1 Konungabók Chapter 15

For English

Read 1 Konungabók Chapter 15 Online

Read 1 Konungabók Chapter 15 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 1 Konungabók in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of 1 Konungabók and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

1 Konungabók 15

Kafli 15

1. Á átjánda ríkisári Jeróbóams Nebatssonar varð Abía konungur yfir Júda.

2. Þrjú ár ríkti hann í Jerúsalem. Móðir hans hét Maaka, dóttir Absalons.

3. Hann drýgði allar sömu syndirnar, er faðir hans hafði fyrir honum haft, og hjarta hans var ekki óskipt gagnvart Drottni, Guði hans, eins og hjarta Davíðs forföður hans.

4. Því að það var eingöngu Davíðs vegna, að Drottinn, Guð hans, gaf honum lampa í Jerúsalem, að hann hóf sonu hans eftir hann og lét Jerúsalem standa,

5. af því að Davíð hafði gjört það sem rétt var í augum Drottins og aldrei á ævi sinni vikið frá neinu því, er hann hafði fyrir hann lagt, nema hvernig hann fór með Úría Hetíta.

6. Rehabeam átti í ófriði við Jeróbóam alla ævi.

7. Það, sem meira er að segja um Abía, og allt, sem hann gjörði, það er ritað í Árbókum Júdakonunga. Og þeir áttu í ófriði saman, Abía og Jeróbóam.

8. Og Abía lagðist til hvíldar hjá feðrum sínum og var grafinn í Davíðsborg. Og Asa sonur hans tók ríki eftir hann.

9. Á tuttugasta ríkisári Jeróbóams, konungs í Ísrael, varð Asa konungur yfir Júda.

10. Fjörutíu og eitt ár ríkti hann í Jerúsalem. Móðir hans hét Maaka, dóttir Absalons.

11. Asa gjörði það sem rétt var í augum Drottins, eins og Davíð forfaðir hans.

12. Hann rak þá menn úr landi, er helgað höfðu sig saurlifnaði, og útrýmdi öllum skurðgoðum, sem forfeður hans höfðu gjöra látið.

13. Hann svipti jafnvel Maöku móður sína drottningartigninni, fyrir það að hún hafði gjöra látið hræðilegt asérulíkneski. Og Asa hjó sundur þetta hræðilega líkneski hennar og brenndi það í Kídrondal.

14. En hæðirnar voru ekki afnumdar. Þó var hjarta Asa óskipt gagnvart Drottni alla ævi hans.

15. Hann lét og flytja í hús Drottins helgigjafir föður síns, svo og helgigjafir sínar – silfur, gull og áhöld.

16. En þeir áttu ófrið saman alla ævi, Asa og Basa konungur í Ísrael.

17. Og Basa, konungur í Ísrael, fór herför á móti Júda og víggirti Rama, svo að enginn maður gæti komist út eða inn hjá Asa Júdakonungi.

18. Þá tók Asa allt silfrið og gullið, sem enn var eftir í féhirslum húss Drottins, og fjársjóðu konungshallarinnar og seldi í hendur mönnum sínum. Síðan sendi Asa konungur þá til Benhadads Tabrimmonssonar, Hesíonssonar, konungs á Sýrlandi, er bjó í Damaskus, með þessa orðsending:

19. "Sáttmáli er milli mín og þín, milli föður míns og föður þíns. Sjá, ég sendi þér gjöf í silfri og gulli. Skalt þú nú rjúfa bandalag þitt við Basa Ísraelskonung, svo að hann hafi sig á burt frá mér."

20. Benhadad tók vel máli Asa konungs og sendi hershöfðingja sína móti borgum Ísraels og vann Íjón og Dan og Abel-Bet-Maaka og allt Kinnerót, svo og allt Naftalí-land.

21. Þegar Basa spurði það, hætti hann að víggirða Rama og sneri heim til Tirsa.

22. En Asa konungur bauð út öllum Júdamönnum – enginn var undanskilinn. Og þeir fluttu burt steinana og viðinn, sem Basa hafði víggirt Rama með, og víggirti Asa konungur með þeim Geba í Benjamín og Mispa.

23. Það sem meira er að segja um Asa og hreystiverk hans og allt það, er hann gjörði, og borgirnar, sem hann víggirti, það er allt ritað í Árbókum Júdakonunga. Þó má geta þess, að á efri árum gjörðist hann fótaveikur.

24. Og Asa lagðist til hvíldar hjá feðrum sínum og var grafinn hjá feðrum sínum í borg Davíðs, forföður síns. Og Jósafat sonur hans tók ríki eftir hann.

25. Nadab, sonur Jeróbóams, varð konungur yfir Ísrael á öðru ríkisári Asa, konungs í Júda, og ríkti hann tvö ár yfir Ísrael.

26. Hann gjörði það sem illt var í augum Drottins og fetaði í fótspor föður síns og drýgði þær syndir, er hann hafði drýgt og komið Ísrael til að drýgja.

27. En Basa, sonur Ahía af ætt Íssakars, hóf samsæri gegn honum og vann sigur á honum við Gibbeton, sem Filistar áttu. En Nadab og allur Ísrael sátu þá um Gibbeton.

28. Þannig drap Basa hann á þriðja ríkisári Asa, konungs í Júda, og tók ríki eftir hann.

29. En er hann var konungur orðinn, drap hann alla ætt Jeróbóams. Hann lét engan eftir verða af konungsættinni, þann er anda dró, uns hann hafði gjöreytt henni, og rættist þannig orð Drottins, sem hann hafði talað fyrir munn þjóns síns, Ahía frá Síló,

30. vegna synda Jeróbóams, þeirra er hann hafði drýgt og komið Ísrael til að drýgja, er hann egndi Drottin, Guð Ísraels, til reiði.

31. Það sem meira er að segja um Nadab og allt, sem hann gjörði, það er ritað í Árbókum Ísraelskonunga.

32. En þeir áttu ófrið saman alla ævi, Asa og Basa, konungur í Ísrael.

33. Á þriðja ríkisári Asa, konungs í Júda, varð Basa, sonur Ahía, konungur yfir öllum Ísrael, og ríkti hann tuttugu og fjögur ár í Tirsa.

34. Hann gjörði það sem illt var í augum Drottins og fetaði í fótspor Jeróbóams og drýgði þær syndir, er hann hafði drýgt og komið Ísrael til að drýgja.

About 1 Konungabók Chapter 15

Read 1 Konungabók Chapter 15 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 1 Konungabók in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: 1 Konungabók
Chapter: 15
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading 1 Konungabók. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading 1 Konungabók Chapter 15 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is 1 Konungabók Chapter 15?

1 Konungabók Chapter 15 is part of the Book of 1 Konungabók in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete 1 Konungabók Chapter 15 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from 1 Konungabok

  1. 1 Konungabók Chapter 5
  2. 1 Konungabók Chapter 2
  3. 1 Konungabók Chapter 9
  4. 1 Konungabók Chapter 8
  5. 1 Konungabók Chapter 3
  6. 1 Konungabók Chapter 12
  7. 1 Konungabók Chapter 22

Explore More from Gamla Testamentið

  1. 1 Mósebók Chapter 6
  2. Sálmarnir Chapter 34
  3. 1 Kroníkubók Chapter 20
  4. Jobsbók Chapter 10
  5. 1 Kroníkubók Chapter 8
  6. Jeremía Chapter 25
  7. 2 Mósebók Chapter 17

Related Chapters & Readings

  1. 1 Mósebók Chapter 3
  2. 2 Konungabók Chapter 4
  3. 1 Þessaloníkubréf Chapter 5
  4. Amos Chapter 2
  5. 2 Mósebók Chapter 38
  6. Sálmarnir Chapter 107
  7. Esekíel Chapter 19
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *