Read Prédikarinn Chapter 12 Online
Read Prédikarinn Chapter 12 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Prédikarinn in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Prédikarinn and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
Prédikarinn 12
Kafli 12
1. Og mundu eftir skapara þínum á unglingsárum þínum, áður en vondu dagarnir koma og þau árin nálgast, er þú segir um: "Mér líka þau ekki" –
2. áður en sólin myrkvast og ljósið og tunglið og stjörnurnar, og áður en skýin koma aftur eftir regnið –
3. þá er þeir skjálfa, sem hússins geyma, og sterku mennirnir verða bognir og kvarnarstúlkurnar hafast ekki að, af því að þær eru orðnar fáar, og dimmt er orðið hjá þeim, sem líta út um gluggana,
4. og dyrunum út að götunni er lokað, og hávaðinn í kvörninni minnkar, og menn fara á fætur við fuglskvak, en allir söngvarnir verða lágværir,
5. þá menn eru hræddir við hæðir og sjá skelfingar á veginum, og þegar möndlutréð stendur í blóma og engispretturnar dragast áfram og kaper-ber hrífa ekki lengur, því að maðurinn fer burt til síns eilífðar-húss og grátendurnir ganga um strætið –
6. áður en silfurþráðurinn slitnar og gullskálin brotnar og skjólan mölvast við lindina og hjólið brotnar við brunninn
7. og moldin hverfur aftur til jarðarinnar, þar sem hún áður var, og andinn til Guðs, sem gaf hann.
8. Aumasti hégómi, segir prédikarinn, allt er hégómi!
9. En auk þess sem prédikarinn var spekingur, miðlaði hann og mönnum þekkingu og rannsakaði og kynnti sér og samdi mörg spakmæli.
10. Prédikarinn leitaðist við að finna fögur orð, og það sem hann hefir skrifað í einlægni, eru sannleiksorð.
11. Orð spekinganna eru eins og broddar og kjarnyrðin eins og fastreknir naglar – þau eru gefin af einum hirði.
12. Og enn fremur, sonur minn, þýðstu viðvaranir. Að taka saman margar bækur, á því er enginn endir, og mikil bókiðn þreytir líkamann.
13. Vér skulum hlýða á niðurlagsorðið í því öllu: Óttastu Guð og haltu hans boðorð, því að það á hver maður að gjöra.
14. Því að Guð mun leiða sérhvert verk fyrir dóm, sem haldinn verður yfir öllu því sem hulið er, hvort sem það er gott eða illt.
About Prédikarinn Chapter 12
Read Prédikarinn Chapter 12 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Prédikarinn in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: Prédikarinn
Chapter: 12
Testament: Old Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Prédikarinn. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading Prédikarinn Chapter 12 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is Prédikarinn Chapter 12?
Prédikarinn Chapter 12 is part of the Book of Prédikarinn in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete Prédikarinn Chapter 12 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from Gamla Testamentið
Explore More from predikarinn
- Prédikarinn Chapter 3
- Prédikarinn Chapter 2
- Prédikarinn Chapter 9
- Prédikarinn Chapter 11
- Prédikarinn Chapter 10
- Prédikarinn Chapter 4
- Prédikarinn Chapter 7