Orðskviðirnir Chapter 15

For English

Read Orðskviðirnir Chapter 15 Online

Read Orðskviðirnir Chapter 15 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Orðskviðirnir in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Orðskviðirnir and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

Orðskviðirnir 15

Kafli 15

1. Mjúklegt andsvar stöðvar bræði, en meiðandi orð vekur reiði.

2. Af tungu hinna vitru drýpur þekking, en munnur heimskingjanna eys úr sér vitleysu.

3. Augu Drottins eru alls staðar, vakandi yfir vondum og góðum.

4. Hógværð tungunnar er lífstré, en fals hennar veldur hugarkvöl.

5. Afglapinn smáir aga föður síns, en sá sem tekur umvöndun, verður hygginn.

6. Í húsi hins réttláta er mikill auður, en glundroði er í gróðafé hins óguðlega.

7. Varir hinna vitru dreifa út þekkingu, en hjarta heimskingjanna er rangsnúið.

8. Fórn óguðlegra er Drottni andstyggð, en bæn hreinskilinna er honum þóknanleg.

9. Vegur hins óguðlega er Drottni andstyggilegur, en þann sem stundar réttlæti, elskar hann.

10. Slæm hirting bíður þess, sem yfirgefur rétta leið, sá sem hatar umvöndun, hlýtur að deyja.

11. Dánarheimur og undirdjúpin eru opin fyrir Drottni, hversu miklu fremur hjörtu mannanna barna!

12. Spottaranum er ekki vel við, að vandað sé um við hann, til viturra manna fer hann ekki.

13. Glatt hjarta gjörir andlitið hýrlegt, en sé hryggð í hjarta, er hugurinn dapur.

14. Hjarta hins vitra leitar að þekking, en munnur heimskingjanna gæðir sér á fíflsku.

15. Hinn volaði sér aldrei glaðan dag, en sá sem vel liggur á, er sífellt í veislu.

16. Betra er lítið í ótta Drottins en mikill fjársjóður með áhyggjum.

17. Betri er einn skammtur kálmetis með kærleika en alinn uxi með hatri.

18. Bráðlyndur maður vekur deilur, en sá sem seinn er til reiði, stillir þrætu.

19. Vegur letingjans er eins og þyrnigerði, en gata hreinskilinna er brautarvegur.

20. Vitur sonur gleður föður sinn, en heimskur maður fyrirlítur móður sína.

21. Óvitrum manni er fíflskan gleði, en skynsamur maður gengur beint áfram.

22. Áformin verða að engu, þar sem engin er ráðagerðin, en ef margir leggja á ráðin, fá þau framgang.

23. Gleði hlýtur maðurinn af svari munns síns, og hversu fagurt er orð í tíma talað!

24. Lífsins vegur liggur upp á við fyrir hinn hyggna, til þess að hann lendi ekki niður í Helju.

25. Drottinn rífur niður hús dramblátra, en setur föst landamerki ekkjunnar.

26. Ill áform eru Drottni andstyggð, en hrein eru vingjarnleg orð.

27. Sá kemur ólagi á heimilishag sinn, sem fíkinn er í rangfenginn gróða, en sá sem hatar mútugjafir, mun lifa.

28. Hjarta hins réttláta íhugar, hverju svara skuli, en munnur óguðlegra eys úr sér illsku.

29. Drottinn er fjarlægur óguðlegum, en bæn réttlátra heyrir hann.

30. Vingjarnlegt augnaráð gleður hjartað, góðar fréttir feita beinin.

31. Eyra sem hlýðir á holla umvöndun, mun búa meðal hinna vitru.

32. Sá sem aga hafnar, fyrirlítur sjálfan sig, en sá sem hlýðir á umvöndun, aflar sér hygginda.

33. Ótti Drottins er ögun til visku, og auðmýkt er undanfari virðingar.

About Orðskviðirnir Chapter 15

Read Orðskviðirnir Chapter 15 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Orðskviðirnir in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: Orðskviðirnir
Chapter: 15
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Orðskviðirnir. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading Orðskviðirnir Chapter 15 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is Orðskviðirnir Chapter 15?

Orðskviðirnir Chapter 15 is part of the Book of Orðskviðirnir in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete Orðskviðirnir Chapter 15 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from Gamla Testamentið

  1. Míka Chapter 3
  2. Míka Chapter 2
  3. Míka Chapter 1
  4. Míka Chapter 5
  5. Míka Chapter 6
  6. Míka Chapter 7
  7. Míka Chapter 4

Explore More from Ordskvidirnir

  1. Orðskviðirnir Chapter 29
  2. Orðskviðirnir Chapter 23
  3. Orðskviðirnir Chapter 14
  4. Orðskviðirnir Chapter 1
  5. Orðskviðirnir Chapter 5
  6. Orðskviðirnir Chapter 4
  7. Orðskviðirnir Chapter 8

Related Chapters & Readings

  1. Rutarbók Chapter 3
  2. 2 Konungabók Chapter 11
  3. Ljóðaljóðin Chapter 8
  4. 2 Mósebók Chapter 7
  5. Sálmarnir Chapter 35
  6. Fílemonsbréfið Chapter 1
  7. 1 Tímóteusarbréf Chapter 5
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *