Matteus Chapter 28

For English

Read Matteus Chapter 28 Online

Read Matteus Chapter 28 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Matteus in the New Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Matteus and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

Matteus 28

Kafli 28

1. Að liðnum hvíldardegi, þegar lýsti af fyrsta degi vikunnar, komu þær María Magdalena og María hin til að líta á gröfina.

2. Þá varð landskjálfti mikill, því engill Drottins sté niður af himni, kom og velti steininum og settist á hann.

3. Hann var sem elding ásýndum og klæðin hvít sem snjór.

4. Varðmennirnir skulfu af hræðslu við hann og urðu sem örendir.

5. En engillinn mælti við konurnar: "Þér skuluð eigi óttast. Ég veit, að þér leitið að Jesú hinum krossfesta.

6. Hann er ekki hér. Hann er upp risinn, eins og hann sagði. Komið og sjáið staðinn, þar sem hann lá.

7. Farið í skyndi og segið lærisveinum hans: ,Hann er upp risinn frá dauðum, sjá hann fer á undan yður til Galíleu. Þar munuð þér sjá hann.' Þetta hef ég sagt yður."

8. Og þær fóru í skyndi frá gröfinni, með ótta og mikilli gleði, og hlupu að flytja lærisveinum hans boðin.

9. Og sjá, Jesús kemur á móti þeim og segir: "Heilar þið!" En þær komu, féllu fram fyrir honum og föðmuðu fætur hans.

10. Þá segir Jesús við þær: "Óttist ekki, farið og segið bræðrum mínum að halda til Galíleu. Þar munu þeir sjá mig."

11. Meðan þær voru á leiðinni komu nokkrir varðmenn til borgarinnar og sögðu æðstu prestunum allt, sem gjörst hafði.

12. En þeir kvöddu saman öldungana og tóku það ráð með þeim að bera mikið fé á hermennina og mæltu við þá:

13. "Segið þetta: ,Lærisveinar hans komu á næturþeli, meðan vér sváfum, og stálu honum.'

14. Og ef þetta berst landshöfðingjanum til eyrna, skulum vér sefa hann, svo að þér getið verið áhyggjulausir."

15. Þeir tóku við fénu og gjörðu sem þeim var sagt. Þessi sögusögn hefur verið borin út meðal Gyðinga allt til þessa dags.

16. En lærisveinarnir ellefu fóru til Galíleu, til fjallsins, sem Jesús hafði stefnt þeim til.

17. Þar sáu þeir hann og veittu honum lotningu. En sumir voru í vafa.

18. Og Jesús gekk til þeirra, talaði við þá og sagði: "Allt vald er mér gefið á himni og jörðu.

19. Farið því og gjörið allar þjóðir að lærisveinum, skírið þá í nafni föður, sonar og heilags anda,

20. og kennið þeim að halda allt það, sem ég hef boðið yður. Sjá, ég er með yður alla daga allt til enda veraldar."

About Matteus Chapter 28

Read Matteus Chapter 28 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Matteus in the New Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: Matteus
Chapter: 28
Testament: New Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Matteus. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading Matteus Chapter 28 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is Matteus Chapter 28?

Matteus Chapter 28 is part of the Book of Matteus in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete Matteus Chapter 28 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from Matteus

  1. Matteus Chapter 2
  2. Matteus Chapter 3
  3. Matteus Chapter 5
  4. Matteus Chapter 6
  5. Matteus Chapter 20
  6. Matteus Chapter 18
  7. Matteus Chapter 16

Explore More from Nýja Testamentið

  1. Matteus Chapter 4
  2. Lúkas Chapter 12
  3. Títusarbréf Chapter 1
  4. Rómverjar Chapter 16
  5. Matteus Chapter 17
  6. Hebreabréfið Chapter 3
  7. Matteus Chapter 7

Related Chapters & Readings

  1. 1 Mósebók Chapter 47
  2. Rómverjar Chapter 11
  3. Dómarabókin Chapter 7
  4. Malakí Chapter 3
  5. 5 Mósebók Chapter 23
  6. Matteus Chapter 10
  7. Postulasagan Chapter 13
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *