Read 1 Mósebók Chapter 7 Online
Read 1 Mósebók Chapter 7 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 1 Mósebók in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of 1 Mósebók and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
1 Mósebók 7
Kafli 7
1. Drottinn sagði við Nóa: "Gakk þú og allt fólk þitt í örkina, því að þig hefi ég séð réttlátan fyrir augliti mínu í þessari kynslóð.
2. Tak þú til þín af öllum hreinum dýrum sjö og sjö, karldýr og kvendýr, en af þeim dýrum, sem ekki eru hrein, tvö og tvö, karldýr og kvendýr.
3. Einnig af fuglum loftsins sjö og sjö, karlkyns og kvenkyns, til að viðhalda lífsstofni á allri jörðinni.
4. Því að sjö dögum liðnum mun ég láta rigna á jörðina fjörutíu daga og fjörutíu nætur, og ég mun afmá af jörðinni sérhverja skepnu, sem ég hefi gjört."
5. Og Nói gjörði allt eins og Drottinn bauð honum.
6. En Nói var sex hundruð ára gamall, þegar vatnsflóðið kom yfir jörðina.
7. Og Nói gekk í örkina, og synir hans og kona hans og sonakonur hans með honum, undan vatnsflóðinu.
8. Af hreinum dýrum og af þeim dýrum, sem ekki voru hrein, og af fuglum og af öllu, sem skríður á jörðinni,
9. kom tvennt og tvennt til Nóa í örkina, karlkyns og kvenkyns, eins og Guð hafði boðið Nóa.
10. Eftir sjö daga kom vatnsflóðið yfir jörðina.
11. Á sexhundraðasta aldursári Nóa, í öðrum mánuðinum, á seytjánda degi mánaðarins, á þeim degi opnuðust allar uppsprettur hins mikla undirdjúps og flóðgáttir himinsins lukust upp.
12. Og steypiregn dundi yfir jörðina fjörutíu daga og fjörutíu nætur.
13. Einmitt á þeim degi gekk Nói og Sem, Kam og Jafet, synir Nóa, og kona Nóa og þrjár sonakonur hans með þeim í örkina,
14. þau og öll villidýrin eftir sinni tegund og allur fénaðurinn eftir sinni tegund og öll skriðkvikindin, sem skríða á jörðinni, eftir sinni tegund, og allir fuglarnir eftir sinni tegund, allir smáfuglar, allt fleygt.
15. Og þau komu til Nóa í örkina tvö og tvö af öllu holdi, sem lífsandi var í.
16. Og þau, sem komu, gengu inn, karlkyns og kvenkyns af öllu holdi, eins og Guð hafði boðið honum. Og Drottinn læsti eftir honum.
17. Og flóðið var á jörðinni fjörutíu daga. Vatnið óx og lyfti örkinni, og hún hófst yfir jörðina.
18. Og vötnin mögnuðust og uxu stórum á jörðinni, en örkin flaut ofan á vatninu.
19. Og vötnin mögnuðust ákaflega á jörðinni, svo að öll hin háu fjöll, sem eru undir öllum himninum, fóru í kaf.
20. Fimmtán álna hátt óx vatnið, svo að fjöllin fóru í kaf.
21. Þá dó allt hold, sem hreyfðist á jörðinni, bæði fuglar, fénaður, villidýr og allir ormar, sem skriðu á jörðinni, og allir menn.
22. Allt sem hafði lífsanda í nösum sínum, allt sem var á þurrlendinu, það dó.
23. Og þannig afmáði hann sérhverja skepnu, sem var á jörðinni, bæði menn og fénað, skriðkvikindi og fugla loftsins. Það var afmáð af jörðinni. En Nói einn varð eftir, og það sem með honum var í örkinni.
24. Og vötnin mögnuðust á jörðinni hundrað og fimmtíu daga.
About 1 Mósebók Chapter 7
Read 1 Mósebók Chapter 7 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 1 Mósebók in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: 1 Mósebók
Chapter: 7
Testament: Old Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading 1 Mósebók. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading 1 Mósebók Chapter 7 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is 1 Mósebók Chapter 7?
1 Mósebók Chapter 7 is part of the Book of 1 Mósebók in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete 1 Mósebók Chapter 7 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from 1 Mosebok
- 1 Mósebók Chapter 1
- 1 Mósebók Chapter 29
- 1 Mósebók Chapter 14
- 1 Mósebók Chapter 18
- 1 Mósebók Chapter 5
- 1 Mósebók Chapter 19
- 1 Mósebók Chapter 8
Explore More from Gamla Testamentið
- Jobsbók Chapter 4
- Sálmarnir Chapter 60
- Dómarabókin Chapter 16
- 1 Kroníkubók Chapter 4
- 5 Mósebók Chapter 31
- Esterarbók Chapter 5
- Jesaja Chapter 10