Orðskviðirnir Chapter 10

For English

Read Orðskviðirnir Chapter 10 Online

Read Orðskviðirnir Chapter 10 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Orðskviðirnir in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Orðskviðirnir and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

Orðskviðirnir 10

Kafli 10

1. Orðskviðir Salómons. Vitur sonur gleður föður sinn, en heimskur sonur er móður sinni til mæðu.

2. Rangfenginn auður stoðar ekki, en réttlæti frelsar frá dauða.

3. Drottinn lætur ekki réttlátan mann þola hungur, en græðgi guðlausra hrindir hann frá sér.

4. Snauður verður sá, er með hangandi hendi vinnur, en auðs aflar iðin hönd.

5. Hygginn er sá, er á sumri safnar, en skammarlega fer þeim, er um kornsláttinn sefur.

6. Blessun kemur yfir höfuð hins réttláta, en munnur óguðlegra hylmir yfir ofbeldi.

7. Minning hins réttláta verður blessuð, en nafn óguðlegra fúnar.

8. Sá sem er vitur í hjarta, þýðist boðorðin, en sá sem er afglapi í munninum, steypir sér í glötun.

9. Sá sem gengur ráðvandlega, gengur óhultur, en sá sem gjörir vegu sína hlykkjótta, verður uppvís.

10. Sá sem deplar með auganu, veldur skapraun, en sá sem finnur að með djörfung, semur frið.

11. Munnur hins réttláta er lífslind, en munnur óguðlegra hylmir yfir ofbeldi.

12. Hatur vekur illdeilur, en kærleikurinn breiðir yfir alla bresti.

13. Viska er á vörum hyggins manns, en á baki hins óvitra hvín vöndurinn.

14. Vitrir menn geyma þekking sína, en munnur afglapans er yfirvofandi hrun.

15. Auður ríks manns er honum öflugt vígi, en fátækt hinna snauðu verður þeim að falli.

16. Afli hins réttláta verður til lífs, gróði hins óguðlega til syndar.

17. Sá fer lífsins leið, er varðveitir aga, en sá villist, er hafnar umvöndun.

18. Sá er leynir hatri, er lygari, en sá sem ber út óhróður, er heimskingi.

19. Málæðinu fylgja yfirsjónir, en sá breytir hyggilega, sem hefir taum á tungu sinni.

20. Tunga hins réttláta er úrvals silfur, vit hins óguðlega er lítils virði.

21. Varir hins réttláta fæða marga, en afglaparnir deyja úr vitleysu.

22. Blessun Drottins, hún auðgar, og erfiði mannsins bætir engu við hana.

23. Heimskingjanum er ánægja að fremja svívirðing, en viskan er hyggnum manni gleði.

24. Það sem hinn óguðlegi óttast, kemur yfir hann, en réttlátum gefst það, er þeir girnast.

25. Þegar vindbylurinn skellur á, er úti um hinn óguðlega, en hinn réttláti stendur á eilífum grundvelli.

26. Það sem edik er tönnunum og reykur augunum, það er letinginn þeim, er hann senda.

27. Ótti Drottins lengir lífdagana, en æviár óguðlegra verða stytt.

28. Eftirvænting réttlátra endar í gleði, en von óguðlegra verður að engu.

29. Vegur Drottins er athvarf sakleysisins, en hrun þeim, er aðhafast illt.

30. Hinn réttláti bifast ekki að eilífu, en hinir óguðlegu munu ekki byggja landið.

31. Munnur hins réttláta framleiðir visku, en fláráð tunga verður upprætt.

32. Varir hins réttláta vita, hvað geðfellt er, en munnur óguðlegra er eintóm flærð.

About Orðskviðirnir Chapter 10

Read Orðskviðirnir Chapter 10 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Orðskviðirnir in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: Orðskviðirnir
Chapter: 10
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Orðskviðirnir. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading Orðskviðirnir Chapter 10 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is Orðskviðirnir Chapter 10?

Orðskviðirnir Chapter 10 is part of the Book of Orðskviðirnir in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete Orðskviðirnir Chapter 10 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from Gamla Testamentið

  1. Míka Chapter 3
  2. Míka Chapter 2
  3. Míka Chapter 1
  4. Míka Chapter 7
  5. Míka Chapter 6
  6. Míka Chapter 5
  7. Míka Chapter 4

Explore More from Ordskvidirnir

  1. Orðskviðirnir Chapter 23
  2. Orðskviðirnir Chapter 19
  3. Orðskviðirnir Chapter 9
  4. Orðskviðirnir Chapter 31
  5. Orðskviðirnir Chapter 30
  6. Orðskviðirnir Chapter 26
  7. Orðskviðirnir Chapter 12

Related Chapters & Readings

  1. 2 Þessaloníkubréf Chapter 3
  2. 2 Konungabók Chapter 11
  3. Jeremía Chapter 25
  4. Jósúabók Chapter 9
  5. 2 Mósebók Chapter 9
  6. Sálmarnir Chapter 42
  7. Galatabréfið Chapter 4
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *