Read Sálmarnir Chapter 44 Online
Read Sálmarnir Chapter 44 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Sálmarnir in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Sálmarnir and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
Sálmarnir 44
Kafli 44
1. Guð, með eyrum vorum höfum vér heyrt, feður vorir hafa sagt oss frá dáð þeirri, er þú drýgðir á dögum þeirra, frá því, er þú gjörðir forðum daga.
2. (44:3) Þú stökktir burt þjóðum, en gróðursettir þá, þú lékst lýði harðlega, en útbreiddir þá.
3. (44:4) Eigi unnu þeir landið með sverðum sínum, og eigi hjálpaði armleggur þeirra þeim, heldur hægri hönd þín og armleggur þinn og ljós auglitis þíns, því að þú hafðir þóknun á þeim.
4. (44:5) Þú einn ert konungur minn, ó Guð, bjóð út hjálp Jakobsætt til handa.
5. (44:6) Fyrir þína hjálp rekum vér fjandmenn vora undir, og fyrir þitt nafn troðum vér mótstöðumenn vora fótum.
6. (44:7) Ég treysti eigi boga mínum, og sverð mitt veitir mér eigi sigur,
7. (44:8) heldur veitir þú oss sigur yfir fjandmönnum vorum og lætur hatursmenn vora verða til skammar.
8. (44:9) Af Guði hrósum vér oss ætíð og lofum nafn þitt að eilífu. [Sela]
9. (44:10) Og þó hefir þú útskúfað oss og látið oss verða til skammar og fer eigi út með hersveitum vorum.
10. (44:11) Þú lætur oss hörfa undan fjandmönnum, og hatursmenn vorir taka herfang.
11. (44:12) Þú selur oss fram sem fénað til slátrunar og tvístrar oss meðal þjóðanna.
12. (44:13) Þú selur lýð þinn fyrir gjafverð, tekur ekkert verð fyrir hann.
13. (44:14) Þú lætur oss verða til háðungar nágrönnum vorum, til spotts og athlægis þeim er búa umhverfis oss.
14. (44:15) Þú gjörir oss að orðskvið meðal lýðanna, lætur þjóðirnar hrista höfuðið yfir oss.
15. (44:16) Stöðuglega stendur smán mín mér fyrir sjónum, og skömm hylur auglit mitt,
16. (44:17) af því ég verð að heyra spott og lastmæli og horfa á óvininn og hinn hefnigjarna.
17. (44:18) Allt þetta hefir mætt oss, og þó höfum vér eigi gleymt þér og eigi rofið sáttmála þinn.
18. (44:19) Hjarta vort hefir eigi horfið frá þér né skref vor beygt út af vegi þínum,
19. (44:20) en samt hefir þú kramið oss sundur á stað sjakalanna og hulið oss niðdimmu.
20. (44:21) Ef vér hefðum gleymt nafni Guðs vors og fórnað höndum til útlendra guða,
21. (44:22) mundi Guð eigi verða þess áskynja, hann sem þekkir leyndarmál hjartans?
22. (44:23) En þín vegna erum vér stöðugt drepnir, erum metnir sem sláturfé.
23. (44:24) Vakna! Hví sefur þú, Drottinn? Vakna, útskúfa oss eigi um aldur!
24. (44:25) Hví hylur þú auglit þitt, gleymir eymd vorri og kúgun?
25. (44:26) Sál vor er beygð í duftið, líkami vor loðir við jörðina.
26. (44:27) Rís upp, veit oss lið og frelsa oss sakir miskunnar þinnar.
About Sálmarnir Chapter 44
Read Sálmarnir Chapter 44 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Sálmarnir in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: Sálmarnir
Chapter: 44
Testament: Old Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Sálmarnir. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading Sálmarnir Chapter 44 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is Sálmarnir Chapter 44?
Sálmarnir Chapter 44 is part of the Book of Sálmarnir in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete Sálmarnir Chapter 44 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from Gamla Testamentið
Explore More from Salmar
- Sálmarnir Chapter 2
- Sálmarnir Chapter 46
- Sálmarnir Chapter 7
- Sálmarnir Chapter 15
- Sálmarnir Chapter 82
- Sálmarnir Chapter 90
- Sálmarnir Chapter 75