Read Orðskviðirnir Chapter 29 Online
Read Orðskviðirnir Chapter 29 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Orðskviðirnir in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Orðskviðirnir and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
Orðskviðirnir 29
Kafli 29
1. Sá sem oftlega hefir ávítaður verið, en þverskallast þó, mun skyndilega knosaður verða, og engin lækning fást.
2. Þegar réttlátum fjölgar, gleðst þjóðin, en þegar óguðlegir drottna, andvarpar þjóðin.
3. Sá sem elskar visku, gleður föður sinn, en sá sem leggur lag sitt við skækjur, glatar eigum sínum.
4. Konungurinn eflir landið með rétti, en sá sem þiggur mútur, eyðir það.
5. Sá maður, sem smjaðrar fyrir náunga sínum, hann leggur net fyrir fætur hans.
6. Í misgjörð vonds manns er fólgin snara, en réttlátur maður fagnar og gleðst.
7. Réttlátur maður kynnir sér málefni hinna lítilmótlegu, en óguðlegur maður hirðir ekkert um að kynna sér það.
8. Spottarar æsa upp borgina, en vitrir menn lægja reiðina.
9. Þegar vitur maður á í þrætumáli við afglapa, þá reiðist hann og hlær, en hvíld fæst engin.
10. Blóðvargarnir hata hinn ráðvanda, en réttvísir menn láta sér annt um líf hans.
11. Heimskinginn úthellir allri reiði sinni, en vitur maður sefar hana að lokum.
12. Þegar drottnarinn hlýðir á lygaorð, verða allir þjónar hans bófar.
13. Fátæklingurinn og kúgarinn mætast, Drottinn ljær ljós augum beggja.
14. Sá konungur, sem dæmir hina lítilmótlegu með réttvísi, hásæti hans mun stöðugt standa að eilífu.
15. Vöndur og umvöndun veita speki, en agalaus sveinn gjörir móður sinni skömm.
16. Þegar óguðlegum fjölgar, fjölgar og misgjörðum, en réttlátir munu horfa á fall þeirra.
17. Aga þú son þinn, þá mun hann láta þig hafa ró og veita unað sálu þinni.
18. Þar sem engar vitranir eru, kemst fólkið á glapstigu, en sá sem varðveitir lögmálið, er sæll.
19. Þræll verður eigi agaður með orðum, því að hann skilur þau að vísu, en fer ekki eftir þeim.
20. Sjáir þú mann, sem er fljótfær í orðum, þá er meiri von um heimskingja en hann.
21. Dekri maður við þræl sinn frá barnæsku, vill hann að lokum verða ungherra.
22. Reiðigjarn maður vekur deilur, og bráðlyndur maður drýgir marga synd.
23. Hroki mannsins lægir hann, en hinn lítilláti mun virðing hljóta.
24. Þjófsnauturinn hatar líf sitt, hann hlýðir á bölvunina, en segir þó ekki frá.
25. Ótti við menn leiðir í snöru, en þeim er borgið, sem treystir Drottni.
26. Margir leita hylli drottnarans, en réttur mannsins kemur frá Drottni.
27. Andstyggð réttlátra er sá, sem ranglæti fremur, og andstyggð óguðlegra sá, sem ráðvandlega breytir.
About Orðskviðirnir Chapter 29
Read Orðskviðirnir Chapter 29 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Orðskviðirnir in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: Orðskviðirnir
Chapter: 29
Testament: Old Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Orðskviðirnir. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading Orðskviðirnir Chapter 29 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is Orðskviðirnir Chapter 29?
Orðskviðirnir Chapter 29 is part of the Book of Orðskviðirnir in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete Orðskviðirnir Chapter 29 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from Gamla Testamentið
Explore More from Ordskvidirnir
- Orðskviðirnir Chapter 6
- Orðskviðirnir Chapter 27
- Orðskviðirnir Chapter 19
- Orðskviðirnir Chapter 16
- Orðskviðirnir Chapter 15
- Orðskviðirnir Chapter 3
- Orðskviðirnir Chapter 4