjá mér er engin misgjörð.
10. En Guð reynir að finna tilefni til fjandskapar við mig og ætlar að ég sé óvinur hans.
11. Hann setur fætur mína í stokk og aðgætir alla vegu mína."
12. Sjá, í þessu hefir þú rangt fyrir þér, svara ég þér, því að Guð er meiri en maður.
13. Hví hefir þú þráttað við hann, að hann svaraði engu öllum orðum þínum?
14. Því að vissulega talar Guð einu sinni, já, tvisvar, en menn gefa því ekki gaum.
15. Í draumi, í nætursýn, þá er þungur svefnhöfgi er fallinn yfir mennina, í blundi á hvílubeði,
16. opnar hann eyru mannanna og innsiglar viðvörunina til þeirra
17. til þess að fá manninn til þess að láta af gjörðum sínum og forða manninum við drambsemi.
18. Hann hlífir sálu hans við gröfinni og lífi hans frá því að farast fyrir skotvopni.
19. Maðurinn er og agaður með kvölum á sæng sinni, og stríðið geisar stöðuglega í beinum hans.
20. Þá vekur lífshvötin óbeit hjá honum á brauðinu og sál hans á uppáhaldsfæðunni.
21. Hold hans eyðist og verður óásjálegt, og beinin, sem sáust ekki áður, verða ber,
22. svo að sál hans nálgast gröfina og líf hans engla dauðans.
23. En ef þar er hjá honum árnaðarengill, talsmaður, einn af þúsund til þess að boða manninum skyldu hans,
24. og miskunni hann sig yfir hann og segi: "Endurleys hann og lát hann eigi stíga niður í gröfina, ég hefi fundið lausnargjaldið,"
25. þá svellur hold hans af æskuþrótti, hann snýr aftur til æskudaga sinna.
26. Hann biður til Guðs, og Guð miskunnar honum, lætur hann líta auglit sitt með fögnuði og veitir manninum aftur réttlæti hans.
27. Hann syngur frammi fyrir mönnum og segir: "Ég hafði syndgað og gjört hið beina bogið, og þó var mér ekki goldið líku líkt.
28. Guð hefir leyst sálu mína frá því að fara ofan í gröfina, og líf mitt gleður sig við ljósið."
29. Sjá, allt þetta gjörir Guð tvisvar eða þrisvar við manninn
30. til þess að hrífa sál hans frá gröfinni, til þess að lífsins ljós megi leika um hann.
31. Hlýð á, Job, heyr þú mig, ver þú hljóður og lát mig tala.
32. Hafir þú eitthvað að segja, þá svara mér, tala þú, því að gjarnan vildi ég, að þú reyndist réttlátur.
33. Ef svo er eigi þá heyr þú mig, ver hljóður, að ég megi kenna þér speki.
About Jobsbók Chapter 33
Read Jobsbók Chapter 33 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Jobsbók in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: Jobsbók
Chapter: 33
Testament: Old Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Jobsbók. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading Jobsbók Chapter 33 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is Jobsbók Chapter 33?
Jobsbók Chapter 33 is part of the Book of Jobsbók in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete Jobsbók Chapter 33 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from Gamla Testamentið
Explore More from Jobsbok
- Jobsbók Chapter 40
- Jobsbók Chapter 18
- Jobsbók Chapter 1
- Jobsbók Chapter 41
- Jobsbók Chapter 13
- Jobsbók Chapter 4
- Jobsbók Chapter 30