Sálmarnir Chapter 104

For English

Read Sálmarnir Chapter 104 Online

Read Sálmarnir Chapter 104 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Sálmarnir in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Sálmarnir and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

Sálmarnir 104

Kafli 104

1. Lofa þú Drottin, sála mín! Drottinn, Guð minn, þú ert harla mikill. Þú ert klæddur hátign og vegsemd.

2. Þú hylur þig ljósi eins og skikkju, þenur himininn út eins og tjalddúk.

3. Þú hvelfir hásal þinn í vötnunum, gjörir ský að vagni þínum, og ferð um á vængjum vindarins.

4. Þú gjörir vindana að sendiboðum þínum, bálandi eld að þjónum þínum.

5. Þú grundvallar jörðina á undirstöðum hennar, svo að hún haggast eigi um aldur og ævi.

6. Hafflóðið huldi hana sem klæði, vötnin náðu upp yfir fjöllin,

7. en fyrir þinni ógnun flýðu þau, fyrir þrumurödd þinni hörfuðu þau undan með skelfingu.

8. Þau gengu yfir fjöllin, steyptust niður í dalina, þangað sem þú hafðir búið þeim stað.

9. Þú settir takmörk, sem þau mega ekki fara yfir, þau skulu ekki hylja jörðina framar.

10. Þú sendir lindir í dalina, þær renna milli fjallanna,

11. þær svala öllum dýrum merkurinnar, villiasnarnir slökkva þorsta sinn.

12. Yfir þeim byggja fuglar himins, láta kvak sitt heyrast milli greinanna.

13. Þú vökvar fjöllin frá hásal þínum, jörðin mettast af ávexti verka þinna.

14. Þú lætur gras spretta handa fénaðinum og jurtir, sem maðurinn ræktar, til þess að framleiða brauð af jörðinni

15. og vín, sem gleður hjarta mannsins, olíu, sem gjörir andlitið gljáandi, og brauð, sem hressir hjarta mannsins.

16. Tré Drottins mettast, sedrustrén á Líbanon, er hann hefir gróðursett

17. þar sem fuglarnir byggja hreiður, storkarnir, er hafa kýprestrén að húsi.

18. Hin háu fjöll eru handa steingeitunum, klettarnir eru hæli fyrir stökkhérana.

19. Þú gjörðir tunglið til þess að ákvarða tíðirnar, sólin veit, hvar hún á að ganga til viðar.

20. Þegar þú gjörir myrkur, verður nótt, og þá fara öll skógardýrin á kreik.

21. Ljónin öskra eftir bráð og heimta æti sitt af Guði.

22. Þegar sól rennur upp, draga þau sig í hlé og leggjast fyrir í fylgsnum sínum,

23. en þá fer maðurinn út til starfa sinna, til vinnu sinnar fram á kveld.

24. Hversu mörg eru verk þín, Drottinn, þú gjörðir þau öll með speki, jörðin er full af því, er þú hefir skapað.

25. Þar er hafið, mikið og vítt á alla vegu, þar er óteljandi grúi, smá dýr og stór.

26. Þar fara skipin um og Levjatan, er þú hefir skapað til þess að leika sér þar.

27. Öll vona þau á þig, að þú gefir þeim fæðu þeirra á réttum tíma.

28. Þú gefur þeim, og þau tína, þú lýkur upp hendi þinni, og þau mettast gæðum.

29. Þú byrgir auglit þitt, þá skelfast þau, þú tekur aftur anda þeirra, þá andast þau og hverfa aftur til moldarinnar.

30. Þú sendir út anda þinn, þá verða þau til, og þú endurnýjar ásjónu jarðar.

31. Dýrð Drottins vari að eilífu, Drottinn gleðjist yfir verkum sínum,

32. hann sem lítur til jarðar, svo að hún nötrar, sem snertir við fjöllunum, svo að úr þeim rýkur.

33. Ég vil ljóða um Drottin meðan lifi, lofsyngja Guði mínum meðan ég er til.

34. Ó að mál mitt mætti falla honum í geð! Ég gleðst yfir Drottni.

35. Ó að syndarar mættu hverfa af jörðunni og óguðlegir eigi vera til framar. Vegsama þú Drottin, sála mín. Halelúja.

About Sálmarnir Chapter 104

Read Sálmarnir Chapter 104 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Sálmarnir in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: Sálmarnir
Chapter: 104
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Sálmarnir. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading Sálmarnir Chapter 104 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is Sálmarnir Chapter 104?

Sálmarnir Chapter 104 is part of the Book of Sálmarnir in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete Sálmarnir Chapter 104 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from Gamla Testamentið

  1. Míka Chapter 3
  2. Míka Chapter 2
  3. Míka Chapter 1
  4. Míka Chapter 7
  5. Míka Chapter 5
  6. Míka Chapter 6
  7. Míka Chapter 4

Explore More from Salmar

  1. Sálmarnir Chapter 124
  2. Sálmarnir Chapter 10
  3. Sálmarnir Chapter 126
  4. Sálmarnir Chapter 95
  5. Sálmarnir Chapter 47
  6. Sálmarnir Chapter 71
  7. Sálmarnir Chapter 37

Related Chapters & Readings

  1. Matteus Chapter 5
  2. 2 Konungabók Chapter 4
  3. 2 Tímóteusarbréf Chapter 3
  4. Jesaja Chapter 20
  5. Hebreabréfið Chapter 7
  6. Sálmarnir Chapter 8
  7. 1 Mósebók Chapter 14
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *