Jónas Chapter 1

For English

Read Jónas Chapter 1 Online

Read Jónas Chapter 1 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Jónas in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Jónas and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

Jónas 1

Kafli 1

1. Orð Drottins kom til Jónasar Amittaísonar, svo hljóðandi:

2. "Legg af stað og far til Níníve, hinnar miklu borgar, og prédika móti henni, því að vonska þeirra er upp stigin fyrir auglit mitt."

3. En Jónas lagði af stað í því skyni að flýja til Tarsis, burt frá augliti Drottins, og fór hann niður til Jaffa. Þar hitti hann skip, er ætlaði til Tarsis. Greiddi hann fargjald og steig á skip í því skyni að fara með þeim til Tarsis, burt frá augliti Drottins.

4. Þá varpaði Drottinn miklum stormi á sjóinn, og gjörði þá svo mikið ofviðri á hafinu, að við sjálft lá, að skipið mundi brotna.

5. Skipverjar urðu hræddir og hét hver á sinn guð. Og þeir köstuðu reiða skipsins í sjóinn til þess að létta á skipinu. En Jónas hafði gengið ofan í neðsta rúm í skipinu, lá þar og svaf vært.

6. Þá gekk stýrimaður til hans og sagði við hann: "Hvað kemur til, að þú sefur? Statt upp og ákalla guð þinn. Vera má að sá guð minnist vor, svo að vér förumst eigi."

7. Nú sögðu skipverjar hver við annan: "Komið, vér skulum kasta hlutum, svo að vér fáum að vita, hverjum það er að kenna, að þessi ógæfa er yfir oss komin." Þeir köstuðu síðan hlutum, og kom upp hlutur Jónasar.

8. Þá sögðu þeir við hann: "Seg oss, hver er atvinna þín og hvaðan kemur þú? Hvert er föðurland þitt og hverrar þjóðar ertu?"

9. Hann sagði við þá: "Ég er Hebrei og dýrka Drottin, Guð himinsins, þann er gjört hefir hafið og þurrlendið."

10. Þá urðu mennirnir mjög óttaslegnir og sögðu við hann: "Hvað hefir þú gjört!" Mennirnir vissu sem sé, að hann var að flýja burt frá augliti Drottins, því að hann hafði sagt þeim frá því.

11. Því næst sögðu þeir við hann: "Hvað eigum vér að gjöra við þig, til þess að hafið kyrrist fyrir oss?" – því að sjórinn æstist æ meir og meir.

12. Þá sagði hann við þá: "Takið mig og kastið mér í sjóinn, mun þá hafið kyrrt verða fyrir yður, því að ég veit, að fyrir mína skuld er þessi mikli stormur yfir yður kominn."

13. Þá lögðust skipverjar á árar og reyndu að komast aftur til lands, en gátu það ekki, því að sjórinn æstist æ meir og meir.

14. Þá kölluðu þeir til Drottins og sögðu: "Æ, Drottinn! Lát oss eigi farast, þótt vér glötum lífi þessa manns, og lát oss ekki gjalda þess, svo sem vér hefðum fyrirkomið saklausum manni, því að þú, Drottinn, hefir gjört það, sem þér þóknaðist."

15. Þeir tóku nú Jónas og köstuðu honum í sjóinn. Varð hafið þá kyrrt og sjávarólguna lægði.

16. En skipverjar óttuðust Drottin harla mjög, færðu Drottni sláturfórn og gjörðu heit.

17. (2:1) Þá sendi Drottinn stórfisk til þess að svelgja Jónas. Og Jónas var í kviði fisksins þrjá daga og þrjár nætur.

About Jónas Chapter 1

Read Jónas Chapter 1 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Jónas in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: Jónas
Chapter: 1
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Jónas. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading Jónas Chapter 1 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is Jónas Chapter 1?

Jónas Chapter 1 is part of the Book of Jónas in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete Jónas Chapter 1 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from Gamla Testamentið

  1. Míka Chapter 1
  2. Míka Chapter 3
  3. Míka Chapter 2
  4. Míka Chapter 5
  5. Míka Chapter 7
  6. Míka Chapter 4
  7. Míka Chapter 6

Explore More from Jonas

  1. Jonas Chapter 4
  2. Jonas Chapter 4
  3. Jónás Chapter 4
  4. Jonas Chapter 4
  5. Jonas Chapter 2
  6. Jónás Chapter 2
  7. Jonas Chapter 2

Related Chapters & Readings

  1. 5 Mósebók Chapter 9
  2. 2 Samúelsbók Chapter 3
  3. Jeremía Chapter 51
  4. 2 Konungabók Chapter 6
  5. Esekíel Chapter 42
  6. Esekíel Chapter 12
  7. Jeremía Chapter 19
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *