Sálmarnir Chapter 71

For English

Read Sálmarnir Chapter 71 Online

Read Sálmarnir Chapter 71 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Sálmarnir in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Sálmarnir and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

Sálmarnir 71

Kafli 71

1. Hjá þér, Drottinn, leita ég hælis, lát mig aldrei verða til skammar.

2. Frelsa mig og bjarga mér eftir réttlæti þínu, hneig eyru þín til mín og hjálpa mér.

3. Ver mér verndarbjarg, vígi mér til hjálpar, því að þú ert bjarg mitt og vígi.

4. Guð minn, bjarga mér úr hendi illgjarnra, undan valdi illvirkja og harðstjóra.

5. Því að þú ert von mín, þú, Drottinn, ert athvarf mitt frá æsku.

6. Við þig hefi ég stuðst frá móðurlífi, frá móðurskauti hefir þú verið skjól mitt, um þig hljómar ætíð lofsöngur minn.

7. Ég er mörgum orðinn sem undur, en þú ert mér öruggt hæli.

8. Munnur minn er fullur af lofstír þínum, af dýrð þinni daginn allan.

9. Útskúfa mér eigi í elli minni, yfirgef mig eigi, þá er þróttur minn þverrar.

10. Því að óvinir mínir tala um mig, þeir er sitja um líf mitt, bera ráð sín saman:

11. "Guð hefir yfirgefið hann. Eltið hann og grípið hann, því að enginn bjargar."

12. Guð, ver eigi fjarri mér, Guð minn, skunda til liðs við mig.

13. Lát þá er sýna mér fjandskap farast með skömm, lát þá íklæðast háðung og svívirðing, er óska mér ógæfu.

14. En ég vil sífellt vona og auka enn á allan lofstír þinn.

15. Munnur minn skal segja frá réttlæti þínu, frá hjálpsemdum þínum allan daginn, því að ég veit eigi tölu á þeim.

16. Ég vil segja frá máttarverkum Drottins, ég vil boða réttlæti þitt, það eitt.

17. Guð, þú hefir kennt mér frá æsku, og allt til þessa kunngjöri ég dásemdarverk þín.

18. Yfirgef mig eigi, ó Guð, þegar ég er gamall orðinn og grár fyrir hærum, að ég megi kunngjöra styrkleik þinn komandi kynslóð.

19. Máttur þinn og réttlæti þitt, ó Guð, nær til himins, þú sem hefir framið stórvirki, Guð, hver er sem þú?

20. Þú sem hefir látið oss horfa upp á miklar nauðir og ógæfu, þú munt láta oss lifna við að nýju og láta oss aftur stíga upp úr undirdjúpum jarðar.

21. Þú munt auka við tign mína og aftur veita mér huggun.

22. Þá vil ég lofa trúfesti þína með hörpuleik, Guð minn, leika á gígju fyrir þér, þú Hinn heilagi í Ísrael.

23. Varir mínar skulu fagna, er ég leik fyrir þér, og sál mín er þú hefir leyst.

24. Þá skal og tunga mín tala um réttlæti þitt liðlangan daginn, því að þeir urðu til skammar, já hlutu kinnroða, er óskuðu mér ógæfu.

About Sálmarnir Chapter 71

Read Sálmarnir Chapter 71 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Sálmarnir in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: Sálmarnir
Chapter: 71
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Sálmarnir. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading Sálmarnir Chapter 71 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is Sálmarnir Chapter 71?

Sálmarnir Chapter 71 is part of the Book of Sálmarnir in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete Sálmarnir Chapter 71 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from Gamla Testamentið

  1. Míka Chapter 3
  2. Míka Chapter 2
  3. Míka Chapter 1
  4. Míka Chapter 7
  5. Míka Chapter 6
  6. Míka Chapter 5
  7. Míka Chapter 4

Explore More from Salmar

  1. Sálmarnir Chapter 137
  2. Sálmarnir Chapter 133
  3. Sálmarnir Chapter 41
  4. Sálmarnir Chapter 22
  5. Sálmarnir Chapter 10
  6. Sálmarnir Chapter 67
  7. Sálmarnir Chapter 32

Related Chapters & Readings

  1. Postulasagan Chapter 5
  2. Opinberunarbókin Chapter 15
  3. Jesaja Chapter 62
  4. Jeremía Chapter 21
  5. 1 Samúelsbók Chapter 2
  6. Orðskviðirnir Chapter 30
  7. 2 Mósebók Chapter 30
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *