Read Sálmarnir Chapter 22 Online
Read Sálmarnir Chapter 22 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Sálmarnir in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Sálmarnir and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
Sálmarnir 22
Kafli 22
1. Guð minn, Guð minn, hví hefir þú yfirgefið mig? Ég hrópa, en hjálp mín er fjarlæg.
2. (22:3) "Guð minn!" hrópa ég um daga, en þú svarar ekki, og um nætur, en ég finn enga fró.
3. (22:4) Og samt ert þú Hinn heilagi, sá er ríkir uppi yfir lofsöngvum Ísraels.
4. (22:5) Þér treystu feður vorir, þeir treystu þér, og þú hjálpaðir þeim,
5. (22:6) til þín hrópuðu þeir, og þeim var bjargað, þér treystu þeir og urðu ekki til skammar.
6. (22:7) En ég er maðkur og eigi maður, til spotts fyrir menn og fyrirlitinn af lýðnum.
7. (22:8) Allir þeir er sjá mig gjöra gys að mér, bregða grönum og hrista höfuðið.
8. (22:9) "Hann fól málefni sitt Drottni. Hann hjálpi honum! hann frelsi hann, því að hann hefir þóknun á honum!"
9. (22:10) Já, þú leiddir mig fram af móðurlífi, lést mig liggja öruggan við brjóst móður minnar.
10. (22:11) Til þín var mér varpað frá móðurskauti, frá móðurlífi ert þú Guð minn.
11. (22:12) Ver eigi fjarri mér, því að neyðin er nærri, og enginn hjálpar.
12. (22:13) Sterk naut umkringja mig, Basans uxar slá hring um mig.
13. (22:14) Þeir glenna upp ginið í móti mér sem bráðsólgið, öskrandi ljón.
14. (22:15) Mér er hellt út sem vatni, og öll bein mín eru gliðnuð sundur; hjarta mitt er sem vax, bráðnað sundur í brjósti mér;
15. (22:16) gómur minn er þurr sem brenndur leir, og tungan loðir föst í munni mér. Og í duft dauðans leggur þú mig.
16. (22:17) Því að hundar umkringja mig, hópur illvirkja slær hring um mig, hendur mínar og fætur hafa þeir gegnumstungið.
17. (22:18) Ég get talið öll mín bein – þeir horfa á og hafa mig að augnagamni,
18. (22:19) þeir skipta með sér klæðum mínum og kasta hlut um kyrtil minn.
19. (22:20) En þú, ó Drottinn, ver eigi fjarri! þú styrkur minn, skunda mér til hjálpar,
20. (22:21) frelsa líf mitt undan sverðinu og sál mína undan hundunum.
21. (22:22) Frelsa mig úr gini ljónsins, frá hornum vísundarins. Þú hefir bænheyrt mig!
22. (22:23) Ég vil kunngjöra bræðrum mínum nafn þitt, í söfnuðinum vil ég lofa þig!
23. (22:24) Þér sem óttist Drottin, lofið hann! Tignið hann, allir niðjar Jakobs! Dýrkið hann, allir niðjar Ísraels!
24. (22:25) Því að hann hefir eigi fyrirlitið né virt að vettugi neyð hins hrjáða og eigi hulið auglit sitt fyrir honum, heldur heyrt, er hann hrópaði til hans.
25. (22:26) Frá þér kemur lofsöngur minn í stórum söfnuði, heit mín vil ég efna frammi fyrir þeim er óttast hann.
26. (22:27) Snauðir munu eta og verða mettir, þeir er leita Drottins munu lofa hann. Hjörtu yðar lifni við að eilífu.
27. (22:28) Endimörk jarðar munu minnast þess og hverfa aftur til Drottins og allar ættir þjóðanna falla fram fyrir augliti hans.
28. (22:29) Því að ríkið heyrir Drottni, og hann er drottnari yfir þjóðunum.
29. (22:30) Já, fyrir honum munu öll stórmenni jarðar falla fram, fyrir honum munu beygja sig allir þeir er hníga í duftið. En ég vil lifa honum,
30. (22:31) niðjar mínir munu þjóna honum. Komandi kynslóðum mun sagt verða frá Drottni,
31. (22:32) og lýð sem enn er ófæddur mun boðað réttlæti hans, að hann hefir framkvæmt það.
About Sálmarnir Chapter 22
Read Sálmarnir Chapter 22 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Sálmarnir in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: Sálmarnir
Chapter: 22
Testament: Old Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Sálmarnir. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading Sálmarnir Chapter 22 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is Sálmarnir Chapter 22?
Sálmarnir Chapter 22 is part of the Book of Sálmarnir in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete Sálmarnir Chapter 22 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from Gamla Testamentið
Explore More from Salmar
- Sálmarnir Chapter 95
- Sálmarnir Chapter 16
- Sálmarnir Chapter 84
- Sálmarnir Chapter 70
- Sálmarnir Chapter 141
- Sálmarnir Chapter 117
- Sálmarnir Chapter 118