5 Mósebók Chapter 23

For English

Read 5 Mósebók Chapter 23 Online

Read 5 Mósebók Chapter 23 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 5 Mósebók in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of 5 Mósebók and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

5 Mósebók 23

Kafli 23

1. Enginn sá, er meiddur hefir verið eistnamari eða hreðurskorinn, má vera í söfnuði Drottins.

2. Enginn bastarður má vera í söfnuði Drottins, jafnvel ekki tíundi maður frá honum má vera í söfnuði Drottins.

3. Enginn Ammóníti eða Móabíti má vera í söfnuði Drottins. Jafnvel ekki tíundi maður frá þeim má vera í söfnuði Drottins að eilífu,

4. vegna þess að þeir komu ekki í móti yður með brauð og vatn, þá er þér voruð á leiðinni frá Egyptalandi, og vegna þess að þeir keyptu í móti þér Bíleam Beórsson frá Petór í Mesópótamíu til þess að bölva þér.

5. En Drottinn Guð þinn vildi ekki hlýða á Bíleam, og Drottinn Guð þinn sneri bölvaninni í blessan fyrir þig, af því að Drottinn Guð þinn elskaði þig.

6. Þú skalt aldrei alla ævi þína láta þér annt um farsæld þeirra og velgengni.

7. Þú skalt eigi hafa andstyggð á Edómítum, því að þeir eru bræður þínir. Þú skalt eigi hafa andstyggð á Egyptum, því að þú dvaldir sem útlendingur í landi þeirra.

8. Afkomendur þeirra í þriðja lið mega vera í söfnuði Drottins.

9. Þegar þú fer í hernað móti óvinum þínum, þá skalt þú gæta þín við öllum illum hlutum.

10. Ef einhver, sem með þér er, er ekki hreinn vegna þess, sem hann hefir hent um nóttina, þá skal hann ganga út fyrir herbúðirnar og má eigi koma inn í herbúðirnar,

11. en að áliðnum degi skal hann lauga sig í vatni, og er sól er setst, má hann aftur ganga inn í herbúðirnar.

12. Þú skalt og hafa afvikinn stað fyrir utan herbúðirnar. Þangað skalt þú fara erinda þinna.

13. Og þú skalt hafa spaða í tækjum þínum, og er þú þarft að setjast niður úti, þá skalt þú grafa holu með honum, moka því næst aftur yfir og hylja saurindin.

14. Því að Drottinn Guð þinn er á gangi um herbúðir þínar til þess að frelsa þig og gefa óvini þína á þitt vald; fyrir því skulu herbúðir þínar helgar vera, svo að hann sjái ekkert óþokkalegt hjá þér og snúi sér burt frá þér.

15. Þú skalt eigi framselja í hendur húsbónda þræl, sem flúið hefir til þín frá húsbónda sínum.

16. Hann skal setjast að hjá þér, í landi þínu, á þeim stað, er hann sjálfur velur, í einhverri af borgum þínum, þar sem honum best líkar. Þú skalt ekki sýna honum ójöfnuð.

17. Á meðal Ísraels dætra má engin vera, sú er helgi sig saurlifnaði, og á meðal Ísraels sona má enginn vera, sá er helgi sig saurlifnaði.

18. Þú skalt eigi bera skækjulaun eða hundsgjald inn í hús Drottins Guðs þíns eftir neinu heiti, því að einnig hvort tveggja þetta er Drottni Guði þínum andstyggilegt.

19. Þú skalt ekki taka fjárleigu af bróður þínum, hvorki fyrir peninga, matvæli né nokkurn hlut annan, er ljá má gegn leigu.

20. Af útlendum manni mátt þú taka fjárleigu, en af bróður þínum mátt þú ekki taka fjárleigu, til þess að Drottinn Guð þinn blessi þig í öllu því, er þú tekur þér fyrir hendur í landinu, sem þú heldur nú inn í til þess að taka það til eignar.

21. Þegar þú gjörir Drottni Guði þínum heit, þá skalt þú ekki láta dragast að efna það, því að ella mun Drottinn Guð þinn krefjast þess af þér og það verða þér til syndar.

22. En þótt þú sleppir því að gjöra heit, þá hvílir engin sekt á þér fyrir það.

23. Það sem komið hefir yfir varir þínar, skalt þú halda og breyta eftir því, eins og þú sjálfviljuglega hefir heitið Drottni Guði þínum, það sem þú hefir talað með munni þínum.

24. Þegar þú kemur í víngarð náunga þíns, þá mátt þú eta vínber eins og þig lystir, þar til er þú ert mettur, en í ker þitt mátt þú ekkert láta.

25. Þegar þú kemur á kornakur náunga þíns, þá mátt þú tína öx með hendinni, en sigð mátt þú ekki sveifla yfir kornstöngum náunga þíns.

About 5 Mósebók Chapter 23

Read 5 Mósebók Chapter 23 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 5 Mósebók in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: 5 Mósebók
Chapter: 23
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading 5 Mósebók. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading 5 Mósebók Chapter 23 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is 5 Mósebók Chapter 23?

5 Mósebók Chapter 23 is part of the Book of 5 Mósebók in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete 5 Mósebók Chapter 23 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from 5 Mosebok

  1. 5 Mósebók Chapter 27
  2. 5 Mósebók Chapter 21
  3. 5 Mósebók Chapter 7
  4. 5 Mósebók Chapter 34
  5. 5 Mósebók Chapter 31
  6. 5 Mósebók Chapter 24
  7. 5 Mósebók Chapter 15

Explore More from Gamla Testamentið

  1. Jósúabók Chapter 23
  2. Sálmarnir Chapter 132
  3. 2 Samúelsbók Chapter 1
  4. 1 Mósebók Chapter 49
  5. Sefanía Chapter 1
  6. 1 Mósebók Chapter 39
  7. Sálmarnir Chapter 133

Related Chapters & Readings

  1. 2 Konungabók Chapter 11
  2. Jeremía Chapter 49
  3. Sálmarnir Chapter 120
  4. Jeremía Chapter 30
  5. 2 Samúelsbók Chapter 17
  6. 1 Mósebók Chapter 17
  7. Esterarbók Chapter 9
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *