2 Kroníkubók Chapter 12

For English

Read 2 Kroníkubók Chapter 12 Online

Read 2 Kroníkubók Chapter 12 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 2 Kroníkubók in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of 2 Kroníkubók and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

2 Kroníkubók 12

Kafli 12

1. En er konungdómur Rehabeams var fastur orðinn, og hann sjálfur orðinn fastur í sessi, þá yfirgaf hann lögmál Drottins og allur Ísrael með honum.

2. Á fimmta ríkisári Rehabeams fór Sísak Egyptalandskonungur herför móti Jerúsalem – af því að þeir höfðu sýnt Drottni ótrúmennsku –

3. með tólf hundruð vögnum og sextíu þúsund riddurum. Mátti eigi koma tölu á fólk það, er með honum kom frá Egyptalandi: Líbýumenn, Súkítar og Blálendingar.

4. Hann tók kastalaborgirnar, þær er voru í Júda, og komst allt til Jerúsalem.

5. En Semaja spámaður kom til Rehabeams og höfðingja Júda, er hörfað höfðu fyrir Sísak til Jerúsalem, og mælti til þeirra: "Svo segir Drottinn: Þér hafið yfirgefið mig, svo ofursel ég og yður á vald Sísaks."

6. Þá auðmýktu þeir sig, höfðingjar Ísraels og konungur, og sögðu: "Réttlátur er Drottinn!"

7. En er Drottinn sá, að þeir höfðu auðmýkt sig, kom orð Drottins til Semaja, svolátandi: "Þeir hafa auðmýkt sig; ég skal eigi tortíma þeim, heldur fulltingja þeim að nokkru, og eigi hella reiði minni yfir Jerúsalem fyrir Sísak.

8. Þó skulu þeir verða lýðskyldir honum, að þeir megi læra að þekkja muninn á að þjóna mér og á að þjóna heiðnum konungum."

9. Síðan fór Sísak Egyptalandskonungur herför móti Jerúsalem og tók fjársjóðu húss Drottins og fjársjóðu konungshallarinnar, tók það allt saman. Hann tók og gullskjölduna, er Salómon hafði gjöra látið.

10. Rehabeam konungur lét í þeirra stað gjöra eirskjöldu og fékk þá höfuðsmönnum lífvarðarins til geymslu, þeim er geyma dyra á höll konungs.

11. Og í hvert sinn, er konungur gekk í hús Drottins, komu varðliðsmennirnir og báru þá, og fóru síðan með þá aftur í herbergi varðliðsmannanna.

12. En er hann auðmýkti sig, hvarf reiði Drottins frá honum og tortímdi honum eigi með öllu; enn þá var þó eitthvað gott til í Júda.

13. Og Rehabeam konungur efldist í Jerúsalem og sat að völdum, því að Rehabeam hafði einn um fertugt, þá er hann varð konungur, og seytján ár ríkti hann í Jerúsalem, borginni sem Drottinn hafði útvalið af öllum ættkvíslum Ísraels til þess að láta nafn sitt búa þar. En móðir hans hét Naama og var ammónítísk.

14. Og hann breytti illa, því að hann lagði eigi hug á að leita Drottins.

15. En saga Rehabeams, frá upphafi til enda, er rituð í Sögu Semaja spámanns og Íddós sjáanda, í ættartölunum. Og ófriður stóð ávallt milli Rehabeams og Jeróbóams.

16. Og Rehabeam lagðist til hvíldar hjá feðrum sínum og var jarðaður í Davíðsborg. Og Abía sonur hans tók ríki eftir hann.

About 2 Kroníkubók Chapter 12

Read 2 Kroníkubók Chapter 12 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 2 Kroníkubók in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: 2 Kroníkubók
Chapter: 12
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading 2 Kroníkubók. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading 2 Kroníkubók Chapter 12 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is 2 Kroníkubók Chapter 12?

2 Kroníkubók Chapter 12 is part of the Book of 2 Kroníkubók in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete 2 Kroníkubók Chapter 12 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from 2 Kronikubok

  1. 2 Kroníkubók Chapter 17
  2. 2 Kroníkubók Chapter 4
  3. 2 Kroníkubók Chapter 35
  4. 2 Kroníkubók Chapter 26
  5. 2 Kroníkubók Chapter 24
  6. 2 Kroníkubók Chapter 19
  7. 2 Kroníkubók Chapter 16

Explore More from Gamla Testamentið

  1. Daníel Chapter 6
  2. Sálmarnir Chapter 38
  3. Sakaría Chapter 9
  4. Jesaja Chapter 47
  5. Jeremía Chapter 10
  6. Jobsbók Chapter 3
  7. 1 Mósebók Chapter 28

Related Chapters & Readings

  1. Esekíel Chapter 27
  2. Jeremía Chapter 51
  3. Sálmarnir Chapter 26
  4. 1 Tímóteusarbréf Chapter 2
  5. Lúkas Chapter 16
  6. 1 Mósebók Chapter 13
  7. Sálmarnir Chapter 82
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *