Esrabók Chapter 10

For English

Read Esrabók Chapter 10 Online

Read Esrabók Chapter 10 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Esrabók in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Esrabók and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

Esrabók 10

Kafli 10

1. Meðan Esra baðst þannig fyrir og bar fram játning sína grátandi og knéfallandi frammi fyrir musteri Guðs, safnaðist til hans mjög mikill skari Ísraelsmanna, karlar og konur og börn, því að fólkið grét hástöfum.

2. Þá tók Sekanja Jehíelsson, af niðjum Elams, til máls og sagði við Esra: "Vér höfum brotið á móti Guði vorum, þar sem vér höfum gengið að eiga útlendar konur af hinum heiðnu íbúum landsins. Þó er ekki öll von úti fyrir Ísrael í þessu efni.

3. Fyrir því skulum vér nú gjöra sáttmála við Guð vorn um að reka burt allar þessar konur og börn þau, er af þeim eru fædd, eftir ráðum herra míns og þeirra manna, er óttast boðorð Guðs vors, og það skal verða farið eftir lögmálinu.

4. Rís upp, því að mál þetta hvílir á þér, og vér munum styðja þig. Hertu nú upp hugann og framkvæmdu þetta."

5. Þá reis Esra upp og lét presta- og levítahöfðingjana og allan Ísrael vinna eið að því, að þeir skyldu hegða sér eftir þessu, og unnu þeir eiðinn.

6. Og Esra reis upp og gekk burt þaðan er hann hafði verið, fyrir framan musteri Guðs, og inn í herbergi Jóhanans Eljasíbssonar. Þar var hann um nóttina og neytti hvorki brauðs né drakk vatn, því að hann var hryggur yfir tryggðrofi hinna herleiddu.

7. Og menn létu boð út ganga um Júda og Jerúsalem til allra þeirra, er heim voru komnir úr herleiðingunni, að safnast saman í Jerúsalem.

8. Og hver sá, er eigi kæmi innan þriggja daga, samkvæmt ráðstöfun höfðingjanna og öldunganna – allar eigur hans skyldu banni helgaðar og hann sjálfur rekinn úr söfnuði hinna herleiddu.

9. Þá söfnuðust allir Júdamenn og Benjamíns saman í Jerúsalem á þriðja degi, það var í níunda mánuðinum, á tuttugasta degi mánaðarins. Og allt fólkið sat á auða svæðinu fram undan musteri Guðs, skjálfandi út af þessu og af því að stórrigning var.

10. Þá stóð Esra prestur upp og mælti til þeirra: "Þér hafið rofið tryggðir, með því að ganga að eiga útlendar konur, til þess að auka á sekt Ísraels.

11. Gjörið því játningu frammi fyrir Drottni, Guði feðra yðar, og gjörið hans vilja og skiljið yður frá hinum heiðnu íbúum landsins og frá hinum útlendu konum."

12. Og allur söfnuðurinn svaraði og sagði með hárri röddu: "Svo sem þú hefir sagt, þannig er oss skylt að breyta.

13. En fólkið er margt og rigningatími, svo að vér getum ekki staðið úti. Þetta er og meira en eins eða tveggja daga verk, því að vér höfum margfaldlega brotið í þessu efni.

14. Gangi því höfðingjar vorir fram fyrir allan söfnuðinn, og allir þeir í borgum vorum, er gengið hafa að eiga útlendar konur, skulu koma hver á tilteknum tíma, og með þeim öldungar hverrar borgar og dómarar hennar, þar til er þeir hafa snúið hinni brennandi reiði Guðs vors frá oss að því er mál þetta snertir."

15. Þeir Jónatan Asahelsson og Jahseja Tikvason einir mótmæltu þessu, og Mesúllam og Sabtaí levíti studdu þá.

16. Þeir, sem heim voru komnir úr herleiðingunni, gjörðu svo, og Esra prestur valdi sér menn, ætthöfðingja hinna einstöku ætta, og þá alla með nafni, og settust þeir á ráðstefnu hinn fyrsta dag hins tíunda mánaðar til þess að rannsaka málið.

17. Og þeir höfðu að öllu leyti útkljáð mál þeirra manna, er gengið höfðu að eiga útlendar konur, fyrir fyrsta dag hins fyrsta mánaðar.

18. Af niðjum prestanna fundust þessir, er gengið höfðu að eiga útlendar konur: Af niðjum Jósúa Jósadakssonar og bræðrum hans: Maaseja, Elíeser, Jaríb og Gedalja.

19. Lofuðu þeir með handsali að reka frá sér konur sínar og að fórna hrút vegna sektar sinnar.

20. Af niðjum Immers: Hananí og Sebadía.

21. Af afkomendum Haríms: Maaseja, Elía, Semaja, Jehíel og Úsía.

22. Af niðjum Pashúrs: Eljóenaí, Maaseja, Ísmael, Netaneel, Jósabad og Elasa.

23. Af levítunum: Jósabad, Símeí og Kelaja – það er Kelíta, Petahja, Júda og Elíeser.

24. Af söngvurunum: Eljasíb. Af hliðvörðunum: Sallúm, Telem og Úrí.

25. Af Ísrael: Af niðjum Parós: Ramja, Jisía, Malkía, Míjamín, Eleasar, Malkía og Benaja.

26. Af niðjum Elams: Mattanja, Sakaría, Jehíel, Abdí, Jeremót og Elía.

27. Af niðjum Sattú: Eljóenaí, Eljasíb, Mattanja, Jeremót, Sabad og Asísa.

28. Af niðjum Bebaí: Jóhanan, Hananja, Sabbaí og Atlaí.

29. Af niðjum Baní: Mesúllam, Mallúk og Adaja, Jasúb, Seal, Jeramót.

30. Af niðjum Pahat Móabs: Adna, Kelal, Benaja, Maaseja, Mattanja, Besaleel, Binnúí og Manasse.

31. Niðjar Haríms: Elíeser, Jisía, Malkía, Semaja, Símeon,

32. Benjamín, Mallúk, Semarja.

33. Af niðjum Hasúms: Matnaí, Mattatta, Sabad, Elífelet, Jeremaí, Manasse, Símeí.

34. Af niðjum Baní: Maadaí, Amram, Úel,

35. Benaja, Bedja, Kelúhí,

36. Vanja, Meremót, Eljasíb,

37. Mattanja, Matnaí, Jaasaí,

38. Baní, Binnúí, Símeí,

39. Selemja, Natan, Adaja,

40. Maknadbaí, Sasaí, Saraí,

41. Asareel, Selemja, Semarja,

42. Sallúm, Amarja, Jósef.

43. Af niðjum Nebós: Jeíel, Mattija, Sabad, Sebína, Jaddaí, Jóel, Benaja.

44. Allir þessir höfðu gengið að eiga útlendar konur. Og það voru konur meðal þeirra, sem höfðu alið börn.

About Esrabók Chapter 10

Read Esrabók Chapter 10 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Esrabók in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: Esrabók
Chapter: 10
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Esrabók. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading Esrabók Chapter 10 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is Esrabók Chapter 10?

Esrabók Chapter 10 is part of the Book of Esrabók in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete Esrabók Chapter 10 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from esrabok

  1. Esrabók Chapter 4
  2. Esrabók Chapter 9
  3. Esrabók Chapter 8
  4. Esrabók Chapter 1
  5. Esrabók Chapter 5
  6. Esrabók Chapter 3
  7. Esrabók Chapter 7

Explore More from Gamla Testamentið

  1. 1 Samúelsbók Chapter 19
  2. Jobsbók Chapter 9
  3. Orðskviðirnir Chapter 29
  4. Sálmarnir Chapter 125
  5. Ljóðaljóðin Chapter 8
  6. Jeremía Chapter 9
  7. Sálmarnir Chapter 84

Related Chapters & Readings

  1. Orðskviðirnir Chapter 22
  2. Esekíel Chapter 35
  3. Sálmarnir Chapter 116
  4. Sálmarnir Chapter 89
  5. Sefanía Chapter 2
  6. 2 Konungabók Chapter 13
  7. 2 Samúelsbók Chapter 23
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *