Read Hebreabréfið Chapter 7 Online
Read Hebreabréfið Chapter 7 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Hebreabréfið in the New Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Hebreabréfið and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
Hebreabréfið 7
Kafli 7
1. Melkísedek þessi var konungur í Salem og prestur Guðs hins hæsta. Hann gekk á móti Abraham og blessaði hann, þegar hann sneri heimleiðis eftir að hafa unnið sigur á konungunum.
2. Og honum lét Abraham í té tíund af öllu. Fyrst þýðir nafn hans "réttlætis konungur", en hann heitir enn fremur Salem-konungur, það er "friðar konungur".
3. Hann er föðurlaus, móðurlaus, ekki ættfærður, og hefur hvorki upphaf daga né endi lífs. Hann er líkur syni Guðs, hann heldur áfram að vera prestur um aldur.
4. Virðið nú fyrir yður, hvílíkur maður það var, sem Abraham, sjálfur forfaðirinn, gaf valda tíund af herfanginu.
5. Og víst er um það, að þeim Levísonum, er prestþjónustuna fá, er boðið að taka tíund af lýðnum eftir lögmálinu, það er að segja af bræðrum sínum, enda þótt þeir séu komnir af Abraham.
6. En sá, er eigi var ættfærður til þeirra, tók tíund af Abraham og blessaði þann, er fyrirheitin hafði.
7. En með öllu er það ómótmælanlegt, að sá sem er meiri blessar þann sem minni er.
8. Hér taka dauðlegir menn tíund, en þar tók sá er um var vitnað, að hann lifi áfram.
9. Og svo má að orði kveða, að enda Leví, hann sem tíund tekur, hafi greitt tíund, þar sem Abraham gjörði það,
10. því að enn þá var hann í lend forföður síns, þegar Melkísedek gekk á móti honum.
11. Hefði nú fullkomnun fengist með levíska prestdóminum, – en hann var grundvöllur lögmálsins, sem lýðurinn fékk -, hver var þá framar þörf þess að segja að koma skyldi annars konar prestur að hætti Melkísedeks, en ekki að hætti Arons?
12. Þegar prestdómurinn breytist, þá verður og breyting á lögmálinu.
13. Sá sem þetta er sagt um var af annarri ætt, og af þeirri ætt hefur enginn innt þjónustu af hendi við altarið.
14. Því að alkunnugt er, að Drottinn vor er af Júda upp runninn, en Móse hefur ekkert um presta talað, að því er varðar þá ættkvísl.
15. Þetta er enn miklu bersýnilegra á því, að upp er kominn annar prestur, líkur Melkísedek.
16. Hann varð ekki prestur eftir mannlegum lögmálsboðum, heldur í krafti óhagganlegs lífs.
17. Því að um hann er vitnað: "Þú ert prestur að eilífu að hætti Melkísedeks."
18. Hið fyrra boðorð er þar með ógilt, af því að það var vanmáttugt og gagnslaust.
19. Lögmálið gjörði ekkert fullkomið. En jafnframt er leidd inn betri von. Fyrir hana nálgumst vér Guð.
20. Þetta varð ekki án eiðs. Hinir urðu prestar án eiðs,
21. en hann með eiði, þegar Guð sagði við hann: "Drottinn sór, og ekki mun hann iðra þess: Þú ert prestur að eilífu."
22. Þessi samanburður sýnir, að Jesús er orðinn ábyrgðarmaður betri sáttmála.
23. Enn fremur urðu hinir prestarnir margir af því að dauðinn meinaði þeim að vera áfram.
24. En hann er að eilífu og hefur prestdóm þar sem ekki verða mannaskipti.
25. Þess vegna getur hann og til fulls frelsað þá, sem fyrir hann ganga fram fyrir Guð, þar sem hann ávallt lifir til að biðja fyrir þeim.
26. Slíks æðsta prests höfðum vér þörf, sem er heilagur, svikalaus, óflekkaður, greindur frá syndurum og orðinn himnunum hærri.
27. Hann þarf ekki daglega, eins og hinir æðstu prestarnir, fyrst að bera fram fórnir fyrir eigin syndir, síðan fyrir syndir lýðsins. Það gjörði hann í eitt skipti fyrir öll, er hann fórnfærði sjálfum sér.
28. Lögmálið skipar menn æðstu presta, sem eru veikleika háðir, en eiðurinn, er kom á eftir lögmálinu, skipar son, fullkominn gjörðan að eilífu.
About Hebreabréfið Chapter 7
Read Hebreabréfið Chapter 7 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Hebreabréfið in the New Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: Hebreabréfið
Chapter: 7
Testament: New Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Hebreabréfið. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading Hebreabréfið Chapter 7 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is Hebreabréfið Chapter 7?
Hebreabréfið Chapter 7 is part of the Book of Hebreabréfið in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete Hebreabréfið Chapter 7 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from hebreabrefid
- Hebreabréfið Chapter 1
- Hebreabréfið Chapter 6
- Hebreabréfið Chapter 2
- Hebreabréfið Chapter 10
- Hebreabréfið Chapter 5
- Hebreabréfið Chapter 4
- Hebreabréfið Chapter 9
Explore More from Nýja Testamentið
- Postulasagan Chapter 14
- 2 Korintubréf Chapter 13
- Postulasagan Chapter 12
- 2 Pétursbréf Chapter 2
- Lúkas Chapter 19
- Postulasagan Chapter 1
- Postulasagan Chapter 23