Read Hebreabréfið Chapter 13 Online
Read Hebreabréfið Chapter 13 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Hebreabréfið in the New Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Hebreabréfið and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
Hebreabréfið 13
Kafli 13
1. Bróðurkærleikurinn haldist.
2. Gleymið ekki gestrisninni, því að vegna hennar hafa sumir hýst engla án þess að vita.
3. Minnist bandingjanna, sem væruð þér sambandingjar þeirra. Minnist þeirra er illt líða, þar sem þér sjálfir eruð einnig með líkama.
4. Hjúskapurinn sé í heiðri hafður í öllum greinum og hjónasængin sé óflekkuð, því að hórkarla og frillulífismenn mun Guð dæma.
5. Sýnið enga fégirni í hegðun yðar, en látið yður nægja það, sem þér hafið. Guð hefur sjálfur sagt: "Ég mun ekki sleppa af þér hendinni né yfirgefa þig."
6. Því getum vér öruggir sagt: Drottinn er minn hjálpari, eigi mun ég óttast. Hvað geta mennirnir gjört mér?
7. Verið minnugir leiðtoga yðar, sem Guðs orð hafa til yðar talað. Virðið fyrir yður, hvernig ævi þeirra lauk, og líkið eftir trú þeirra.
8. Jesús Kristur er í gær og í dag hinn sami og um aldir.
9. Látið ekki afvegaleiða yður af ýmislegum framandi kenningum. Það er gott að hjartað styrkist við náð, ekki mataræði. Þeir, sem sinntu slíku, höfðu eigi happ af því.
10. Vér höfum altari, og hafa þeir, er tjaldbúðinni þjóna, ekki leyfi til að eta af því.
11. Því að brennd eru fyrir utan herbúðirnar hræ þeirra dýra, sem æðsti presturinn ber blóðið úr inn í helgidóminn til syndafórnar.
12. Þess vegna leið og Jesús fyrir utan hliðið, til þess að hann helgaði lýðinn með blóði sínu.
13. Göngum því til hans út fyrir herbúðirnar og berum vanvirðu hans.
14. Því að hér höfum vér ekki borg er stendur, heldur leitum vér hinnar komandi.
15. Fyrir hann skulum vér því án afláts bera fram lofgjörðarfórn fyrir Guð, ávöxt vara, er játa nafn hans.
16. En gleymið ekki velgjörðaseminni og hjálpseminni, því að slíkar fórnir eru Guði þóknanlegar.
17. Hlýðið leiðtogum yðar og verið þeim eftirlátir. Þeir vaka yfir sálum yðar og eiga að lúka reikning fyrir þær. Verið þeim eftirlátir til þess að þeir geti gjört það með gleði, ekki andvarpandi. Það væri yður til ógagns.
18. Biðjið fyrir oss, því að vér erum þess fullvissir, að vér höfum góða samvisku og viljum í öllum greinum breyta vel.
19. Ég bið yður enn rækilegar um að gjöra þetta, til þess að þér fáið mig brátt aftur heimtan.
20. En Guð friðarins, er leiddi hinn mikla hirði sauðanna, Drottin vorn Jesú, upp frá dauðum með blóði eilífs sáttmála,
21. hann fullkomni yður í öllu góðu til að gjöra vilja hans og komi því til leiðar í oss, sem þóknanlegt er í hans augum, fyrir Jesú Krist. Honum sé dýrð um aldir alda. Amen.
22. Ég bið yður, bræður, að þér takið vel þessum áminningarorðum. Fáort hef ég ritað yður.
23. Vita skuluð þér, að bróðir vor Tímóteus hefur verið látinn laus og ásamt honum mun ég heimsækja yður, komi hann bráðum.
24. Berið kveðju öllum leiðtogum yðar og öllum heilögum. Mennirnir frá Ítalíu senda yður kveðju.
25. Náð sé með yður öllum.
About Hebreabréfið Chapter 13
Read Hebreabréfið Chapter 13 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Hebreabréfið in the New Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: Hebreabréfið
Chapter: 13
Testament: New Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Hebreabréfið. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading Hebreabréfið Chapter 13 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is Hebreabréfið Chapter 13?
Hebreabréfið Chapter 13 is part of the Book of Hebreabréfið in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete Hebreabréfið Chapter 13 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from hebreabrefid
- Hebreabréfið Chapter 1
- Hebreabréfið Chapter 2
- Hebreabréfið Chapter 6
- Hebreabréfið Chapter 5
- Hebreabréfið Chapter 10
- Hebreabréfið Chapter 11
- Hebreabréfið Chapter 9
Explore More from Nýja Testamentið
- Matteus Chapter 11
- Postulasagan Chapter 28
- Efesusbréfið Chapter 1
- 1 Korintubréf Chapter 13
- 3 Jóhannesarbréf Chapter 1
- Markús Chapter 13
- 1 Tímóteusarbréf Chapter 5