Jósúabók Chapter 17

For English

Read Jósúabók Chapter 17 Online

Read Jósúabók Chapter 17 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Jósúabók in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Jósúabók and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

Jósúabók 17

Kafli 17

1. Kynkvísl Manasse fékk sinn hlut, því að hann var frumgetningur Jósefs. Makír, frumgetningur Manasse, faðir Gíleaðs, fékk Gíleað og Basan, því að hann var bardagamaður.

2. Og hinir synir Manasse fengu sinn hluta eftir ættum þeirra: synir Abíesers, synir Heleks, synir Asríels, synir Sekems, synir Hefers og synir Semída. Þessir voru synir Manasse Jósefssonar í karllegginn, eftir ættum þeirra.

3. En Selofhað Hefersson, Gíleaðssonar, Makírssonar, Manassesonar, átti enga sonu, heldur dætur einar, og hétu þær Mahla, Nóa, Hogla, Milka og Tirsa.

4. Þær gengu fyrir Eleasar prest, Jósúa Núnsson og höfuðsmennina og sögðu: "Drottinn bauð Móse að gefa oss óðal meðal bræðra vorra." Gaf hann þeim þá eftir boði Drottins óðal meðal bræðra föður þeirra.

5. Komu þá tíu hlutir á Manasse, auk Gíleaðlands og Basans, sem liggja hinumegin Jórdanar,

6. með því að dætur Manasse fengu óðal meðal sona hans, en Gíleaðland fengu hinir synir Manasse.

7. Landamerki Manasse lágu frá Asser til Mikmetat, sem liggur fyrir austan Síkem; þaðan lágu landamærin til hægri, til þeirra sem bjuggu í En-Tappúa.

8. Tappúasveit fékk Manasse, en Tappúaborg, sem lá við takmörk Manasse, fengu Efraíms synir.

9. Þá lágu landamerkin niður að Kana-læk, fyrir sunnan lækinn. Þessar borgir heyra Efraím mitt á meðal borga Manasse. Þaðan lágu landamerki Manasse norðan með læknum og alla leið til sjávar.

10. Það sem var að sunnanverðu, átti Efraím, en það sem var að norðanverðu, átti Manasse, og hafið réð takmörkum hans. Að norðanverðu lágu lönd þeirra að Asser og að austanverðu að Íssakar.

11. En í Íssakar og Asser fékk Manasse: Bet Sean og smáborgirnar, er að liggja, Jibleam og smáborgirnar, er að liggja, íbúana í Dór og smáborgirnar, er að liggja, íbúana í Endór og smáborgirnar, er að liggja, íbúana í Taanak og smáborgirnar, er að liggja, og íbúana í Megiddó og smáborgirnar, er að liggja, þ. e. hæðirnar þrjár.

12. En ekki gátu Manasse synir stökkt íbúum þessara borga burt, og þannig fengu Kanaanítar haldið bústað í landi þessu.

13. En þegar Ísraelsmenn efldust, gjörðu þeir Kanaaníta sér vinnuskylda, en ráku þá ekki algjörlega burt.

14. Þá báru Jósefs synir sig upp við Jósúa og sögðu: "Hví hefir þú ekki gefið mér nema eitt hlutskipti og einn hlut að óðali, og er ég þó fjölmennur, þar sem Drottinn hefir blessað mig allt til þessa?"

15. Jósúa sagði við þá: "Ef þú ert orðinn svo fjölmennur, þá far þú upp í skóginn og ryð þér þar til bólstaða í landi Peresíta og Refaíta, ef of þröngt er orðið um þig á Efraímfjöllum."

16. Þá sögðu Jósefs synir: "Fjalllendið nægir oss eigi, því að allir Kanaanítar, þeir er á sléttlendinu búa, hafa járnvagna, bæði þeir sem búa í Bet Sean og þorpunum, er að liggja, og þeir sem búa á Jesreelsléttunni."

17. Þá sagði Jósúa við hús Jósefs, við Efraím og Manasse: "Þú ert orðinn fjölmennur, og styrkur þinn er mikill. Þú skalt fá meira en einn erfðahluta,

18. því að fjalllendið skal vera þitt. Ef það er skógi vaxið, þá verður þú að ryðja hann, þá munt þú og eignast fjalladrögin. Því að þú verður að reka Kanaanítana burt, fyrst þeir hafa járnvagna og fyrst þeir eru sterkir."

About Jósúabók Chapter 17

Read Jósúabók Chapter 17 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Jósúabók in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: Jósúabók
Chapter: 17
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Jósúabók. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading Jósúabók Chapter 17 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is Jósúabók Chapter 17?

Jósúabók Chapter 17 is part of the Book of Jósúabók in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete Jósúabók Chapter 17 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from Gamla Testamentið

  1. Míka Chapter 3
  2. Míka Chapter 2
  3. Míka Chapter 1
  4. Míka Chapter 7
  5. Míka Chapter 6
  6. Míka Chapter 5
  7. Míka Chapter 4

Explore More from josuabok

  1. Jósúabók Chapter 21
  2. Jósúabók Chapter 4
  3. Jósúabók Chapter 24
  4. Jósúabók Chapter 8
  5. Jósúabók Chapter 1
  6. Jósúabók Chapter 14
  7. Jósúabók Chapter 19

Related Chapters & Readings

  1. Sálmarnir Chapter 59
  2. Jesaja Chapter 62
  3. Sálmarnir Chapter 136
  4. Opinberunarbókin Chapter 6
  5. 1 Samúelsbók Chapter 2
  6. Hebreabréfið Chapter 7
  7. Matteus Chapter 12
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *