Read Sálmarnir Chapter 139 Online
Read Sálmarnir Chapter 139 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Sálmarnir in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Sálmarnir and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
Sálmarnir 139
Kafli 139
1. Drottinn, þú rannsakar og þekkir mig.
2. Hvort sem ég sit eða stend, þá veist þú það, þú skynjar hugrenningar mínar álengdar.
3. Hvort sem ég geng eða ligg, þá athugar þú það, og alla vegu mína gjörþekkir þú.
4. Því að eigi er það orð á tungu minni, að þú, Drottinn, þekkir það eigi til fulls.
5. Þú umlykur mig á bak og brjóst, og hönd þína hefir þú lagt á mig.
6. Þekking þín er undursamlegri en svo, að ég fái skilið, of háleit, ég er henni eigi vaxinn.
7. Hvert get ég farið frá anda þínum og hvert flúið frá augliti þínu?
8. Þótt ég stigi upp í himininn, þá ertu þar, þótt ég gjörði undirheima að hvílu minni, sjá, þú ert þar.
9. Þótt ég lyfti mér á vængi morgunroðans og settist við hið ysta haf,
10. einnig þar mundi hönd þín leiða mig og hægri hönd þín halda mér.
11. Og þótt ég segði: "Myrkrið hylji mig og ljósið í kringum mig verði nótt,"
12. þá myndi þó myrkrið eigi verða þér of myrkt og nóttin lýsa eins og dagur, myrkur og ljós eru jöfn fyrir þér.
13. Því að þú hefir myndað nýru mín, ofið mig í móðurlífi.
14. Ég lofa þig fyrir það, að ég er undursamlega skapaður, undursamleg eru verk þín, það veit ég næsta vel.
15. Beinin í mér voru þér eigi hulin, þegar ég var gjörður í leyni, myndaður í djúpum jarðar.
16. Augu þín sáu mig, er ég enn var ómyndað efni, ævidagar voru ákveðnir og allir skráðir í bók þína, áður en nokkur þeirra var til orðinn.
17. En hversu torskildar eru mér hugsanir þínar, ó Guð, hversu stórkostlegar eru þær allar samanlagðar.
18. Ef ég vildi telja þær, væru þær fleiri en sandkornin, ég mundi vakna og vera enn með hugann hjá þér.
19. Ó að þú, Guð, vildir fella níðingana. Morðingjar! Víkið frá mér.
20. Þeir þrjóskast gegn þér með svikum og leggja nafn þitt við hégóma.
21. Ætti ég eigi, Drottinn, að hata þá, er hata þig, og hafa viðbjóð á þeim, er rísa gegn þér?
22. Ég hata þá fullu hatri, þeir eru orðnir óvinir mínir.
23. Prófa mig, Guð, og þekktu hjarta mitt, rannsaka mig og þekktu hugsanir mínar,
24. og sjá þú, hvort ég geng á glötunarvegi, og leið mig hinn eilífa veg.
About Sálmarnir Chapter 139
Read Sálmarnir Chapter 139 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Sálmarnir in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: Sálmarnir
Chapter: 139
Testament: Old Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Sálmarnir. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading Sálmarnir Chapter 139 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is Sálmarnir Chapter 139?
Sálmarnir Chapter 139 is part of the Book of Sálmarnir in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete Sálmarnir Chapter 139 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from Gamla Testamentið
Explore More from Salmar
- Sálmarnir Chapter 125
- Sálmarnir Chapter 51
- Sálmarnir Chapter 89
- Sálmarnir Chapter 126
- Sálmarnir Chapter 122
- Sálmarnir Chapter 31
- Sálmarnir Chapter 141