Read Sálmarnir Chapter 68 Online
Read Sálmarnir Chapter 68 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Sálmarnir in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Sálmarnir and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
Sálmarnir 68
Kafli 68
1. Guð rís upp, óvinir hans tvístrast, þeir sem hata hann flýja fyrir augliti hans.
2. (68:3) Eins og reykur eyðist, eyðast þeir, eins og vax bráðnar í eldi, tortímast óguðlegir fyrir augliti Guðs.
3. (68:4) En réttlátir gleðjast, fagna fyrir augliti Guðs og kætast stórum.
4. (68:5) Syngið fyrir Guði, vegsamið nafn hans, leggið braut fyrir hann er ekur gegnum öræfin. Drottinn heitir hann, fagnið fyrir augliti hans.
5. (68:6) Hann er faðir föðurlausra, vörður ekknanna, Guð í sínum heilaga bústað.
6. (68:7) Guð lætur hina einmana hverfa heim aftur, hann leiðir hina fjötruðu út til hamingju, en uppreisnarseggir skulu búa í hrjóstrugu landi.
7. (68:8) Ó Guð, þegar þú fórst út á undan lýð þínum, þegar þú brunaðir fram um öræfin, [Sela]
8. (68:9) þá nötraði jörðin, og himnarnir drupu fyrir Guði, Drottni frá Sínaí, fyrir Guði, Ísraels Guði.
9. (68:10) Ríkulegu regni dreyptir þú, ó Guð, á arfleifð þína, það sem vanmegnaðist, styrktir þú.
10. (68:11) Staðinn þar sem söfnuður þinn dvelur, bjóst þú hinum hrjáðu, ó Guð, sakir gæsku þinnar.
11. (68:12) Drottinn lætur orð sín rætast, konurnar sem sigur boða eru mikill her:
12. (68:13) "Konungar hersveitanna flýja, þeir flýja, en hún sem heima situr skiptir herfangi.
13. (68:14) Hvort viljið þér liggja milli fjárgirðinganna? Vængir dúfunnar eru lagðir silfri og fjaðrir hennar íbleiku gulli."
14. (68:15) Þegar Hinn almáttki tvístraði konungunum, þá snjóaði á Salmon.
15. (68:16) Guðs fjall er Basansfjall, tindafjall er Basansfjall.
16. (68:17) Hví lítið þér, tindafjöll, öfundarauga það fjall er Guð hefir kjörið sér til bústaðar, þar sem Drottinn samt mun búa um eilífð?
17. (68:18) Hervagnar Guðs eru tíþúsundir, þúsundir á þúsundir ofan. Hinn alvaldi kom frá Sínaí til helgidómsins.
18. (68:19) Þú steigst upp til hæða, hafðir á burt bandingja, tókst við gjöfum frá mönnum, jafnvel uppreisnarmönnum, að þú, Drottinn, Guð, mættir búa þar.
19. (68:20) Lofaður sé Drottinn, er ber oss dag eftir dag, Guð er hjálpráð vort. [Sela]
20. (68:21) Guð er oss hjálpræðisguð, og Drottinn alvaldur bjargar frá dauðanum.
21. (68:22) Já, Guð sundurmolar höfuð óvina sinna, hvirfil þeirra, er ganga í sekt sinni.
22. (68:23) Drottinn hefir sagt: "Ég vil sækja þá til Basan, flytja þá frá djúpi hafsins,
23. (68:24) að þú megir troða þá til bana, að tungur hunda þinna megi fá sinn hlut af óvinunum."
24. (68:25) Menn horfa á inngöngu þína, ó Guð, inngöngu Guðs míns og konungs í musterið.
25. (68:26) Söngvarar eru í fararbroddi, þá strengleikarar, ásamt yngismeyjum, er berja bumbur.
26. (68:27) Lofið Guð á hátíðarsamkundum, lofið Drottin, þér sem eruð af uppsprettu Ísraels.
27. (68:28) Þar er Benjamín litli, er ríkir yfir þeim, höfðingjar Júda í þyrpingu, höfðingjar Sebúlons, höfðingjar Naftalí.
28. (68:29) Bjóð út, ó Guð, styrkleik þínum, þeim styrkleik sem þú hefir auðsýnt oss
29. (68:30) frá musteri þínu í Jerúsalem. Konungar skulu færa þér gjafir.
30. (68:31) Ógna þú dýrinu í sefinu, uxaflokkunum ásamt bolakálfum þjóðanna, sem troða menn fótum sökum ágirndar sinnar á silfri. Tvístra þú þjóðum, er unna ófriði!
31. (68:32) Það koma sendiherrar frá Egyptalandi, Bláland færir Guði gjafir hröðum höndum.
32. (68:33) Þér konungsríki jarðar, syngið Guði, syngið Drottni lof, [Sela]
33. (68:34) honum sem ekur um himnanna himna frá eilífð, hann lætur raust sína gjalla, hina voldugu raust.
34. (68:35) Tjáið Guði dýrð, yfir Ísrael er hátign hans og máttur hans í skýjunum.
35. (68:36) Ógurlegur er Guð í helgidómi sínum, Ísraels Guð veitir lýðnum mátt og megin. Lofaður sé Guð!
About Sálmarnir Chapter 68
Read Sálmarnir Chapter 68 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Sálmarnir in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: Sálmarnir
Chapter: 68
Testament: Old Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Sálmarnir. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading Sálmarnir Chapter 68 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is Sálmarnir Chapter 68?
Sálmarnir Chapter 68 is part of the Book of Sálmarnir in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete Sálmarnir Chapter 68 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from Gamla Testamentið
Explore More from Salmar
- Sálmarnir Chapter 117
- Sálmarnir Chapter 123
- Sálmarnir Chapter 31
- Sálmarnir Chapter 63
- Sálmarnir Chapter 91
- Sálmarnir Chapter 99
- Sálmarnir Chapter 33