Read Nahúm Chapter 1 Online
Read Nahúm Chapter 1 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Nahúm in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Nahúm and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
Nahúm 1
Kafli 1
1. Spádómur um Níníve. Bókin um vitrun Nahúms Elkósíta.
2. Drottinn er vandlætissamur Guð og hefnari. Drottinn er hefnari og fullur gremi. Drottinn hefnir sín á mótstöðumönnum sínum og er langrækinn við óvini sína.
3. Drottinn er seinn til reiði og mikill að krafti, en óhegnt lætur hann ekki. Drottinn brunar áfram í fellibyljum og stormviðri, og skýin eru rykið undir fótum hans.
4. Hann hastar á sjóinn og þurrkar hann upp, og hann lætur öll fljót þorna. Þá fölnar Basan og Karmel, þá fölnar jurtagróðurinn á Líbanon.
5. Fjöllin skjálfa fyrir honum, og hálsarnir renna sundur. Jörðin gengur skykkjum fyrir honum, heimskringlan og allir sem á henni búa.
6. Hver fær staðist gremi hans og hver fær afborið hans brennandi reiði? Heift hans úthellist eins og eldur og björgin bresta sundur fyrir honum.
7. Drottinn er góður, athvarf á degi neyðarinnar, og hann þekkir þá sem treysta honum.
8. En með yfirgeisandi vatnsflóði mun hann gjörsamlega afmá Níníve, og myrkur mun ofsækja óvini hans.
9. Hvað bruggið þér gegn Drottni? Hann eyðir svo, að af tekur – þrengingin mun ekki koma tvisvar.
10. Þótt þeir væru samflæktir sem þyrnar og votir sem vín þeirra, þá munu þeir upp brenndir verða sem skraufþurrir hálmleggir.
11. Frá þér, Níníve, út gekk sá, er hafði illt í huga gegn Drottni, sá er hafði skaðsemdar áform með höndum.
12. Svo segir Drottinn: Þótt þeir komi allir með tölu og afar fjölmennir, þá skulu þeir allt að einu afmáðir verða og farast. Hafi ég auðmýkt þig, Júda, þá mun ég ekki auðmýkja þig framar.
13. Og nú vil ég brjóta ok hans af þér og slíta bönd þín.
14. En um þig, Níníve, mun Drottinn skipa svo fyrir: Ekkert afkvæmi skal framar koma út af nafni þínu. Ég vil eyða skurðmyndunum og steyptu líkneskjunum úr hofi guðs þíns, ég vil búa þér gröf, því að þú ert léttvæg fundin.
15. (2:1) Sjá á fjöllunum fætur fagnaðarboðans, þess er friðinn kunngjörir. Hald hátíðir þínar, Júda, gjald heit þín, því að eyðandinn skal ekki framar um hjá þér fara – hann er með öllu afmáður.
About Nahúm Chapter 1
Read Nahúm Chapter 1 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Nahúm in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: Nahúm
Chapter: 1
Testament: Old Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Nahúm. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading Nahúm Chapter 1 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is Nahúm Chapter 1?
Nahúm Chapter 1 is part of the Book of Nahúm in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete Nahúm Chapter 1 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from Gamla Testamentið
Explore More from Nahum
- Nahum Chapter 3
- Nahum Chapter 2
- Nahum Chapter 1
- Nahum Chapter 1
- Náhum Chapter 2
- Nahum Chapter 1
- Nahum Chapter 2