Orðskviðirnir Chapter 11

For English

Read Orðskviðirnir Chapter 11 Online

Read Orðskviðirnir Chapter 11 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Orðskviðirnir in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Orðskviðirnir and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

Orðskviðirnir 11

Kafli 11

1. Svikavog er Drottni andstyggð, en full vog yndi hans.

2. Komi hroki, kemur smán, en hjá lítillátum er viska.

3. Ráðvendni hreinskilinna leiðir þá, en undirferli svikulla tortímir þeim.

4. Auðæfi stoða ekki á degi reiðinnar, en réttlæti frelsar frá dauða.

5. Réttlæti hins ráðvanda gjörir veg hans sléttan, en hinn óguðlegi fellur um guðleysi sitt.

6. Réttlæti hinna hreinskilnu frelsar þá, en hinir svikulu ánetjast í eigin græðgi.

7. Þegar óguðlegur maður deyr, verður von hans að engu, og eftirvænting glæpamannanna er að engu orðin.

8. Hinn réttláti frelsast úr nauðum, og hinn óguðlegi kemur í hans stað.

9. Með munninum steypir hinn guðlausi náunga sínum í glötun, en hinir réttlátu frelsast fyrir þekkingu.

10. Borgin fagnar yfir gæfu réttlátra, og þegar óguðlegir farast, gjalla gleðiópin.

11. Borgin hefst fyrir blessun hreinskilinna, en fyrir munn óguðlegra steypist hún.

12. Óvitur maður sýnir náunga sínum fyrirlitningu, en hygginn maður þegir.

13. Sá er gengur um sem rógberi, lýstur upp leyndarmálum, en sá sem er staðfastur í lund, leynir sökinni.

14. Þar sem engin stjórn er, þar fellur þjóðin, en þar sem margir ráðgjafar eru, fer allt vel.

15. Hrapallega fer fyrir þeim, er gengur í ábyrgð fyrir annan mann, en sá sem hatar handsöl, er óhultur.

16. Yndisleg kona hlýtur sæmd, og hinir sterku hljóta auðæfi.

17. Kærleiksríkur maður gjörir sálu sinni gott, en hinn grimmi kvelur sitt eigið hold.

18. Hinn óguðlegi aflar sér svikuls ávinnings, en sá er réttlæti sáir, sannra launa.

19. Iðki einhver réttlæti, þá leiðir það til lífs, en ef hann eltir hið illa, leiðir það hann til dauða.

20. Andstyggð fyrir Drottni eru þeir, sem hafa rangsnúið hjarta, en yndi hans þeir, er breyta ráðvandlega.

21. Hér er höndin upp á það: Hinn vondi sleppur ekki óhegndur! en niðjar réttlátra komast undan.

22. Eins og gullhringur í svínstrýni, svo er fríð kona, sem enga siðprýði kann.

23. Óskir hinna réttlátu leiða aðeins til góðs, en vonir óguðlegra leiða yfir sig reiðidóm.

24. Sumir miðla öðrum mildilega, og eignast æ meira, aðrir halda í meira en rétt er, og verða þó fátækari.

25. Velgjörðasöm sál mettast ríkulega, og sá sem gefur öðrum að drekka, mun og sjálfur drykk hljóta.

26. Fólkið formælir þeim, sem heldur í kornið, en blessun kemur yfir höfuð þess, er selur það.

27. Sá sem leitar góðs, stundar það, sem velþóknanlegt er, en sá sem sækist eftir illu, verður fyrir því.

28. Sá sem treystir á auð sinn, hann fellur, en hinir réttlátu munu grænka eins og laufið.

29. Sá sem kemur ólagi á heimilishag sinn, erfir vind, og afglapinn verður þjónn hins vitra.

30. Ávöxtur hins réttláta er lífstré, og hinn vitri hyllir að sér hjörtun.

31. Sjá, hinn réttláti fær endurgjald hér á jörðu, hvað þá hinn óguðlegi og syndarinn?

About Orðskviðirnir Chapter 11

Read Orðskviðirnir Chapter 11 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Orðskviðirnir in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: Orðskviðirnir
Chapter: 11
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Orðskviðirnir. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading Orðskviðirnir Chapter 11 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is Orðskviðirnir Chapter 11?

Orðskviðirnir Chapter 11 is part of the Book of Orðskviðirnir in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete Orðskviðirnir Chapter 11 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from Gamla Testamentið

  1. Míka Chapter 3
  2. Míka Chapter 2
  3. Míka Chapter 1
  4. Míka Chapter 5
  5. Míka Chapter 6
  6. Míka Chapter 7
  7. Míka Chapter 4

Explore More from Ordskvidirnir

  1. Orðskviðirnir Chapter 27
  2. Orðskviðirnir Chapter 17
  3. Orðskviðirnir Chapter 13
  4. Orðskviðirnir Chapter 20
  5. Orðskviðirnir Chapter 25
  6. Orðskviðirnir Chapter 22
  7. Orðskviðirnir Chapter 18

Related Chapters & Readings

  1. Sálmarnir Chapter 74
  2. 1 Korintubréf Chapter 3
  3. 4 Mósebók Chapter 29
  4. 5 Mósebók Chapter 9
  5. Prédikarinn Chapter 8
  6. Jobsbók Chapter 12
  7. Harmljóðin Chapter 5
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *