Read Sálmarnir Chapter 55 Online
Read Sálmarnir Chapter 55 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Sálmarnir in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Sálmarnir and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
Sálmarnir 55
Kafli 55
1. Hlýð, ó Guð, á bæn mína, fel þig eigi fyrir grátbeiðni minni.
2. (55:3) Veit mér athygli og svara mér. Ég kveina í harmi mínum og styn
3. (55:4) sakir háreysti óvinarins, sakir hróps hins óguðlega, því að þeir steypa yfir mig ógæfu og ofsækja mig grimmilega.
4. (55:5) Hjartað berst ákaft í brjósti mér, ógnir dauðans falla yfir mig,
5. (55:6) ótti og skelfing er yfir mig komin, og hryllingur fer um mig allan,
6. (55:7) svo að ég segi: "Ó að ég hefði vængi eins og dúfan, þá skyldi ég fljúga burt og finna hvíldarstað,
7. (55:8) já, ég skyldi svífa langt burt, ég skyldi gista í eyðimörkinni. [Sela]
8. (55:9) Ég skyldi flýta mér að leita mér hælis fyrir þjótandi vindum og veðri."
9. (55:10) Rugla, Drottinn, sundra tungum þeirra, því að ég sé kúgun og deilur í borginni.
10. (55:11) Dag og nótt ganga þær um á múrum hennar, en ógæfa og armæða eru þar inni fyrir.
11. (55:12) Glötun er inni í henni, ofbeldi og svik víkja eigi burt frá torgi hennar.
12. (55:13) Því að það er eigi óvinur sem hæðir mig – það gæti ég þolað, og eigi hatursmaður minn er hreykir sér yfir mig – fyrir honum gæti ég farið í felur,
13. (55:14) heldur þú, jafningi minn, vinur minn og kunningi,
14. (55:15) við sem vorum ástúðarvinir, sem gengum í eindrægni saman í Guðs hús.
15. (55:16) Dauðinn komi yfir þá; stígi þeir lifandi niður til Heljar, því að illska er í bústöðum þeirra, í hjörtum þeirra.
16. (55:17) En ég hrópa til Guðs, og Drottinn mun hjálpa mér.
17. (55:18) Kvöld og morgna og um miðjan dag harma ég og styn, og hann heyrir raust mína.
18. (55:19) Hann endurleysir sál mína og gefur mér frið, svo að þeir geta eigi nálgast mig, því að mótstöðumenn mínir eru margir.
19. (55:20) Guð mun heyra, og hann er ríkir frá eilífð mun lægja þá. [Sela] Þeir breytast ekki og óttast eigi Guð.
20. (55:21) Vinur minn lagði hendur á þann er lifði í sátt við hann, hann rauf sáttmál sitt.
21. (55:22) Hálli en smjör er tunga hans, en ófriður er í hjarta hans, mýkri en olía eru orð hans, og þó brugðin sverð.
22. (55:23) Varpa áhyggjum þínum á Drottin, hann mun bera umhyggju fyrir þér, hann mun eigi að eilífu láta réttlátan mann verða valtan á fótum.
23. (55:24) Og þú, ó Guð, munt steypa þeim niður í grafardjúpið. Morðingjar og svikarar munu eigi ná hálfum aldri, en ég treysti þér.
About Sálmarnir Chapter 55
Read Sálmarnir Chapter 55 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Sálmarnir in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: Sálmarnir
Chapter: 55
Testament: Old Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Sálmarnir. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading Sálmarnir Chapter 55 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is Sálmarnir Chapter 55?
Sálmarnir Chapter 55 is part of the Book of Sálmarnir in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete Sálmarnir Chapter 55 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from Gamla Testamentið
Explore More from Salmar
- Sálmarnir Chapter 89
- Sálmarnir Chapter 51
- Sálmarnir Chapter 9
- Sálmarnir Chapter 83
- Sálmarnir Chapter 150
- Sálmarnir Chapter 1
- Sálmarnir Chapter 10