Jeremía Chapter 19

For English

Read Jeremía Chapter 19 Online

Read Jeremía Chapter 19 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Jeremía in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Jeremía and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

Jeremía 19

Kafli 19

1. Svo sagði Drottinn: Far og kaup krús eftir leirkerasmið, tak því næst með þér nokkra af helstu mönnum þjóðarinnar og nokkra af helstu prestunum

2. og gakk út í Hinnomssonar-dal, sem er fyrir utan Leirbrotahlið, og kunngjör þar þau orð, sem ég mun tala til þín,

3. og seg: Heyrið orð Drottins, þér Júdakonungar og Jerúsalembúar! Svo segir Drottinn allsherjar, Ísraels Guð: Sjá, ég mun leiða ógæfu yfir þennan stað, svo að óma mun fyrir báðum eyrum allra þeirra, er það heyra.

4. Af því að þeir yfirgáfu mig og óvirtu þennan stað og færðu á honum reykelsisfórnir öðrum guðum, sem þeir ekki þekktu, hvorki þeir né feður þeirra né Júdakonungar, og fylltu þennan stað blóði saklausra manna

5. og byggðu Baals-fórnarhæðir til þess að brenna sonu sína í eldi sem brennifórn Baal til handa, sem ég hefi hvorki skipað né mælt svo fyrir og mér hefir aldrei til hugar komið.

6. Sjá, fyrir því munu þeir dagar koma – segir Drottinn – að þessi staður mun ekki framar nefndur verða "Tófet" og "Hinnomssonar-dalur", heldur "Drápsdalur".

7. Þá mun ég ónýta ráð Júda og Jerúsalem á þessum stað og láta þá falla fyrir sverði, er þeir flýja undan óvinum sínum, og fyrir hendi þeirra, er sitja um líf þeirra, en lík þeirra mun ég gefa fuglum himinsins og dýrum jarðarinnar að æti,

8. og ég mun gjöra þessa borg að skelfingu og háði: Hver sá, er hér fer um, mun skelfast og hæðast að öllum áföllunum, sem hún hefir orðið fyrir.

9. Og ég mun láta þá eta hold sona sinna og hold dætra sinna, og þeir munu eta hver annars hold í neyð þeirri og þrenging, er óvinir þeirra og þeir, er sitja um líf þeirra, munu koma þeim í.

10. Og þú skalt brjóta krúsina fyrir augum þeirra manna, sem með þér hafa farið,

11. og segja við þá: Svo segir Drottinn allsherjar: Svo mun ég brjóta þessa þjóð og þessa borg, eins og menn brjóta leirker, sem ekki verður gjört heilt aftur, og í Tófet mun verða jarðað, með því að ekkert pláss er til að jarða í.

12. Þannig mun ég fara með þennan stað – segir Drottinn – og þá, er hér búa, svo að ég gjöri þessa borg að Tófet.

13. Þá skulu hús Jerúsalem og hús Júdakonunga verða óhrein, eins og Tófet-staðurinn, öll þau hús, þar sem menn hafa fært öllum himinsins her reykelsisfórnir á þökunum og öðrum guðum dreypifórnir.

14. En er Jeremía kom frá Tófet, þangað sem Drottinn hafði sent hann til þess að spá, nam hann staðar í forgarði musteris Drottins og sagði við allan lýðinn:

15. Svo segir Drottinn allsherjar, Ísraels Guð: Sjá, ég leiði yfir þessa borg og allar borgir, er henni tilheyra, alla þá ógæfu, er ég hefi hótað henni, af því að þeir hafa verið harðsvíraðir og ekki hlýtt orðum mínum.

About Jeremía Chapter 19

Read Jeremía Chapter 19 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Jeremía in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: Jeremía
Chapter: 19
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Jeremía. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading Jeremía Chapter 19 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is Jeremía Chapter 19?

Jeremía Chapter 19 is part of the Book of Jeremía in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete Jeremía Chapter 19 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from Gamla Testamentið

  1. Míka Chapter 1
  2. Míka Chapter 3
  3. Míka Chapter 2
  4. Míka Chapter 7
  5. Míka Chapter 5
  6. Míka Chapter 4
  7. Míka Chapter 6

Explore More from Jeremia

  1. Jeremia Chapter 27
  2. Jeremía Chapter 36
  3. Jeremia Chapter 18
  4. Jeremia Chapter 49
  5. Jeremia Chapter 5
  6. Jeremia Chapter 9
  7. Jeremía Chapter 3

Related Chapters & Readings

  1. Lúkas Chapter 18
  2. Orðskviðirnir Chapter 31
  3. Jobsbók Chapter 21
  4. Sálmarnir Chapter 44
  5. 1 Korintubréf Chapter 9
  6. Jeremía Chapter 15
  7. Esrabók Chapter 8
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *