Matteus Chapter 11

For English

Read Matteus Chapter 11 Online

Read Matteus Chapter 11 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Matteus in the New Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Matteus and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

Matteus 11

Kafli 11

1. Þá er Jesús hafði mælt svo fyrir við lærisveina sína tólf, hélt hann þaðan að kenna og prédika í borgum þeirra.

2. Jóhannes heyrði í fangelsinu um verk Krists. Þá sendi hann honum orð með lærisveinum sínum og spurði:

3. "Ert þú sá, sem koma skal, eða eigum vér að vænta annars?"

4. Jesús svaraði þeim: "Farið og kunngjörið Jóhannesi það, sem þér heyrið og sjáið:

5. Blindir fá sýn og haltir ganga, líkþráir hreinsast og daufir heyra, dauðir rísa upp, og fátækum er flutt fagnaðarerindi.

6. Og sæll er sá, sem hneykslast ekki á mér."

7. Þegar þeir voru farnir, tók Jesús að tala til mannfjöldans um Jóhannes: "Hvað fóruð þér að sjá í óbyggðum? Reyr af vindi skekinn?

8. Hvað fóruð þér að sjá? Prúðbúinn mann? Nei, prúðbúna menn er að finna í sölum konunga.

9. Til hvers fóruð þér? Að sjá spámann? Já, segi ég yður, og það meira en spámann.

10. Hann er sá, sem um er ritað: Sjá, ég sendi sendiboða minn á undan þér, er greiða mun veg þinn fyrir þér.

11. Sannlega segi ég yður: Enginn er sá af konu fæddur, sem meiri sé en Jóhannes skírari. En hinn minnsti í himnaríki er honum meiri.

12. Frá dögum Jóhannesar skírara og til þessa er ríki himnanna ofríki beitt, og ofríkismenn vilja hremma það.

13. Spámennirnir allir og lögmálið, allt fram að Jóhannesi, sögðu fyrir um þetta.

14. Og ef þér viljið við því taka, þá er hann Elía sá, sem koma skyldi.

15. Hver sem eyru hefur, hann heyri.

16. Við hvað á ég að líkja þessari kynslóð? Lík er hún börnum, sem á torgum sitja og kallast á:

17. ,Vér lékum fyrir yður á flautu og ekki vilduð þér dansa. Vér sungum yður sorgarljóð, og ekki vilduð þér syrgja.'

18. Jóhannes kom, át hvorki né drakk, og menn segja: ,Hann hefur illan anda.'

19. Mannssonurinn kom, át og drakk, og menn segja: ,Hann er mathákur og vínsvelgur, vinur tollheimtumanna og bersyndugra!' En spekin sannast af verkum sínum."

20. Þá tók hann að ávíta borgirnar, þar sem hann hafði gjört flest kraftaverk sín, fyrir að hafa ekki gjört iðrun.

21. "Vei þér, Korasín! Vei þér, Betsaída! Ef gjörst hefðu í Týrus og Sídon kraftaverkin, sem gjörðust í ykkur, hefðu þær löngu iðrast í sekk og ösku.

22. En ég segi ykkur: Týrus og Sídon mun bærilegra á dómsdegi en ykkur.

23. Og þú Kapernaum. Verður þú hafin til himins? Nei, til heljar mun þér steypt verða. Ef gjörst hefðu í Sódómu kraftaverkin, sem gjörðust í þér, þá stæði hún enn í dag.

24. En ég segi yður: Landi Sódómu mun bærilegra á dómsdegi en þér."

25. Á þeim tíma tók Jesús svo til orða: "Ég vegsama þig, faðir, herra himins og jarðar, að þú hefur hulið þetta spekingum og hyggindamönnum, en opinberað það smælingjum.

26. Já, faðir, svo var þér þóknanlegt.

27. Allt er mér falið af föður mínum, og enginn þekkir soninn nema faðirinn, né þekkir nokkur föðurinn nema sonurinn og sá er sonurinn vill opinbera hann.

28. Komið til mín, allir þér sem erfiði hafið og þungar byrðar, og ég mun veita yður hvíld.

29. Takið á yður mitt ok og lærið af mér, því að ég er hógvær og af hjarta lítillátur, og þá munuð þér finna hvíld sálum yðar.

30. Því að mitt ok er ljúft og byrði mín létt."

About Matteus Chapter 11

Read Matteus Chapter 11 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Matteus in the New Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: Matteus
Chapter: 11
Testament: New Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Matteus. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading Matteus Chapter 11 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is Matteus Chapter 11?

Matteus Chapter 11 is part of the Book of Matteus in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete Matteus Chapter 11 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from Matteus

  1. Matteus Chapter 2
  2. Matteus Chapter 5
  3. Matteus Chapter 3
  4. Matteus Chapter 6
  5. Matteus Chapter 18
  6. Matteus Chapter 16
  7. Matteus Chapter 13

Explore More from Nýja Testamentið

  1. Matteus Chapter 25
  2. Hebreabréfið Chapter 11
  3. Postulasagan Chapter 3
  4. Opinberunarbókin Chapter 8
  5. Postulasagan Chapter 19
  6. 1 Þessaloníkubréf Chapter 1
  7. Postulasagan Chapter 10

Related Chapters & Readings

  1. 1 Samúelsbók Chapter 7
  2. Jósúabók Chapter 8
  3. 1 Korintubréf Chapter 11
  4. 2 Korintubréf Chapter 2
  5. 5 Mósebók Chapter 17
  6. Sálmarnir Chapter 51
  7. Postulasagan Chapter 18
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *