Read 2 Konungabók Chapter 13 Online
Read 2 Konungabók Chapter 13 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 2 Konungabók in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of 2 Konungabók and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
2 Konungabók 13
Kafli 13
1. Á tuttugasta og þriðja ríkisári Jóasar Ahasíasonar Júdakonungs varð Jóahas Jehúson konungur yfir Ísrael í Samaríu og ríkti seytján ár.
2. Hann gjörði það, sem illt var í augum Drottins, og drýgði sömu syndirnar og Jeróbóam Nebatsson, þær er hann hafði komið Ísrael til að drýgja. Hann lét ekki af þeim.
3. Þá upptendraðist reiði Drottins gegn Ísrael, og hann gaf þá í hendur Hasael Sýrlandskonungi og Benhadad syni Hasaels allan þann tíma.
4. En Jóahas blíðkaði Drottin, og Drottinn bænheyrði hann, því að hann sá ánauð Ísraels, hversu Sýrlandskonungur kúgaði þá.
5. Og Drottinn sendi Ísrael hjálparmann, svo að þeir losnuðu undan valdi Sýrlendinga, og Ísraelsmenn bjuggu í tjöldum sínum sem áður.
6. Þó létu þeir eigi af syndum Jeróbóams ættar, þeim er hann hafði komið Ísrael til að drýgja. Þeir héldu áfram að drýgja þær. Aséran stóð og kyrr í Samaríu.
7. Jóahas átti ekkert lið eftir nema fimmtíu riddara, tíu vagna og tíu þúsund fótgönguliða, því að Sýrlandskonungur hafði gjöreytt þeim og gjört þá sem ryk við þreskingu.
8. Það sem meira er að segja um Jóahas og allt, sem hann gjörði, og hreystiverk hans, það er ritað í Árbókum Ísraelskonunga.
9. Og Jóahas lagðist til hvíldar hjá feðrum sínum, og hann var grafinn í Samaríu. Og Jóas sonur hans tók ríki eftir hann.
10. Á þrítugasta og sjöunda ríkisári Jóasar Júdakonungs varð Jóas Jóahasson konungur yfir Ísrael í Samaríu og ríkti sextán ár.
11. Hann gjörði það, sem illt var í augum Drottins. Hann lét ekki af neinum syndum Jeróbóams Nebatssonar, þeim er hann hafði komið Ísrael til að drýgja. Hann hélt áfram að drýgja þær.
12. Það sem meira er að segja um Jóas og allt, sem hann gjörði, og hreystiverk hans, hversu hann háði ófrið við Amasía Júdakonung, það er ritað í Árbókum Ísraelskonunga.
13. Og Jóas lagðist til hvíldar hjá feðrum sínum, og Jeróbóam settist í hásæti hans. Og Jóas var grafinn í Samaríu hjá Ísraelskonungum.
14. Elísa tók sótt, er leiddi hann til bana. Fór þá Jóas konungur í Ísrael ofan til hans, grét yfir honum og sagði: "Faðir minn, faðir minn, þú Ísraels vagn og riddarar!"
15. En Elísa sagði við hann: "Tak boga og örvar." Og hann færði honum boga og örvar.
16. Þá sagði hann við Ísraelskonunginn: "Legg hönd þína á bogann." Hann gjörði svo. Þá lagði Elísa hendur sínar ofan á hendur konungs.
17. Síðan mælti hann: "Opna þú gluggann gegnt austri." Og hann gjörði svo. Þá sagði Elísa: "Skjót!" Og hann skaut. Og Elísa mælti: "Sigurör frá Drottni! Já, sigurör yfir Sýrlendingum! Þú munt vinna sigur á Sýrlendingum í Afek, uns þeir eru gjöreyddir."
18. Síðan sagði hann: "Tak örvarnar." Og hann tók þær. Þá sagði hann við Ísraelskonunginn: "Slá þú á jörðina." Og hann sló þrisvar sinnum, en hætti síðan.
19. Þá gramdist guðsmanninum við hann og sagði: "Þú hefðir átt að slá fimm eða sex sinnum, þá mundir þú hafa unnið sigur á Sýrlendingum, uns þeir hefðu verið gjöreyddir, en nú munt þú aðeins vinna þrisvar sinnum sigur á Sýrlendingum."
20. Elísa dó og var grafinn. En ræningjaflokkar frá Móab brutust þá inn í landið á ári hverju.
21. Og svo bar við, er verið var að grafa mann nokkurn, að menn komu allt í einu auga á ræningjaflokk. Fleygðu þeir þá manninum í gröf Elísa og höfðu sig á brott. En er maðurinn snart bein Elísa, þá lifnaði hann og reis á fætur.
22. Hasael Sýrlandskonungur kreppti að Ísrael alla ævi Jóahasar.
23. En Drottinn miskunnaði þeim og sá aumur á þeim og sneri sér til þeirra sakir sáttmála síns við Abraham, Ísak og Jakob. Vildi hann eigi, að þeir skyldu tortímast, hafði og eigi útskúfað þeim frá augliti sínu til þessa.
24. Og er Hasael Sýrlandskonungur var dáinn og Benhadad sonur hans hafði tekið ríki eftir hann,
25. þá tók Jóas Jóahasson borgirnar aftur frá Benhadad Hasaelssyni, þær er Hasael hafði tekið frá Jóahas föður hans í ófriði. Vann Jóas þrisvar sinnum sigur á honum og náði aftur borgum Ísraels.
About 2 Konungabók Chapter 13
Read 2 Konungabók Chapter 13 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 2 Konungabók in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: 2 Konungabók
Chapter: 13
Testament: Old Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading 2 Konungabók. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading 2 Konungabók Chapter 13 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is 2 Konungabók Chapter 13?
2 Konungabók Chapter 13 is part of the Book of 2 Konungabók in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete 2 Konungabók Chapter 13 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from 2-konungabok
- 2 Konungabók Chapter 5
- 2 Konungabók Chapter 17
- 2 Konungabók Chapter 2
- 2 Konungabók Chapter 20
- 2 Konungabók Chapter 3
- 2 Konungabók Chapter 22
- 2 Konungabók Chapter 18
Explore More from Gamla Testamentið
- 1 Kroníkubók Chapter 13
- 1 Mósebók Chapter 45
- Sálmarnir Chapter 98
- Sálmarnir Chapter 80
- 5 Mósebók Chapter 32
- Dómarabókin Chapter 4
- 1 Konungabók Chapter 6