Read Jóhannes Chapter 14 Online
Read Jóhannes Chapter 14 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Jóhannes in the New Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Jóhannes and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
Jóhannes 14
Kafli 14
1. "Hjarta yðar skelfist ekki. Trúið á Guð og trúið á mig.
2. Í húsi föður míns eru margar vistarverur. Væri ekki svo, hefði ég þá sagt yður, að ég færi burt að búa yður stað?
3. Þegar ég er farinn burt og hef búið yður stað, kem ég aftur og tek yður til mín, svo að þér séuð einnig þar sem ég er.
4. Veginn þangað, sem ég fer, þekkið þér."
5. Tómas segir við hann: "Herra, vér vitum ekki, hvert þú ferð, hvernig getum vér þá þekkt veginn?"
6. Jesús segir við hann: "Ég er vegurinn, sannleikurinn og lífið. Enginn kemur til föðurins, nema fyrir mig.
7. Ef þér hafið þekkt mig, munuð þér og þekkja föður minn. Héðan af þekkið þér hann og hafið séð hann."
8. Filippus segir við hann: "Herra, sýn þú oss föðurinn. Það nægir oss."
9. Jesús svaraði: "Ég hef verið með yður allan þennan tíma, og þú þekkir mig ekki, Filippus? Sá sem hefur séð mig, hefur séð föðurinn. Hvernig segir þú þá: ,Sýn þú oss föðurinn'?
10. Trúir þú ekki, að ég er í föðurnum og faðirinn í mér? Orðin, sem ég segi við yður, tala ég ekki af sjálfum mér. Faðirinn, sem í mér er, vinnur sín verk.
11. Trúið mér, að ég er í föðurnum og faðirinn í mér. Ef þér gerið það ekki, trúið þá vegna sjálfra verkanna.
12. Sannlega, sannlega segi ég yður: Sá sem trúir á mig, mun einnig gjöra þau verk, sem ég gjöri. Og hann mun gjöra meiri verk en þau, því ég fer til föðurins.
13. Og hvers sem þér biðjið í mínu nafni, það mun ég gjöra, svo að faðirinn vegsamist í syninum.
14. Ef þér biðjið mig einhvers í mínu nafni, mun ég gjöra það.
15. Ef þér elskið mig, munuð þér halda boðorð mín.
16. Ég mun biðja föðurinn, og hann mun gefa yður annan hjálpara, að hann sé hjá yður að eilífu,
17. anda sannleikans, sem heimurinn getur ekki tekið á móti, því hann sér hann ekki né þekkir. Þér þekkið hann, því hann er hjá yður og verður í yður.
18. Ekki mun ég skilja yður eftir munaðarlausa. Ég kem til yðar.
19. Innan skamms mun heimurinn ekki sjá mig framar. Þér munuð sjá mig, því ég lifi og þér munuð lifa.
20. Á þeim degi munuð þér skilja, að ég er í föður mínum og þér í mér og ég í yður.
21. Sá sem hefur boðorð mín og heldur þau, hann er sá sem elskar mig. En sá sem elskar mig, mun elskaður verða af föður mínum, og ég mun elska hann og birta honum sjálfan mig."
22. Júdas – ekki Ískaríot – sagði við hann: "Herra, hverju sætir það, að þú vilt birtast oss, en eigi heiminum?"
23. Jesús svaraði: "Sá sem elskar mig, varðveitir mitt orð, og faðir minn mun elska hann. Til hans munum við koma og gjöra okkur bústað hjá honum.
24. Sá sem elskar mig ekki, varðveitir ekki mín orð. Orðið, sem þér heyrið, er ekki mitt, heldur föðurins, sem sendi mig.
25. Þetta hef ég talað til yðar, meðan ég var hjá yður.
26. En hjálparinn, andinn heilagi, sem faðirinn mun senda í mínu nafni, mun kenna yður allt og minna yður á allt það, sem ég hef sagt yður.
27. Frið læt ég yður eftir, minn frið gef ég yður. Ekki gef ég yður eins og heimurinn gefur. Hjarta yðar skelfist ekki né hræðist.
28. Þér heyrðuð, að ég sagði við yður: ,Ég fer burt og kem til yðar.' Ef þér elskuðuð mig, yrðuð þér glaðir af því, að ég fer til föðurins, því faðirinn er mér meiri.
29. Nú hef ég sagt yður það, áður en það verður, svo að þér trúið, þegar það gerist.
30. Ég mun ekki framar tala margt við yður, því höfðingi heimsins kemur. Í mér á hann ekki neitt.
31. En heimurinn á að sjá, að ég elska föðurinn og gjöri eins og faðirinn hefur boðið mér. Standið upp, vér skulum fara héðan."
About Jóhannes Chapter 14
Read Jóhannes Chapter 14 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Jóhannes in the New Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: Jóhannes
Chapter: 14
Testament: New Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Jóhannes. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
- 📱 Hindi Android Bible App
- 📱 Hindi Christian Songs from waytochurch
- 📖 Read on Malayalam Christian Songs – madely
Continue Reading the Bible
Continue reading Jóhannes Chapter 14 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is Jóhannes Chapter 14?
Jóhannes Chapter 14 is part of the Book of Jóhannes in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete Jóhannes Chapter 14 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from Johannes
- Johannes Chapter 1
- Johannes Chapter 13
- Johannes Chapter 15
- Johannes Chapter 14
- Johannes Chapter 5
- Johannes Chapter 12
- Johannes Chapter 8
Explore More from Nýja Testamentið
- 1 Pétursbréf Chapter 2
- Matteus Chapter 1
- Matteus Chapter 22
- Lúkas Chapter 2
- Hebreabréfið Chapter 7
- Lúkas Chapter 24
- 1 Korintubréf Chapter 14