Esrabók Chapter 9

For English

Read Esrabók Chapter 9 Online

Read Esrabók Chapter 9 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Esrabók in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Esrabók and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

Esrabók 9

Kafli 9

1. Þegar þessu var lokið, komu höfðingjarnir til mín og sögðu: "Ísraelslýður og prestarnir og levítarnir hafa ekki haldið sér frá hinum heiðnu íbúum landsins, sem skylt hefði verið vegna viðurstyggða þeirra, frá Kanaanítum, Hetítum, Peresítum, Jebúsítum, Ammónítum, Móabítum, Egyptum og Amórítum,

2. því að þeir hafa tekið sér og sonum sínum konur af dætrum þeirra, og þannig hefir hinn heilagi ættstofn haft mök við hina heiðnu íbúa landsins, og hafa höfðingjarnir og yfirmennirnir gengið á undan í þessu tryggðrofi."

3. Þegar ég heyrði þetta, reif ég kyrtil minn og yfirhöfn mína, reytti hár mitt og skegg og sat agndofa.

4. Þá söfnuðust til mín allir þeir, er óttuðust orð Ísraels Guðs, út af tryggðrofi hinna hernumdu, en ég sat agndofa allt til kveldfórnar.

5. En er að kveldfórninni var komið, stóð ég upp frá föstu minni og reif um leið enn að nýju kyrtil minn og yfirhöfn mína. Síðan féll ég á kné, fórnaði höndum til Drottins, Guðs míns,

6. og sagði: "Guð minn, ég fyrirverð mig og blygðast mín að hefja auglit mitt til þín, ó minn Guð! Því að misgjörðir vorar eru vaxnar oss yfir höfuð og sekt vor orðin svo mikil, að hún nær til himins.

7. Allt frá dögum feðra vorra fram á þennan dag höfum vér verið í mikilli sekt, og vegna misgjörða vorra höfum vér verið ofurseldir, konungar vorir og prestar vorir, í hendur konunga heiðinna landa, undir sverðin, til herleiðingar, til ráns og til háðungar, eins og enn í dag á sér stað.

8. En nú höfum vér um örskamma stund hlotið miskunn frá Drottni, Guði vorum, með því að hann lét oss eftir verða leifar, er af komust, og veitti oss bólfestu á sínum heilaga stað, til þess að Guð vor léti gleðina skína úr augum vorum og veitti oss ofurlítinn nýjan lífsþrótt í ánauð vorri.

9. Því að ánauðugir erum vér. Þó hefir Guð vor eigi yfirgefið oss í ánauð vorri, heldur hagað því svo, að vér fundum náð fyrir augliti Persakonunga, svo að þeir veittu oss nýjan lífsþrótt til að koma upp musteri Guðs vors og reisa það úr rústum og útvega oss umgirtan bústað í Júda og Jerúsalem.

10. Og hvað eigum vér nú að segja, Guð vor, eftir allt þetta? Því að vér höfum yfirgefið boðorð þín,

11. sem þú hefir fyrir oss lagt fyrir munn þjóna þinna, spámannanna, er þú sagðir: ,Landið, er þér haldið inn í til þess að taka það til eignar, er óhreint land vegna saurugleika hinna heiðnu landsbúa, vegna viðurstyggða þeirra, er þeir í saurgun sinni hafa fyllt það með landshornanna milli.

12. Fyrir því skuluð þér hvorki gefa dætur yðar sonum þeirra né taka dætur þeirra sonum yðar að konum, og um aldur og ævi skuluð þér ekki leitast við að efla farsæld þeirra og velgengni, til þess að þér eflist og fáið að njóta landsins gæða og megið láta börnum yðar það eftir í arf um aldur og ævi.'

13. Og eftir allt það, sem yfir oss er komið vegna vondra verka vorra og vorrar miklu sektar – því að þú, Guð vor, hefir vægt oss og ekki hegnt oss, svo sem vér áttum skilið fyrir misgjörð vora, og veitt oss slíkar leifar –

14. ættum vér þá enn að nýju að brjóta boðorð þín og mægjast við þær þjóðir, sem aðhafast slíkar svívirðingar? Mundir þú eigi reiðast oss, þar til er vér værum gjöreyddir, svo að engar leifar væru eftir né nokkrir þeir, er undan hefðu komist?

15. Drottinn, Ísraels Guð, þú ert réttlátur! Vér erum eftir skildir sem leifar, er undan hafa komist, svo sem sjá má þann dag í dag. Sjá, vér stöndum frammi fyrir þér í sekt vorri, því að það er eigi unnt að standast fyrir þér vegna þessa."

About Esrabók Chapter 9

Read Esrabók Chapter 9 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Esrabók in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: Esrabók
Chapter: 9
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Esrabók. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading Esrabók Chapter 9 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is Esrabók Chapter 9?

Esrabók Chapter 9 is part of the Book of Esrabók in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete Esrabók Chapter 9 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from esrabok

  1. Esrabók Chapter 4
  2. Esrabók Chapter 1
  3. Esrabók Chapter 8
  4. Esrabók Chapter 5
  5. Esrabók Chapter 3
  6. Esrabók Chapter 10
  7. Esrabók Chapter 7

Explore More from Gamla Testamentið

  1. 5 Mósebók Chapter 12
  2. Sálmarnir Chapter 124
  3. 1 Samúelsbók Chapter 2
  4. Míka Chapter 2
  5. Jeremía Chapter 25
  6. 1 Mósebók Chapter 15
  7. Míka Chapter 6

Related Chapters & Readings

  1. Jeremía Chapter 21
  2. Jesaja Chapter 44
  3. Sálmarnir Chapter 60
  4. 5 Mósebók Chapter 13
  5. 1 Tímóteusarbréf Chapter 5
  6. Malakí Chapter 2
  7. 1 Korintubréf Chapter 4
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *