Read Markús Chapter 2 Online
Read Markús Chapter 2 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Markús in the New Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Markús and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
Markús 2
Kafli 2
1. Nokkrum dögum síðar kom hann aftur til Kapernaum. Þegar fréttist, að hann væri heima,
2. söfnuðust þar svo margir, að hvergi var lengur rúm, ekki einu sinni fyrir dyrum úti. Og hann flutti þeim orðið.
3. Þá er komið með lama mann, og báru fjórir.
4. Þegar þeir gátu ekki komist með hann til Jesú fyrir fólkinu, rufu þeir þekjuna uppi yfir honum, grófu þar í gegn og létu síga ofan rekkjuna, sem hinn lami lá í.
5. Þá er Jesús sér trú þeirra, segir hann við lama manninn: "Barnið mitt, syndir þínar eru fyrirgefnar."
6. Þar sátu nokkrir fræðimenn og hugsuðu í hjörtum sínum:
7. "Hví mælir þessi maður svo? Hann guðlastar. Hver getur fyrirgefið syndir nema Guð einn?"
8. Samstundis skynjaði Jesús í anda sínum, að þeir hugsuðu þannig með sér, og hann sagði við þá: "Hví hugsið þér slíkt í hjörtum yðar?
9. Hvort er auðveldara að segja við lama manninn: ,Syndir þínar eru fyrirgefnar,' eða segja: ,Statt upp, tak rekkju þína og gakk?'
10. En til þess að þér vitið, að Mannssonurinn hefur vald til að fyrirgefa syndir á jörðu,
11. þá segi ég þér" – og nú talar hann við lama manninn: – "Statt upp, tak rekkju þína, og far heim til þín."
12. Hann stóð upp, tók jafnskjótt rekkjuna og gekk burt í allra augsýn, svo að allir voru furðu lostnir, lofuðu Guð og sögðu: "Aldrei áður höfum vér þvílíkt séð."
13. Aftur fór hann út og gekk með vatninu, og allur mannfjöldinn kom til hans, og hann kenndi þeim.
14. Og er hann gekk þar, sá hann Leví Alfeusson sitja hjá tollbúðinni, og hann segir við hann: "Fylg þú mér!" Og hann stóð upp og fylgdi honum.
15. Svo bar við, að Jesús sat að borði í húsi hans, og margir tollheimtumenn og bersyndugir sátu þar með honum og lærisveinum hans, en margir fylgdu honum.
16. Fræðimenn af flokki farísea, sem sáu, að hann samneytti bersyndugum og tollheimtumönnum, sögðu þá við lærisveina hans: "Hann etur með tollheimtumönnum og bersyndugum."
17. Jesús heyrði þetta og svaraði þeim: "Ekki þurfa heilbrigðir læknis við, heldur þeir, sem sjúkir eru. Ég er ekki kominn til að kalla réttláta, heldur syndara."
18. Lærisveinar Jóhannesar og farísear héldu nú föstu. Þá koma menn til Jesú og spyrja hann: "Hví fasta lærisveinar Jóhannesar og lærisveinar farísea, en þínir lærisveinar fasta ekki?"
19. Jesús svaraði þeim: "Hvort geta brúðkaupsgestir fastað, meðan brúðguminn er hjá þeim? Alla þá stund, sem brúðguminn er hjá þeim, geta þeir ekki fastað.
20. En koma munu þeir dagar, er brúðguminn verður frá þeim tekinn, þá munu þeir fasta, á þeim degi.
21. Enginn saumar bót af óþæfðum dúk á gamalt fat, því þá rífur nýja bótin af hinu gamla og verður af verri rifa.
22. Og enginn lætur nýtt vín á gamla belgi, því þá sprengir vínið belgina, og vínið ónýtist og belgirnir. Nýtt vín er látið á nýja belgi."
23. Svo bar við, að Jesús fór um sáðlönd á hvíldardegi, og lærisveinar hans tóku að tína kornöx á leiðinni.
24. Farísearnir sögðu þá við hann: "Lít á, hví gjöra þeir það, sem er ekki leyfilegt á hvíldardegi?"
25. Hann svaraði þeim: "Hafið þér aldrei lesið, hvað Davíð gjörði, er honum lá á, þegar hann hungraði og menn hans?
26. Hann fór inn í Guðs hús, þegar Abíatar var æðsti prestur, og át skoðunarbrauðin, en þau má enginn eta nema prestarnir, og gaf líka mönnum sínum."
27. Og hann sagði við þá: "Hvíldardagurinn varð til mannsins vegna og eigi maðurinn vegna hvíldardagsins.
28. Því er Mannssonurinn einnig herra hvíldardagsins."
About Markús Chapter 2
Read Markús Chapter 2 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Markús in the New Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: Markús
Chapter: 2
Testament: New Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Markús. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading Markús Chapter 2 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is Markús Chapter 2?
Markús Chapter 2 is part of the Book of Markús in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete Markús Chapter 2 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from Markus
- Markus Chapter 5
- Markus Chapter 16
- Markus Chapter 14
- Markus Chapter 1
- Markus Chapter 8
- Markus Chapter 12
- Markus Chapter 7
Explore More from Nýja Testamentið
- Opinberunarbókin Chapter 12
- Opinberunarbókin Chapter 22
- 2 Korintubréf Chapter 7
- Opinberunarbókin Chapter 21
- 2 Korintubréf Chapter 10
- 2 Tímóteusarbréf Chapter 4
- 1 Pétursbréf Chapter 1