Read Jeremía Chapter 21 Online
Read Jeremía Chapter 21 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Jeremía in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Jeremía and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
Jeremía 21
Kafli 21
1. Orðið sem kom til Jeremía frá Drottni, þegar Sedekía konungur sendi þá Pashúr Malkíason og Sefanía prest Maasejason til hans með þessa orðsendingu:
2. "Nebúkadresar Babelkonungur herjar á oss. Gakk til frétta við Drottin fyrir oss, hvort Drottinn muni við oss gjöra samkvæmt öllum sínum dásemdarverkum, svo að hann fari burt frá oss aftur."
3. Þá sagði Jeremía við þá: "Segið svo Sedekía:
4. Svo segir Drottinn, Ísraels Guð: Sjá, ég sný við hervopnunum í höndum yðar, sem þér berjist með við Babelkonung og við Kaldea, sem að yður kreppa fyrir utan borgarmúrinn. Ég safna þeim saman inni í þessari borg,
5. og ég mun sjálfur berjast við yður með útréttri hendi og sterkum armlegg og með reiði, heift og mikilli gremi.
6. Ég mun ljósta íbúa þessarar borgar, bæði menn og skepnur, þeir skulu deyja af mikilli drepsótt.
7. En eftir það – segir Drottinn – mun ég selja Sedekía Júdakonung og þjóna hans og lýðinn, þá er eftir verða í þessari borg eftir drepsóttina, sverðið og hungrið, í hendur Nebúkadresars Babelkonungs og í hendur óvina þeirra og í hendur þeirra, er sækjast eftir lífi þeirra, og hann mun drepa þá með sverðseggjum hlífðarlaust, vægðarlaust og miskunnarlaust."
8. En við lýð þennan skalt þú segja: Svo segir Drottinn: Sjá, ég legg fyrir yður veg lífsins og veg dauðans.
9. Þeir sem verða kyrrir í þessari borg, munu deyja fyrir sverði, af hungri og af drepsótt, en þeir sem fara út og ganga á vald Kaldeum, sem að yður kreppa, þeir munu lífi halda og hljóta líf sitt að herfangi.
10. Því að ég hefi snúið andliti mínu gegn þessari borg, til óheilla og ekki til heilla – segir Drottinn. Hún skal ofurseld verða Babelkonungi, og hann skal brenna hana í eldi.
11. Um hús konungsins í Júda. Heyrið orð Drottins! Davíðs hús,
12. svo segir Drottinn: Haldið rétt að morgni dags og frelsið hinn rænda af hendi kúgarans, til þess að heiftarreiði mín brjótist ekki út eins og eldur og brenni, svo að enginn fái slökkt sakir illverka yðar!
13. Sjá, ég skal finna þig, þú sem býr í dalnum, kletturinn á sléttunni – segir Drottinn – yður sem segið: "Hver skyldi koma ofan gegn oss og hver skyldi brjótast inn í bústaði vora?"
14. Og ég skal vitja yðar samkvæmt ávöxtum verka yðar – segir Drottinn – og leggja eld í skóg yðar, og hann skal eyða öllu, sem umhverfis hana er.
About Jeremía Chapter 21
Read Jeremía Chapter 21 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Jeremía in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: Jeremía
Chapter: 21
Testament: Old Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Jeremía. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading Jeremía Chapter 21 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is Jeremía Chapter 21?
Jeremía Chapter 21 is part of the Book of Jeremía in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete Jeremía Chapter 21 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from Gamla Testamentið
Explore More from Jeremia
- Jeremia Chapter 38
- Jeremia Chapter 33
- Jeremia Chapter 8
- Jeremia Chapter 21
- Jeremia Chapter 15
- Jeremía Chapter 13
- Jeremia Chapter 31