Sálmarnir Chapter 31

For English

Read Sálmarnir Chapter 31 Online

Read Sálmarnir Chapter 31 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Sálmarnir in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Sálmarnir and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

Sálmarnir 31

Kafli 31

1. Hjá þér, Drottinn, leita ég hælis, lát mig aldrei verða til skammar. Bjarga mér eftir réttlæti þínu,

2. (31:3) hneig eyru þín til mín, frelsa mig í skyndi, ver mér verndarbjarg, vígi mér til hjálpar.

3. (31:4) Því að þú ert bjarg mitt og vígi, og sakir nafns þíns munt þú leiða mig og stjórna mér.

4. (31:5) Þú munt draga mig úr neti því, er þeir lögðu leynt fyrir mig, því að þú ert vörn mín.

5. (31:6) Í þínar hendur fel ég anda minn, þú frelsar mig, Drottinn, þú trúfasti Guð!

6. (31:7) Ég hata þá, er dýrka fánýt falsgoð, en Drottni treysti ég.

7. (31:8) Ég vil gleðjast og fagna yfir miskunn þinni, því að þú hefir litið á eymd mína, gefið gætur að sálarneyð minni

8. (31:9) og eigi ofurselt mig óvinunum, en sett fót minn á víðlendi.

9. (31:10) Líkna mér, Drottinn, því að ég er í nauðum staddur, döpruð af harmi eru augu mín, sál mín og líkami.

10. (31:11) Ár mín líða í harmi og líf mitt í andvörpum, mér förlast kraftur sakir sektar minnar, og bein mín tærast.

11. (31:12) Ég er að spotti öllum óvinum mínum, til háðungar nábúum mínum og skelfing kunningjum mínum: þeir sem sjá mig á strætum úti flýja mig.

12. (31:13) Sem dáinn maður er ég gleymdur hjörtum þeirra, ég er sem ónýtt ker.

13. (31:14) Ég heyri illyrði margra, – skelfing er allt um kring – þeir bera ráð sín saman móti mér, hyggja á að svipta mig lífi.

14. (31:15) En ég treysti þér, Drottinn, ég segi: "Þú ert Guð minn!"

15. (31:16) Í þinni hendi eru stundir mínar, frelsa mig af hendi óvina minna og ofsækjenda.

16. (31:17) Lát ásjónu þína lýsa yfir þjón þinn, hjálpa mér sakir elsku þinnar.

17. (31:18) Ó Drottinn, lát mig eigi verða til skammar, því að ég ákalla þig. Lát hina guðlausu verða til skammar, hverfa hljóða til Heljar.

18. (31:19) Lát lygavarirnar þagna, þær er mæla drambyrði gegn réttlátum með hroka og fyrirlitningu.

19. (31:20) Hversu mikil er gæska þín, er þú hefir geymt þeim er óttast þig, og auðsýnir þeim er leita hælis hjá þér frammi fyrir mönnunum.

20. (31:21) Þú hylur þá í skjóli auglitis þíns fyrir svikráðum manna, felur þá í leyni fyrir deilum tungnanna.

21. (31:22) Lofaður sé Drottinn, því að hann hefir sýnt mér dásamlega náð í öruggri borg.

22. (31:23) Ég hugsaði í angist minni: "Ég er burtrekinn frá augum þínum." En samt heyrðir þú grátraust mína, er ég hrópaði til þín.

23. (31:24) Elskið Drottin, allir þér hans trúuðu, Drottinn verndar trúfasta, en geldur í fullum mæli þeim er ofmetnaðarverk vinna.

24. (31:25) Verið öruggir og hughraustir, allir þér er vonið á Drottin.

About Sálmarnir Chapter 31

Read Sálmarnir Chapter 31 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Sálmarnir in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: Sálmarnir
Chapter: 31
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Sálmarnir. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading Sálmarnir Chapter 31 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is Sálmarnir Chapter 31?

Sálmarnir Chapter 31 is part of the Book of Sálmarnir in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete Sálmarnir Chapter 31 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from Gamla Testamentið

  1. Míka Chapter 3
  2. Míka Chapter 2
  3. Míka Chapter 1
  4. Míka Chapter 7
  5. Míka Chapter 6
  6. Míka Chapter 5
  7. Míka Chapter 4

Explore More from Salmar

  1. Sálmarnir Chapter 108
  2. Sálmarnir Chapter 21
  3. Sálmarnir Chapter 147
  4. Sálmarnir Chapter 85
  5. Sálmarnir Chapter 144
  6. Sálmarnir Chapter 82
  7. Sálmarnir Chapter 29

Related Chapters & Readings

  1. Efesusbréfið Chapter 1
  2. Sálmarnir Chapter 131
  3. Nehemíabók Chapter 2
  4. Matteus Chapter 6
  5. Amos Chapter 3
  6. 1 Kroníkubók Chapter 3
  7. Orðskviðirnir Chapter 19
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *