Read Sálmarnir Chapter 102 Online
Read Sálmarnir Chapter 102 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Sálmarnir in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Sálmarnir and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
Sálmarnir 102
Kafli 102
1. Drottinn, heyr þú bæn mína og hróp mitt berist til þín.
2. (102:3) Byrg eigi auglit þitt fyrir mér, þegar ég er í nauðum staddur, hneig að mér eyra þitt, þegar ég kalla, flýt þér að bænheyra mig.
3. (102:4) Því að dagar mínir hverfa sem reykur, bein mín brenna sem eldur.
4. (102:5) Hjarta mitt er mornað og þornað sem gras, því að ég gleymi að neyta brauðs míns.
5. (102:6) Sakir kveinstafa minna er ég sem skinin bein.
6. (102:7) Ég líkist pelíkan í eyðimörkinni, er sem ugla í rústum.
7. (102:8) Ég ligg andvaka og styn eins og einmana fugl á þaki.
8. (102:9) Daginn langan smána óvinir mínir mig, fjandmenn mínir formæla með nafni mínu.
9. (102:10) Ég et ösku sem brauð og blanda drykk minn tárum
10. (102:11) sakir reiði þinnar og bræði, af því að þú hefir tekið mig upp og varpað mér burt.
11. (102:12) Dagar mínir eru sem hallur skuggi, og ég visna sem gras.
12. (102:13) En þú, Drottinn, ríkir að eilífu, og nafn þitt varir frá kyni til kyns.
13. (102:14) Þú munt rísa upp til þess að miskunna Síon, því að tími er kominn til þess að líkna henni, já, stundin er komin.
14. (102:15) Þjónar þínir elska steina hennar og harma yfir öskuhrúgum hennar.
15. (102:16) Þá munu þjóðirnar óttast nafn Drottins og allir konungar jarðarinnar dýrð þína,
16. (102:17) því að Drottinn byggir upp Síon og birtist í dýrð sinni.
17. (102:18) Hann snýr sér að bæn hinna nöktu og fyrirlítur eigi bæn þeirra.
18. (102:19) Þetta skal skráð fyrir komandi kynslóð, og þjóð, sem enn er ósköpuð, skal lofa Drottin.
19. (102:20) Því að Drottinn lítur niður af sínum helgu hæðum, horfir frá himni til jarðar
20. (102:21) til þess að heyra andvarpanir bandingjanna og leysa börn dauðans,
21. (102:22) að þau mættu kunngjöra nafn Drottins í Síon og lofstír hans í Jerúsalem,
22. (102:23) þegar þjóðirnar safnast saman og konungsríkin til þess að þjóna Drottni.
23. (102:24) Hann hefir bugað kraft minn á ferð minni, stytt daga mína.
24. (102:25) Ég segi: Guð minn, tak mig eigi burt á miðri ævinni. Ár þín vara frá kyni til kyns.
25. (102:26) Í öndverðu grundvallaðir þú jörðina, og himnarnir eru verk handa þinna.
26. (102:27) Þeir líða undir lok, en þú varir. Þeir fyrnast sem fat, þú skiptir þeim sem klæðum, og þeir hverfa.
27. (102:28) En þú ert hinn sami, og þín ár fá engan enda.
28. (102:29) Synir þjóna þinna munu búa kyrrir og niðjar þeirra standa stöðugir fyrir augliti þínu.
About Sálmarnir Chapter 102
Read Sálmarnir Chapter 102 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Sálmarnir in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: Sálmarnir
Chapter: 102
Testament: Old Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Sálmarnir. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading Sálmarnir Chapter 102 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is Sálmarnir Chapter 102?
Sálmarnir Chapter 102 is part of the Book of Sálmarnir in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete Sálmarnir Chapter 102 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from Gamla Testamentið
Explore More from Salmar
- Sálmarnir Chapter 81
- Sálmarnir Chapter 123
- Sálmarnir Chapter 140
- Sálmarnir Chapter 86
- Sálmarnir Chapter 118
- Sálmarnir Chapter 24
- Sálmarnir Chapter 12